Íslendingaþættir Tímans - 08.03.1975, Page 3

Íslendingaþættir Tímans - 08.03.1975, Page 3
Auk aðalstarfs sins i Iðnaðardeild Sambandsins gegndi Harry Frederik- sen fjölmörgum öðrum trúnaðarstörf- um. Hann var varaformaður i stjórn Vinnumálasambands samvinnufélag- anna frá stofnun þess 1951 til ársins 1955 er hann var kjörinn stjórnar- formaður og þvi starfi gegndi hann til ársins 1973. Þá átti Harry sæti i stjórn ýmissa samstarfsfyrirtækja Sam- bandsins. Hann sat i stjórn fjölmargra opinberra og hálfopinberra stofnana, sem starfa að málefnum islenzks iðnaðar. Má þar nefna Iðnþróunarráð og Iðnþróunarstofnunina, Byggingar- nefnd sýningarhallar i Laugadal, Vörusýningarnefnd, Sýningarsamtök atvinnuveganna, Útflutningsmiðstöð iðnaðarins, Iðnrekstrarsjóð o.m.fl. Starfs sins vegna tók Harry mikinn þátt i utanrikisviðskiptum og átti hann þátt i gerð fjölmargra viðskipta- samninga við erlend fyrirtæki og stofnanir. 1 þessu sambandi má t.d. nefna umfangsmikil viðskipti Sam- bandsins við fyrirtæki og stofnanir i Sovétrik junum. Þá var Harry félagi i Lionshreyfing- unni og formaður i fulltrUaráði Knatt- spyrnufélagsins Fram, er hann lést, en á yngri árum iðkaði Harry knatt- spyrnu og lék þá með Fram og átti um árabil sæti i stjórn þess félags. Hér að framan hefur verið gerð nokkur grein fyrir störfum Harrys Fredreksen og hefur þá verið stiklað á stóru. Harry var einn af þeim starfs- mönnum Sambandsins, er lengstan hafði starfsaldur. Hann mundi timana tvenna, sendisveinsstarf 1927 á aðal- skrifstofu er taldi aðeins 15 starfs- menn og Sambandið i dag með hátt á annað þUsund starfsmenn og yfir 40 þUsund félagsmenn kaupfélaganna að bakhjalli, stóriðnað og fjölbreytta starfsemi: samvinnuhreyfinguna i dag sem eina af stoðum efnahagslifs þjóðarinnar. Harry Frederiksen mundi timana tvenna, — hann var virkur liðsmaður i hinni míklu upp- byggingu sl. hálfa öld. Starfssaga og saga Sambandsins segir þó ekki nema hluta af ævisögu Harry Frederiksen. Það er önnur hlið er snýr að einkalifi og fjölskyldu enda þótt oft tvinnist saman starf og einka- lif manna. Harry var gæfumaður i einkalifi. 1 Sambandinu kynntist hann fallegri og góðri konu, Margréti, kjördóttur Jóns bónda að Saurbæ i Vatnsdal og siðarn þingvarðar Hjartarsonar. Margrét starfaði um árabil á skrifstofu Sam- bandsins i Reykjavik og naut þar islendingaþættir trausts og virðingar fyrir dugnað i störfum. Þau Margrét og Harry giftu sig 19. april 1945. Var það mikill gæfudagur i lifi þeirra beggja. Harry eignaðist framUrskarandi góða og velgerða konu, perlu að manni og ekki er of sagt að Margrét beri nafn með réttu. Þau Margrét og Harry voru mjög samrýnd enda hjónaband þelrra að sama skapi farsælt. Þau eignuðust tvö börn, ólaf og GuðrUnu, sem gift er Halldóri Sigurðssyni, endurskoðnunarnema og eiga þau 8mánaða gamla dóttur, Eddu Hrund. Litla dótturdótturin var mikið augnayndi afa sins og nU i sorg fjöl- skyldunnar er hUn stóri sólargeislinn. Það verða margir sem sakna Harrys Fredereksen, bæði hér heima og er- lendis, Samstarfsmenn hans i Sam- bandinu minnast vinar og góðs félaga 1 framkvæmdastjórn Sambandins er nU autt sæti. Hópurinn þar hefur undan- farin ár verið sérstaklega samstæður, að minu mati. Það eru einhver ósýni- leg bönd vináttu, sem tengja menn þar saman. Þótt skoðanir geti verið skipt- ar, þegar mál þarf að brjóta til mergj- ar eða ráða fram Ur stórum vandamálum, er fyrir hendi sU tilfinn- ing að menn séu i sama báti menn beri sameiginlega mikla ábyrgð á framtið Sambandsins og samvinnuhreyfingar- innar. Þ.að er mikilsvert fyrir Sam- bandið að þessi samábyrgð sé fyrir hendi, þvi hUn leggur grundvöll að sterkri framkvæmdastjórn. Þá tel ég, að vissar tilfinningar sem við i framkvæmdastjórn Sambandsins ber- um gagnvart hver öðrum eigi dýpri rætur i hjörtum okkar en við gerum okkur grein fyrir dags daglega og tengi okkur enn sterkari vináttubönd- um. Þess vegna verður söknuðurinn meiri, þegar félagi fellur frá. Minning- in um Harry Frederiksen er minning um góðan dreng. Hann hafði djUpan skilning á þeim hugsjónum sem sam- vinnustefnan byggist á. Hann var gæddur persónuleika, sem bjó yfir sér- stakri fágun, og prUðmennsku, hóg- værð en glaðværð og hann átti gott með að blanda geði við fólk, þótt hlédrægur væri að eðlisfari. Harry var sérlega iðjusamur og skyldurækni og samviskusemi voru förunautar hans. Mér eru sérstaklega minnisstæðir þrir mannkostir Harrys: Að verða ætið tilbUinn að hlýða kalli, þegar óskað var eftir að hann tæki að sér ákveðin störf eða leysti ákveðin verkefni: hve verkefni voru fljóttt af hendi leyst: og hve pössunarsamur hann var i starfi. Þessir mannkostir, sem hér hafa verið nefndir og aðrir ónefndir liggja að baki þeirrar giftu, sem Harry átti til að bera i störfum. Hann gegndi mjög erfiðu og umfangsmiklu starfi innan Sambandsins en bar gæfu til þess að leysa það farsællega af hendi. Slíkan dóm hlýtur Harry Frederiksen að fá þegar hann er allur. Ég vil að lokum flytja Harry þakkir frá Sambandinu og samvinnuhreyf- ingunni fyrir hálfrar aldar starfið. Ég þakka honum persónulega vináttu og góð kynni um nær 30 ára skeið. Megi blessun guðs fylgja honum i nýjum heimi, þar sem lifsins ljós lýsir á eilífðarbraut. Við hjónin sendum Margréti konu Harrys, börnunum, tengdasyni og litlu dótturfótturinni og öðrum ættingjum okkar innilegustu samUðarkveðjur. Guð gefi ykkur styrk i sorg. Erlendur Einarsson. f Kveðja frá Knattspyrnufélaginu Fram. Harry 0. Frederiksen var einn þeirra, sem tóku þátt i að endurreisa Fram seinast á þriðja áratugnum. Þá hafi félagið verið i mikilli lægð um nokkurt skeið. Svo öflugt var þetta átak, að það var likt og nýir vindar blésu á brott deyfð og drunga. Og nU voru segl þanin til djarflegrar sigling- ar. Með öllu er óvist, að Fram væri við lýði i dag, ef átak þessara manna hefði ekki komið til á réttu augnabliki. Þess vegna standa Framarar i mikilli þakkarskuld við Harry O. Frederiksen og þá mætu menn, sem reistu félagið við og héldu merki þess hátt á loft á næstu árum. Harry O. Frederiksen var ekki að- eins virkur i félagsstörfum heldur einn af beztu kappliðsmönnum Fram á þessu timabili. Hann lék með meistaraflokki og jafnframt gegndi hann störfum i stjórn Fram, ýmist sem ritari eða gjaldkeri, unz hann réðst til starfa erlendis fyrir Samband islenzkra samvinnufélaga 1937. Þá rofnaöi samband hans við félagið, þótt hann fylgdist ætið með þvi Ur fjarlægð. Það var svo fyrir aðeins þremur ár- um, að Harry kom til starfa aftur hjá Fram. Og aftur tók hann þátt i endur- reisnarstarfi. FulltrUaráð félagsins var endurvakið, og vart var hægt að hugsa sér ágætari mann en Harry til að veita þvi forystu. Var hann kjörinn formaður fulltrUaráðsins og gegndi þvi starfi til dauðadags. Fyrir störf sin að iþróttamálum hlaut hann margvis- legan heiður, m.a. var hann sæmdur gullmerki 1S1. NU er skarð fyrir skildi. Af sjónar- sviðinu er horfinn góður og gegn fé- 3

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.