Íslendingaþættir Tímans - 08.03.1975, Qupperneq 4
lagi, sem mikið traust var borið til.
Nýlega hafði hann boðað stjórn félags-
ins á sinn fund til að ræða fjáröflunar-
leiðir vegna þeirra byggingafram-
kvæmda, sem félagið stendur i um
þessar mundir. 1 þeim efnum var hann
stórhuga. Þaðkemur nú i hlut annarra
að taka við merkinu. En áreiðanlega
verður áfram unnið i anda Harrys 0.
Frederiksen.
Um leið og stjórn Knattspyrnufé-
lagsins Fram þakkar þessum látna
forystumanni ómetanleg störf og órofa
tryggð við félagið, er fjölskyldu hans
vottuð dypsta samúð.
Aifreð Þorsteinsson.
t
Sú harmafregn barst mér sunnudag-
inn 2. febrúar, að Harry Frederiksen,
fraökv.stjóri Iðnaðardeildar Sam-
banas isl. samvinnufélaga, hefði látizt
þá um morguninn, nykominn i fri suð-
ur i lönd.
Harry Frederiksen var fæddur i
Reykjavik 15. marz 1913 og þvi aðeins
61 árs, er hann lézt. Foreldrar hans
voru hjónin Aage M.C. Frederiksen og
Margrét Halldórsdóttir.
' Hann byrjaði snemma að vinna,
seldi blöð i Reykjavik, var smali i
sveit, fór á sildveiðar fyrir Noröur-
landi meö fööur sinum, var sendill
o.s.frv. Hann var heldur ekki gamall,
þegar hann byrjaði að vinna hjá S.Í.S.,
aðeins 14 ára.
Það vantaði þvi ekki mikið á, að
hann hefði unniö 50 ár fyrir Samvinnu-
hreyfinguna. Á þessum langa starfs-
aldri var Harry búinn að kynnast
mörgum störfum Sambandsins, bæði
innanlands og utan, þannig að fáir
munu hafa þekkt starfsemi þess betur.
Þegar Iðnaðardeild Sambandsins
var stofnuð, var Harry falið að byggja
hana upp og stjórna henni. Var hann
framkvæmdastjóri hennar frá upphafi
til dánardags.
Þær voru orðnar margar ferðirnar,
sem Harry fór milli Reykjavikur og
Akureyrar frá þvi að Iðnaðardeildin
var stofnuð, en á Akureyri eru verk-
smiðjur S.l.S. aöallega staðsettar.
Undir stjórn Harrys hafa verk-
smiöjurnar margfaldast að stærð og
afköstum. Allar hafa þær verið endur-
byggðar á timabilinu og flestar frá
grunni, og er hver þeirra stærst sinnar
tegundar á lslandi.
Leiðir okkar Harrys lágu fyrst sam-
an i árslok 1949, er ég réðst til starfa
hjá honum i Iðnaðardeildinni. Alla tið
siðan höfum viö haft mikil samskipti
og ævinlega góð.
Harry Frederiksen var einstaklega
samviskusamur og vandvirkur viö öll
4
sin störf. Hann var mikill iþróttamaö-
u® á yngri árum og unnandi iþrótta-
mála til hinsta dags. Hann var sivinn-
andi, enda störfum hlaðinn eins og gef-
ur að skilja. Harry kunni þá list að
segja frá. Oft, þegar hann kom norður
til okkar á Akureyri, var sest niður að
loknudagsverkiogspjallað saman. Þá
var gaman og fróðlegt að heyra hann
segja frá ýmsu, sem á dagana hafði
drifiö. Væri óskandi, að margt af þvi
væri til prentað, þar sem lýsingar hans
voru bæði lifandi og ýtarlegar.
Harry Frederiksen var kvæntur
Margréti Jónsdóttur, Hjartarsonar frá
Saurbæ i Vatnsdal, mikilli ágætiskonu.
Voru þau hjónin mjög samhent um að
skapa fallegt menningarheimili, þar
sem gott var að koma, enda bæði gest-
risin og elskuleg. Börn þeirra eru tvö
Olafur útvarpsvirki og Guðrún, gift
Halldóri Sigurðssyni, endurskoðanda.
Nú er Harry genginn fyrir aldur
fram. Enginn getur um það dæmt,
hvaðbugar heilsu manna, en sennilegt
er, að ofreynsla hafi átt þar mikinn
hlut að.
Ábyrgðarþungi erilsams starfs,
samviskusemi og ósérhlifni, sem eng-
in takmörk eru sett, geta bugað heilsu
hvers manns.
En þótt ævi Harrys Frederiksens
yrði styttri en maður hefði vænst og
óskað, var hann gæfumaður.
Honum holtnaðist sú gæfa að eiga
góöa konu og börn og leysa af hendi
mikið og vandasamt lifsstarf og unna
þvi starfi sinu og ganga að þvi af alúð
og dugnaði.
Viö Norðanmenn kveðjum Harry
Frederiksen með miklum söknuði og
virðingu.
Fjölskylda min og ég vottum frú
Margrétí og bömunum þeirra okkar
innilegustu samúð.
Hjörtur Eirfksson
t
Þriðjúdaginn 18. febrúar, fór fram
frá Dómkirkjunni útför Harry Frede-
riksen, en það var siðla sunnudags-
kvöldsins 2. febr. sl., að okkur hjónun-
um barst sú sorgarfregn að minn kæri
frændi og húsbóndi heföi orðið bráð-
kvaddur suöur á Kanarieyjum þá fyrr
um daginn.
Fljótt skiptast veður i lofti og var
þetta óvænt harmþrungin fregn.en
tveim dögum áður höfðum við kvaðst á
skrifstofunni hans og Harry var svo
hress og ánægður yfir þvi að vera nú
að fara i þriggja vikna fri til sólar-
landa með konu sinni og syni.
Harry Frederiksen var fæddur 15.
marz 1913 i Reykjavik, en foreldrar
hans voru Aage C. Frederiksen vél-
stjóri og Margrét Halldórsdóttir
Frederiksen, en Harry var næstelstur
af sjö systkinum, sex bræðrum og
einni systur.
Harry hóf ungur að árum störf hjá
Sambandi isl. samvinnufélaga og
helgaði hann samvinnuhreyfingunni
alla sina starfskrafta um nær 50 ára
skeiö. Innan samvinnuhreyfingarinn-
ar og út á við gegndi hann mörgum
ábyrgöar- og trúnaðarstörfum sem ég
ætla ekki að rekja hér, þar sem það
verður gert itarlega af öðrum.
Þau eru oröin nokkur mörg árin sem
ég hefi starfað meö Harry i Iðnaðar-
deild Sambandsins og minnist ég nú
þessa ágæta samstarfs með söknuði og
þakklæti. Harry var góður og réttsýnn
húsbóndi, enda virtur af sinu sam-
starfsfólki. Hann var ákveöinn i
skoðunum og vissi hvernig hann vildi
láta vinna og standa að hinum ýmsu
verkefnum fyrir sina deild, jafnframt
þvi sem hann var ætiö tilbúinn til að
hlusta á tillögur og rök sinna sam-
starfsmanna ef svo bar undir.
Þeir urðu oft langir vinnudagarnir
hjá Harry, en starf hans var geysi um-
fangsmikið og erilsamt. Margar urðu
ferðirnar hans til Akureyrar til þess að
sinna málefnum verksmiðja Sam-
bandsins þar, en á Akureyri er islenzk-
ur samvinnuiðnaður hvað blómlegast-
ur. Oft fór Harry til útlanda i við-
skiptaerindum og mætti þar sérstak-
lega nefna margar ferðir hans til
Moskvu i sambandi við ullarvöru-
samninga fyrir Gefjun og Heklu og til
Finnlands vegna sölusamninga á
skinnum og skinnavöru fyrir Iðunni og
Heklu. Fyrir utan dagleg stjórnunar-
störf á skrifstofu sinni hér, þá voru
undir yfirstjórn hans hé.r i Reykjavik
fyrirtækin Fataverksmiöjan Gefjun,
Verzlunin Gefjun, Lager Iðnaðardeild-
ar og Jötunn hf., og svo Verksmiöjan
Höttur i Borgarnesi. Margvisleg
nefndar- og fundarstörf tóku einnig
drjúgan tima i hans daglega starfi.
Harry var mikið fyrir iþróttir á
yngri árum og starfaði mikið fyrir
félag sitt Fram og gegndi þar
trúnaðarstörfum til æviloka. Er hon-
um gafst timi til frá sinum störfum, þá
hafi hann yndi af að geta komist i lax-
veiði eða útreiðatúr, en hann og sonur
hans áttu saman hina ágætustu gæð-
inga.
Harry átti þvi láni aö fagna aö vera
kvæntur góðri konu, Margréti Jóns-
dóttur Frederiksen, sem stóð við hlið
hans i starfi og sá um hið myndarlega
heimili þeirra. Börn þeirra eru tvö:
ólafur sem er útvarpsvirki og Guðrún
sem er húsfreyja og gift Halldóri
Sigurðssyni. Dóttir Guðrúnar og Hall-
dórs er Erla Hrund á fyrsta ári og var
islendingaþættir