Íslendingaþættir Tímans - 08.03.1975, Page 2
grundvöll að auknum ábyrgðar-
störfum siöar meir.
Dvöl Harrys i Höfn hefði trúlega
orðið lengri, ef ekki hefði komið til
seinni heimsstyrjaldarinnar 1939. Þá
verða miklar breytingará viðskiptalifi
Norðurálfu. Viðskipti Islands beindust
fljótlega svo til öll til Bretlands og
Ameriku. Eftir að Þjóðverjar her-
námu Danmörku 1940, leggst starf-
semi Hafnarskrifstofu að mestu niður.
Sex manns störfuðu þá á skrifstofunni,
þar á meðal Harry Frederiksen. Við
þessar aðstæður snýr Harry heim til
Islands Það var þó ekki heiglum hent
að komast yfir hafið vegna ófriðarins.
Kafbátar og herflugvélar sátu um skip
og einskis var svifist i þeim hildarleik.
Það heppnaðist þó fyrir atbeina is-
lensku rikisstjómarinnar og sendiráðs
íslands i Kaupmannahöfn að fá leyfi
frá Þjóðverjum, að m/s Esja mætti
sigla óáreitt með islenska farþega frá
Petsamo i Finnlandi til Islands. Ferð
þessi var talin hin mesta ævintýraferð.
Lagt var af stað frá Kaupmannahöfn
26. september og farið um Sviþjóð og
Finnland til Petsamo (við Hvitahaf).
Hinn 16. október 1940 leggst m/s
Esja að bryggju i Reykjavik. Harry
Frederiksen er einn i hópi 258 ls-
lendinga, sem komnir eru af hafi Ur
hinni nafntoguöu Petsamoferð. Hefur
þvi stundum verið haldið fram, að is-
lenzkt skip hafi ekki i annan tima flutt
dýrmætari farm um hafsins vegu.
Eftir heimkomuna hverfur Harry
aftur til starfa i útflutningsdeild.
Heimsstyrjöldin er nU i algleymingi.
Bretar hafa hernumið lsland og
Bandarikin leysa þá siðar af hólmi.
Þótt íslendingar losni að miklu leyti
við hörmungar styrjaldarinnar, færist
hildarleikurinn nær Islandi og mann-
tjón Islendinga verður tilfinnanlegt, er
kafbátar og flugvélar Þjóðverja
sökkva og laska islensk skip.
Striösástandið setur hins vegar nýjan
svip á efnahagslif þjóðarinnar. At-
vinna er mikil og gott verð er á Ut-
flutningsafurðum.
Umsvif Sambandsins i útflutningi
fara vaxandi og Sambandið setur á
stofn skrifstofu i New York árið 1940 og
viðskipti við Bandarikin aukast nU
mjög.
Harrys Frederiksen biða nU ný störf
og er ekki að efa að reynsla hans frá
tveggja og hálfsársstarfi i
Kaupmannahöfn hafa komið honum að
notum við hin f jölbreyttu störf, sem nU
biöu hans hjá Jóni Árnasyni i Út-
flutningsdeild.
A striðsárunum fór Harry marg-
sinnis umhverfis landið sem lestunar-
2
stjóri með islenskum og erlendum
skipum, er verið var að lesta Ut-
flutningsvörur á vegum Sambandsins.
í einni slikri ferð varð skip það er
Harry var með fyrir sprengjuárás
þýskrar flugvélar Ut af Vestf jörðum og
skall þar hurð nærri hælum að ekki
hlytist manntjón af.
Að lokinni heimsstyrjöldinni 1945
verða miklar breytingar á viðskiptalifi
tslendinga. Þjóðin átti gildan gjald-
eyrisvarasjóð i striðslok og gerðar
voru áætlarnir af hálfu alþingis og
stjórnvalda um uppbyggingu atvinnu-
lifsins.
Hjá Sambandinu verða forstjóra-
skipti i byrjun árs 1946. Sigurður
Kristinsson lét þá af störfum, eftir 22ja
ára starf i Sambandinu, sem forstjóri
og við tók Vilhjálmur Þór. Gerðar eru
áætlanir um stóraukin umsvif Sam-
bandsins og félaganna og var ýmsum
nýjungum hrint i framkvæmd hjá
Sambandinu strax á árinu 1946. Það
auöveldaði sókn i uppbyggingu, að
lausafjárstaða Sambandsins var mjög
góð á þessum tima. Félögin áttu veru-
legar innstæður i Sambandinu og Sam-
bandið innstæður i Landsbankanum.
Stóraukning iðnaðar var m.a. á fram-
kvæmdaáætlun Sambandsins.
Hinn 17. jUni 1947 fór Harry til
Kaupmannahafnar og tók þar við
framkvæmdastjórastörfum Hafnar-
skrifstofu, en Óli Vilhjálmsson hafði
fengiðfri frá störfum um stundarsakir
til þess að leita sér heilsubótar. í árs-
lok 1948 kom Harry heim frá
Kaupmannahöfn og tók þá við fram-
kvæmdastjórn Iðnaðardeildar Sam-
bandsins, er stofnsett var hinn 1.
janUar 1949.
Þegar hér er komið sögu hefur
Harry starfað hjá Sambandinu i rUm
20 ár. Sendisveinninn frá 1927 er orðinn
framkvæmdastjóri fyrir þeirri deild
Sambandsins er telur flesta starfs-
menn. Eins og þegar hefur verið vikið
að hér að framan, fékk Harry
Frederiksen að reyna hin margbreyti-
legustu störf, frá þvi hann réðst sem
sendisveinn 1927. Er ekki að efa að
sU reynsla, sem Harry fékk á þvi 20
ára timabili þar til hann tekur við for-
stöðu Iðnaðardeildar, hefur reynst
honum ómetanleg. Nýrri reynslu bætti
svo Harry við starfsferil sinn, er hann
gegndi störfum framkvæmdastjóra
Hamborgarskrifstofu frá þvi i árs-
byrjun 1962 og til ársloka 1964.
Hinn 1. janUar 1974 gat Harry
Frederiksen litið yfir 25 ára starf
Iðnaðardeildar. Sem framkvæmda-
stjóri hafði hann með lifi og sál unnið
að uppbyggingu iðnaðarins á vegum
Sambandsins. Nýjar verksmiðjur
höfðu risið af grunni og siaukin
vélvæðing hefur stöðugt aukið fram-
leiðnina. útflutningur iðnaðarvara frá
Sambandsverksmiðjunum hófst i
nokkrum mæli árið 1961 og hefur Ut-
flutningur stöðugt farið vaxandi. Á
þessu ári hafa verið gerðir samningar
um Utflutning frá Sambandsverk-
smiðjunum, sem eru stærri en nokkru
sinni fyrr.
Það gefur auga leið, að mikil ábyrgð
og vandi hefur hvilt á herðum Harrys
Frederikssen, sem framkvæmda-
stjóra Iðnaðardeildar. A.mk. 9 verk-
smiðjur heyra meira eða minna undir
Iðnaðardeild Sambandsins og starfs-
mannafjöldinn er 7-800 talsins.
Hin tiðu og miklu sjávarföll efna-
hagslifsins á Islandi, hafa oft valdið
hinum unga islenska iðnaði þungum
bUsifjum. Ýmsir hafa þá þurft að leita
skjóls hjá opinberum aðilum. Iðnaður
Sambandsins hefur hingað til staðist
efnahagsélin, þegar á heildina er litið,
þótt stundum hafi ekki reynst unnt að
klæða af kuldann. Hér hefur þvi oft
reynt á þrautseigju, raunsæi og ekki
ósjaldan hæfilega varfærni. Að sjálf-
sögðu hefur framkvæmdastjóri
Iðnaðardeildar borið hér stærsta
byrði, þótt verksmiðjustjórarnir hafi
hver og einn þurft að bera sina bagga.
Vandi framkvæmdastjóra iðnaðar-
deildar hefur verið meiri vegna þess,
að deildin er fjárhagslega sjálfstæð
einning innan Sambandsins og fjárUt-
vegun þvi lagst með þunga á herðar
hans.
Við lok lifdaga, sem voru langir,
mældir i vinnu, en alltof stuttir i árum
taldir, gat Harry Frederiksen fagnað
farsælu ævistarfi. Ég hefi sterkan
grun um það, að ein af hans heitustu
óskum i lifinu hafi verið sU, að geta.
skilað iðnaði Sambandsins traustum
og öflugum til næstu kynslóðar, þegar
hann félli frá. Ef þessi tilgáta min er
rétt, hefur Harry Frederiksen fengið
þessa ósk sina uppfyllta. Iðnaður Sam-
bandsins hefur aldrei verið sterkari og
öflugri en einmitt nU, þrátt fyrir
vandamálin, sem við er að glima. 1
aldarfjórðung helgaði Harry iðnaðin-
um starfskrafta sina og saga sam-
vinnuiðnaðar á tslandi og starfssaga
Harrys Frederiksen eru samofnar
með þeim hætti, að þar verður ekki á
milli greint.
Harry Frederiksen tók sæti i fram-
kvæmdastjórn Sambandsins árið 1956
og átti þar sæti til dauðadags. Ritari
framkvæmdastjórnarinnar var hann
frá 1967. Þegar hann lést hafði hann
gegnt framkvæmdastjórastörfum hér
heima og erlendis i tuttugu og sjö ár og
hálfu betur.
islendingaþættir