Íslendingaþættir Tímans - 08.05.1976, Síða 9

Íslendingaþættir Tímans - 08.05.1976, Síða 9
( Jónína Jónsdóttir frá Jómsborg °g greip oft til þessarar kunnáttu sinn- ar þegar fólk þurfti á aö halda minni háttar aögeröum, enda var ekki alltaf auöhlaupiö aö ná i lækni til Fáskrúös- fjaröar. Ég man t.d. aö eitt sinn var hannsóttur tvisvar á sama sólarhring yfir f jörö til aö kippa i axlarliö á einum °g sama manni. A Einarsstööum var allt tal um greiöasemi látiö kyrrt liggja, svo ég veit ekki hve þakklát þau væru mér fyrir þetta. En öll berum viö viröingu fyrir foreldrum okkar, hvort þau eru 1Ifs eöa liöin og alltaf kemur upp i hugann allt þaö bezta frá uppvaxtar- árunum, skjóliö, öryggiö,sem viöhöfö- úm i foreldrahúsum, og hafi einhver vandamál veriö, þá finnum viö, þegar viö eldumst, aö sömu vandamálin endurtaka sig alltaf og misjafnlega erfitt er aö leysa þau. Aö endingu, blessuö skal minning foreldra minna. Reykjavlk april 1976 Borghildur Þóröardottir Ljóðabrot iLag: Vormenn tslands.) Milli himinhárra fjalla heilladisir standa vörö, t*ar i hjúpi hvitra mjalla hvila veit ég litinn fjörö. Þangaö hjartans straumar streyma, stöðugt þangaö beinist þrá, á andinn ennþá heima eins og lifs mins vori á. f“arna björtu bernskuárin hirtust mér I gleöidraum, Þarna felldi fyrstu tárin fhrátt barn viö timans straum. t'arna ástúö minnar móöur minum sorgum huggun fann. ^arna fyrst mig faöir góöur fræddi um Guö og sannieikann. var ljúft aö lifa og vaka, Hfsins sumarmorgni á, — yndissöngva undir taka, undralönd i hilling sjá, finna blíðan blæ á vanga ulómin lesa um grund og hól. Sllk var æska gæfuganga glaðri undir himinsól. Enn frá blómum æskudaga 'iminn leggur fyrir vit, ennþá finn ég fanga og draga forna timans sólskinsglit. Minninganna margt er sporiö u^arkaö djúpt I helga jörö. Aldrei gleymist æskuvoriö yndislegt viö Stöövarfjörö. Björn Jónsson frá Kirkjubóli. ís|endingaþættir Mig langar aö setja á blaö nokkur kveöjuorö um hana ömmu mfna, þótt hún hefði sjálfsagt látiö sér fátt um finnast, þvl amma Iét ævinlega h'tiö yfir sér. baö sem henni haföi áunnizt um dagana þakkaöi hún guöi og góöu fólki. Amma fæddistaö Efri-Holtum undir Eyjafjöllum 11. júll 1892. Foreldrar hennar voru Karólina Oddsdóttir og Jón Sighvatsson bóksali. Þau hjónin fluttust til Vestmannaeyja áriö 1894. Börn þeirra voru Þorvaldur, sem drukknaöi i sjóróöri i Vestmannaeyj- um I blóma llfsins. Sagt var aö hann heföi eftirlátiö unglingspilti fleka þann sem hann heföi getaö bjargaö sér á. Oddur, sem fluttist til Vesturheims, Sæmundur kaupmaður og útgeröar- maöur, Þorsteinn kaupmaöur og Kristin gift Jóni Waagfjörð bakara- meistara. Amma var yngst og sú eina eftirlifandi af systkinum sinum. 011 voru þau systkinin mesta mynd- arfólk, hávaxin og glæsileg á velli. Minnist ég þess aö amma var mjög stolt af systkinum sinum og sagöi oft sögur frá björtum bernsku- og ung- lingsárum. 8. nóv. 1917 giftist amma Birni Jónssyni frá Akurey I Landeyjum og eignuðust þau hjónin fjögur börn, stúlkubarn er lézt nokkurra mánaöa, Karólinu, búsetta I Hafnarfirði gifta Lárusi Jónssyni organleikara, Odd, sem léztáriö 1950 og Björney hjúkrun- arkonu á Isafiröi gifta MagnUsi Eiias- syni. En ýmislegt átti amma eftir aö reyna um dagana. Eitt sinn dreymdi hana draum. Henni fannst hún vera aö ganga upp f jallshllö. Leiöin var löng og torsótt. Björn bóndi hennar gekk henni viö hliö og naut hún stuönings frá honum. En skyndilega er hann kominn á undan henni og sér til angist- ar sér hún hann hverfa 1 fjarska. Veröur hún nú aö ganga ein og óstudd. Var leiðin framundan þaö erfiö aö hún var aö þvl komin aö láta bugast. En eftir nokkurn spöl finnst henni hún vera komin meö staf sér viö hönd og sér fram á aö hann muni létta sér gönguna. En fyrr en varirer stafurinn horfinn llka. Hún er nú komin nokkuö vel áleiöis, en s^rt þykir henni aö missa stafinn. En smám saman finnst henni birta til og hún sér fram á aö leiöin framundan sé mun léttari yfir- feröar. Segja má aö draumur þessi hafi ver- iö fyrirboði og táknrænn fyrir llfsferil ömmu I stórum dráttum. Mann sinn missti hún þegar hún gekk meö 4. barn þeirra hjóna. Má nærri geta aö erfiöur var róöurinn fyrir ekkju meö börn á framfæri 1 þá daga, en sem dæmi um dugnaö hennar og þrautseigju má nefna aö þar aö auki annaöist hún for- eldra sina sem komnir voru aö fótum fram. Amma fluttisttil Hafnarfjarðar áriö 1946 og sá nú fram á bjartari framtiö, þar sem börn hennar voru nú komin til manns. Hún og Oddur sonur hennar réöust i aö byggja aö ölduslóö 1 I Hafnarfiröi. En brátt dregur sky fyrir sólu og segja má aö þá hafi annað atr- iöi draumsins komiö fram: Oddur deyr skyndilega frá hálfunnu verki 28 ára gamall. Þetta varö ömmu erfitt timabil, en hún átti sina sterku trú sem aldrei brást. Góöir menn hjálpuöu henni til aö gera húsiö Ibúöarhæft og var amma þeim æviniega þakklát, þvi hún gleymdi aldrei þvi sem henni var vel gert. Eins og fyrr segir var amma mjög trúuö kona og sótti styrk sinn I trúna. Sterk og stolt var hún og þannig mun ég minnast hennar. Hún baö aldrei um neitt tvisvar sér til handa og setti metnaö sinn I aö geta séö fyrir sér sjálf. Aö vorkenna sjálfri sér var henni fjarri skapi, og ef hún fyrirleit eitthvaö var það græðgi og undirlægjuháttur. Þeir vinir sem hún eignaöist, voru vinir fyrir lifstiö, en hún haföi lært þaö af lifinu aö búast ekki aö óreyndu viö miklu af vandalausum. Hún lagöi mikiö upp úr eindrægni f jölskyldunnar og gat þar veriö kröfuhörö á sfna visu. Sföustu árin dvaldi amma á Isafiröi hjá dóttur sinni og tengdasyni og er mér óhætt að segja aö fáir hafi fengiö betri umönnun á ævikvöldinu. Amma hélt öllu sinu til hinztu stundar og ein- stök var hin sifellda umhyggja hennar þar sem hún prjónaöi og saumaöi handa barnabarnabörnunum fram á siöasta dag. Þrátt fyrir tregann er ljúft aö hugsa sér hana gengna, sadda lffdaga I sátt viö allt og alla til fundar viö ástvinina. Nafna 9

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.