Íslendingaþættir Tímans - 01.11.1973, Síða 7

Íslendingaþættir Tímans - 01.11.1973, Síða 7
Guðjón Gíslason Garði Fæddur 1.11. 1905. Dáinn 17.10.197;!. Sælir eru hjartalireinir, þvi að þeir munu Guft sjá. GUÐJON Gislason var borinn og barn- fæddur Suðurnesjamaður og var hið ágætasta dæmi um dugnað þeirra og eljusemi. Foreldrar hans voru hjónin Gisli Eyjólfsson og Þuriður Jónsdóttir, lengi búandi á Þóroddsstöðum i Miðneshreppi, en siðustu æviárin til heimilis i Sandgerði. Guðjón ólst upp i föðurgarði, elztur Þuríður Pálsdóttir svo að öðrum varð hún lika ógleyman- leg. Við Þuriður höfum átt það sameigin- legt að elska og virða sama fólkið af heilum hug, systur hennar Aðalbjörgu og Egil kennara Þorlaksson fóstur- foreldra mina. Ég veit að við vorum báðar jafnþakklátar fyrir samvistir við þau og fyrir þann minningasjóð sem við áttum um góðar og glaðar stundir með þeim. Fátækleg þakkar- orð segja hér litið eitt. En ég er lika þakklát fyrir margar ljúfar minningar frá Stóruvöllum, og fyrir alla þá hlýju og umhyggju er ég naut þar, einkum á æskudögum. Þuriður Pálsdóttir átti sinn mikla hlut i þvi, að öðru heimilisfólki ógleymdu. Hún var ætið svo glöð i anda og æðrulaus. Hin siðari árin átti Þuriður við margvislega vanheilsu að striða, og meðal annars lá við að hún missti sjónina hvað eftir annað. En hún kvartaði aldrei, og ekki fannst neinn bilbugur á henni þótt á móti blési. Þrátt fyrir sjóndepruna vann hún hina flngerðustu hluti i höndunum fram á siðustu ár. Nú er autt skarð þar sem hún var áður, og söknuður sár eftir góða konu. Nú á eiginmaður hennar um sárt að binda, börn hennar og barnabörn, og systirin Dagrún, er bjó fyrst með foreldrum sinum og sfðar i skjóli þeirra Þuríðar og Baldurs og átti þar allt sitt athvarf. En góðar minningar gleðja þau og hugga. Sigriður Kristjánsdóttir. ellefu systkina sem öll hafa reynzt atorkufolk. Hann hóf ungur almenna vinnu til lands og sjávar, bæði við húsagerð, vegavinnu og þó einkum sjávarútveg. Hafði hann um langt ára- bil unnið við fiskvinnslu hjá sama fyrirtæki i Garðinum og starfaði þar allt fram á siðasta dag. Mér er það kunnugt, þar sem ég vann meö honum um tima, að hann var hafður þar i miklum metum meðal yfirmanna og vinnufélaga, enda gekk hann að störfum sinum af alvöru og trúnaði og var þó einkar skemmtilegur viðræðu, gamansamur og ungur i anda. Guðjón safnaði ekki miklum verald- legum auði um dagana, en hús eignaðist han ágætt, og við það gerði hann sér fallegan garð. Heima við höfðu hans sistarfandi hendur ætiö nóg að gera við að hlynna að garðinum og stunda ýmsar smiðar, sem honum voru hugleiknar, en Guðjón var hag- leiksmaður mikill. öll umgengni við húseign hans, Gimli i Garði, bar snyrtimennsku hans fagurt vitni. Guðjón var hógvær maður og lét ekki mikið yfir sér. Hann gerði sér ekki titt um að vasast i félagsmálum, en var þó hinn bezti félagi þeim, sem hann batt trúnað við, og ágætur húsbóndi heim aðsækja. Kom þá i ljós, að hann hafði á grundvelli langrar reynslu myndaö sér ákveðnar skoðanir á ýmsum málum og þurfti ekki að láta pólitiska skrumara segja sér til um, hvað landi og þjóð væri hag- felldast. Sönn mannúð kemur ekki sizt fram i viðskiptum manna við dýrin. Guöjón i Gimli var sérstakur dýravinur og sinnti þeim af óeigingjarnri alúð, bæði hestum, hundum og fleiri dýrum, sem hændust að honum. Hann var ókvæntur og barnlaus, en bjó siðustu 6 árin með Valdisi Jóns- dóttur. Var sambúð þeirra hin ánægju- legasta og miklir kærleikar með þeim alla tið. Börnum hennar og barna- börnum reyndist hann einnig sem góður faðir. Það leyndi sér þá ekki, hvilikum mannkostum hann var búinn, enda átti Valdis hjá honum hamingjusöm ár. Hún kveður hann nú með mikilli ástúð og virðingu og þakkar honum allar velgjörðir við sig. Með Guðjóni Gislasyni er genginn einn þeirra nýtu þjóðfelagsborgara, sem rækta sinn garö i hljóðlátri önn og brjótast gegnum lifið af eigin ramm- leik, en ætlast ekki tii, að aðrir leggi þeim allt upp i hendurnar. Hann er hin ágætasta fyrirmynd um grandvarleik og trumennsku, en slikar dyggðir spretta einungis af hreinu, kristilegu hjartalagi. Og sannarlega var hann hógvær maður og af hjarta litillátur. Þvi er það von min og trú, að fyrir- heitin miklu, sem lofað er i Sæluboðun Krists, rætist á þessum trúa verka- manni I vingarði Drottins. Megi Guðs blessun fylgja honum. Jón Valur Jensson. 85 ára: Asmundur Guðmundsson fyrrum biskup Þann 6. október voru 85 ár liðin frá fæðingu herra Ásmundar Guðmunds- sonar biskups. Nemendur hans minnast hins ágæta kennara og mann- kostamanns, er bar hag og velferð þeirra fyrir brjósti. Á afmælisdegi hans minnumst vér einnig góðra stunda á heimili þeirra hjónanna að Laufásvegi 75 og biskups- frúnni og börnum þeirra eru einnig sendar hjartanlegar kveðjur i tilefni afmælisins. Ragnar Benediktsson islendingaþættir 7

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.