Íslendingaþættir Tímans - 08.03.1975, Side 6
Halldór Ásgrímsson
kaupfélagsstjóri og alþingismaður
Fæddur 17. april 1896.
Dáinn 1. desember 1973.
I. Gamla myndin
1 sextiu ár hefi ég átt og haft með
mér, hvar sem ég hefi haft heimili,
mynd af tveim ungum mönnum, sem
mér var annt um að vita, hvernig
farnaðist i lifinu.
Samtimis og jafnlengi hefir annað
heimili haft annað eintak af sömu
mynd i heiðurssæti uppi á þili hjá sér,
hvar sem það hefir búið sér stað. Hús-
bóndinn á þessu heimili var annar
maöurinn á myndinni, Halldór As-
grlmsson, sem siðar varð kaupfélags-
stjóri, alþingismaður, bankastjóri og
margt fleira i þagu hins islenzka
mannfélags. Hinn er sá, sem þessar
linur skrifar.
Myndin var tekin á Akureyri 1915 Vor-
um við þá skólapiltar i gagnfræða-
skólanum þar og vel til vina.
Nú er Halldór Asgrimsson allur.
Hann lézt 1. des. 1973 Um hann hafa
verið rituð skilmerkileg eftirmæli og
vinsamleg i Islendingaþáttum Timans
(4. og 20. tölubl. 1974) og með þeim birt
mynd af honum öldruðum. Mér finnst
sú mynd ekki nógu góð, til þess að
geyma svip hans. 1 hana vantar
æskuna, sem mér er svo minnisstæð
og geðfelld. Ég bið þess vegna Is-
lendingaþætti fyrir gömiu myndina,
sem heimili okkar hafa varðveitt og
gefið sérstakt gildi með þvi.
Ekki óraði okkur Halldór Asgrims-
son fyrir þvi, þegar leiðir skildu á
Akureyri eftir skólaslit 1916, að við
mundum starfa saman siðar. Þá var i
meðvitund manna miklu lengra milli
Austurlands og Norðurlands en nú er
oröið.-
Eg vona að mér verði ekki lagt það
út til ofmetnaðar, þótt myndin af mér,
sem ennþá á að heita ofan moldar,
fylgi mynd hins látna vinar mins. Hún
er eins og sönnun þess, að viö vorum
félagar meira en i orði.
Ég sé ástæðu til þess að geta þess, að
okkur H. A. hugkvæmdist, þegar hálf
öld var liöin frá töku myndarinnar, að
gripa tækifæri hjá myndasmiðog láta
6
taka af okkur mynd i sömu steliingum
og á æskudagamyndinni.
En okkur brá i brún, þegar við sáum
nýju myndina. Voru þetta sömu
mennirnir? Nei, þetta var misheppnað
verk hjá smiðnum! Við urðum að sitja
fyrir aftur! En okkur var ráðlagt að
reyna það ekki. Meðal annarra
ráölögöu konur okkar þetta. Þær létu
brosmildar i ljós að við mættum vera
ánægöir með niðurstöðuna. En við
vildum ekki hlusta á það! En samt
gerðum við ekki aðra tilraun. Létum
það svona hávaðalaust farast fyrir. En
dálitið vorum við gramir undir niðri.
En við hvað gramir? Gramir yfir þvi,
að vera orðnir aldurslegnir eftir þessa
hálfu öld, sem liðið hafði?
Auövitaö höfðum við bæði tapað og
grætt. En það, sem tapast, liggur
venjuiega meira i augum uppi við
samanburðinn en hitt, sem græðist.
Ég geymi seinni myndina lika, en
birti hana ekki hér. Hygg að hún
mundi frekar verða til truflunar þvi,
sem ég vil koma á framfæri.
II. Fyrstu kynnin.
Fyrstu kynni okkar Halldórs Ás-
grimssonar urðu fyrsta kvöldið mitt i
heimavist gagnfræðaskólans á Akur-
eyri haustið 1914. Margir skólasveinar
höfðu komið i vistina þann dag. Eftir
kvöldmat söfnuðust þeir saman úti á
skólalóðinni. Dimmt var, nema þar
sem geisla lagði frá gluggum. Blóðið
ðlgaði af fjöri til átaka. Menn fýsti að
vita, hvað I öðrum byggi. Allt i einu
hófust almenn áflog á stóru svæði.
Hver hafði þrifið til þess næsta. Ég
letni á Halldóri — eða hann á mér.
Hvorugur dró af sér. Ég var talsvert
vanur tuski og islenskri glimu. Halldór
hafði ekki iðkað glimur. Ég naut þess.
Það er mikill aðstöðumunur milli
viðfangsmanna, ef annar kann glinu,
en hinn ekki. Halldór tók mjög vask
' lega á móti, en spurði svo: Hvað ertu
gamall? Ég ságði aldurinn. Hann
mælti hressilega: ,,Nú, þú ert ári eldri
en ég — þá gerir þetta minna!”
Alloft minntumst við Halldór siðar á
ævinni á þennan fyrsta fund okkar.
Fannst eðli beggja hafa komið þar
fram, — og ævilöng vinátta vel mátt
grundvallast á þessum kynnum.
Strax eftir þetta kvöld mat ég.
Halldór mikils og sakna þess nú inni-
lega að geta ekki lengur gengið til
funda við hann.
III. Uppruni og starfasvið
Halldór Asgrimsson var fæddur 17.
april 1896 að Brekku i Hróarstungu i
N-Múlasýslu. Faðir hans var Ásgrim-
ur bóndi þar, siðar bóndi á Grund i
Borgarfirði eystra, Guðmundsson
bónda i Snotrunesi þar i firði, As-
grimssonar. Móðir hans, kona föður
hans, var Katrin Helga Björnsdóttir
bónda i Húsey i Hróarstungu, Halls-
sonar.
Halldór stundaði nám i unglinga-
skóla i Borgarfirði eystra einn vetur
1910-1911. Gerist nemandi i gagn
islendingaþættir