Íslendingaþættir Tímans

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Íslendingaþættir Tímans - 08.03.1975, Qupperneq 1

Íslendingaþættir Tímans - 08.03.1975, Qupperneq 1
ÍSLENDINGAÞÆTTIR Laugardagur 8. marz 1975—8. tbl. 8. árg. Nr. 199. TIMANS Harry Frederiksen framkvæmdastjóri Fæddur 15. marz 1913. Dáinn 2. febrúar 1975. „Fótmál dauðans fljótt er stigið”. Harry O. Frederiksen fram- kvæmdastjóri Iðnaðardeildar Sam- bands islenzkra samvinnufélaga varð bráðkvaddur á ferðalagi erlendis 2. febrúar s.l., nær 62 ára að aldri. Otför hans var gerð 18. febrúar s.l. frá Dóm- kirkjunni i Reykjavik. Harry Oluf Frederiksen, en svo hét hann fullu nafni, var fæddur i Reykja- vik 15. marz 1913. Hann var sonur Aage M. Frederiksen vélstjóra og konu hans Margrétar Halldórsdóttur. Aage M. Frederiksen var danskrar ættar, en fluttist út hingað ungur að aldri og staðfesti hér ráð sitt. Þau hjón eignuðust sex syni og eina dóttur. Var Harry næst elstur þeirra systkina. Harry Frederiksen átti að baki langt og gifturikt starf hjá Sambandi is- lenzkra samvinnufélaga, er hann lézt fyrir aldur fram. Segja má. að hann hafi helgað Sambandinu starfskrafta sina alla og átti að baki nær hálfrar aldar starf fyrir islenzka samvinnu- hreyfingu. Aðeins 14 ára að aldri gekk hann i þjónustu Sambandsins og þá sem sendisveinn. bað var haustið 1927, en á þvi ári voru liðin 10 ár frá þvi aðal- skrifstofa Sambandsins hafði verið sett á stofn i Reykjavik og mun starfs- liðið hafa talið um 15 manns. Sigurður Kristinsson var þá forstjóri Sam- bandsins en hann tók við þvi starfi, er Hallgrimur bróðir hans féll frá árið 1923, langt um aldur fram. Arið 1927 mun deildaskipting Samb. hafa verið komin i fast form. Innflutningsdeild undir framkvæmda- stjórn Aðalsteins Kristinssonar og Út- flutningsdeild undir framkvæmda- stjórn Jóns Arnasonar siðar Lands- bankastjóra. Það mun hafa verið Að- alsteinn Kristinsson, sem réð Harry til starfa i Sambandið. 1 annálum Sambandsins fyrir arið 1927 er m.a. tekið fram, að á þvi ári hafi verið ákveðið, að Sambandið skyldi óska inngöngu i Alþjóðasam- vinnusambandið. Þá var á þessu ári sett á stofn skrifstofa i Hamborg og á árinu var mikið rætt um að koma á fót ullariðnaði og kornmyllu á vegum Sambandsins. Á aðalfundi þetta ár voru menn samdóma um, að á sviði iönaðar biðu Sambandsins stór verk- efni á komandi árum. Umræður um iönað á þessu ári voru út af fyrir sig ekki óeðlilegar, en það má telja það sérstaka tilviljun, að það skuli gerast á árinu, sem 14 ára gamall sendisveinn er ráðinn, sá hinn sami er siðar átti eftir að veita forstöðu iðnaði Sam- bandsins um aldarfjórðungsskeið og sjá hann vaxa i stóriðnað á islenzkan mælikvarða og taka forystu i útflutn- ingi iðnaðarvara framieiddum úr is- lenzkum landbúnaðarafurðum. „Verk mér af verki, verks leitaði”. Með sendisveinsstarfinu 1927 hefst hinn langi og margbreytilegi starfs- ferill hjá Harry i Sambandinu. Leiðin lá 1 Samvinnuskólann haustið 1929 og þaðan lýkur hann prófi vorið 1931. Þá situr Jónas Jónsson i ráðherrastóli, én kennir þó við skólann, en skólastjóri þessa vetur er dr. Þorkell Jóhannes- son, siðar háskólarektor. 1 sumarleyfi milli skólaára starfar Harry i Bók- haldsdeiid, en að loknu prófi 1931 ger- ist hann fyrsti starfsmaður Inn- heimtudeildar, sem sett var á stofn i mai það ár. Siðari hluta ársins 1932 tók Harry vuð forstöðu Saumastofu Gefj- unar i Reykjavik og verzlunar i tengsl- um við hana, er þá var til húsa að Laugavegi 10. Gegndi Harry þessu starfi fram á árið 1934, jafnframt þvi að hafa umsjón með afreikningum i Útflutningsdeild og um tima að hafa eftirlit með kjötbúð, sem Sambandið starfrækti á Vesturgötu 16. Harry starfaði siðan við ýms störf i útflutn- ingsdeild til ársins 1936, en tók þá aftur til Saumastofu Gefjunar, sem hann flutti i byggingu Hótel lslands við Aðalstræti. Verzlunin var þá stækkuð og saumastofunni breytt i hraðsauma- stofu. 1 maimánuði 1938 ræðst Harry til starfa á skrifstofu Sambandsins i Kaupmannahöfn Þar var þá fram- kvæmdastjóri Oli Vilhjálmsson, sem nú er nýlátinn. Með störfum erlendis hefst nýr og merkur þáttur i starfs- sögu $arrys. Ný reynsla og aukin þekking á alþjóðaviðskiptum leggur

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.