Íslendingaþættir Tímans - 30.08.1973, Blaðsíða 2

Íslendingaþættir Tímans - 30.08.1973, Blaðsíða 2
Sigurður Már Davíðsson °g Jórunn R. Elíasdóttir Ingimar Örn Davíðsson °g Sigríður Guðmundsdóttir Huggunarljóð til syrgjandi óstvina Þvi fagrar liljur fölna skjótt og fella blöð að grund, þá nöpur dauðans dimma nótt er dapurleikans stund. En vonir glæðast, vetrarhrið mun vorsól ylja heit, og blómin aftur birtast frið þá bráðnar snær um sveit. Og ljósin fjögur lifna á ný á landi eilifðar. bá blikar sunna björt og hlý og breiðir geislafar um himinboga stjörnum stráð, en storma lægir brátt. Svo dásamleg er drottins náð á dýrðarhimni hátt. En þegar aftur lauf i lund og leysast vetrarbönd, þá ástvinir viö endurfund sjá eilif sólarlönd. Þar sorg er engin, sæla ein, en sumarbirtan heið. Svo blærinn ljúfur bærir grein, þá blómstrar rós á meiö. hugsun. Ég held að hún hafi viljað öll- um vel og greiða götu allra, sem á leið hennar urðu. Með mikilli prýöi stóð hún í stöðu sinni, bæði sem móðir og húsmóðir. Þannig kom hún mér fyrir sjónir alla tið og ég hygg að það hafi engin missýning verið. Um hana mátti vissulega segja með skáldinu, að ,,viö- ar en i skiklings sölum svanna fas var prýði glæst, mörg i vorum djúpu döl- um, drottning hefir bónda fæðzt”. Þau hjónin eignuðust alls fjögur börn og eru þau sem hér segir: Sigrún, átti fyrst þýzkan verkfræð- ing, Heinrich Dú'rr, og siðar dr. Pál Isólfsson, organleikara og tónskáld. Sigurveig, sem gift er Kristni Guöjónssyni, forstjóra i Reykjavik, Eyrún, sem gift er Viglundi Guð- mundssyni, verkstjóra viö fyrirtæki föður hennar og Karl, sem nú er fram- kvæmdastjóri viö sama fyrirtæki, kvæntur Ingibjörgu Skúladóttur. öll held ég að þessi börn hafi erft i góðum mæli manngæöi og manndóm foreldra sinna. bá ólu þau hjónin upp frá barnæsku Kristinu Þorsteinsdótt- ur. Giftist hún Birni Kolbeinssyni, verkstjóra frá Kollafirði, en hann lézt fyrir nokkrum árum. Síðustu árin urðu Rannveigu erfiö. Heilsan var þá þrotin meö öllu og hún varð aö dveljast á spitala. Mátti þvi segja, að hún biði sem fleyið bundið við báruströnd, sem beið eftir lausnar- ans hljómi. En ég veit, að hún beið róleg og æðrulaus, þvi að hún var trú- uð kona, sem vissi á hvern hún trúði og var fullviss um framhald lifsins á ærði sviöum. Lausnarorðið barst henni svo 6. þ.m. og fékk hún hægt og friðsælt andlát, — „eins og léttu laufi lyfti blær frá hjarni”. Drottinn blessi hana og leiði i hennar nýju heimkynnum. Hann gefi öllum ástvinum hennar huggun góðra og gleðirikra minninga frá liönum ævi- dögum. Blessuð sé minning hennar. Þorst. B. Gíslason. frá Steinnesi. Viö sorgarstund og tregatár ei tlminn stöðvast má. Þvi aftur græðast öll vor sár og einnig þornar brá, ef guði er treyst, en allt hans orð er endurlaúsn og náð. Þá ætiö við hans blessað borö mun birtast allt vort ráð. Haraldur Þór Jónsson. 2 Islendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.