Íslendingaþættir Tímans - 08.05.1976, Blaðsíða 10

Íslendingaþættir Tímans - 08.05.1976, Blaðsíða 10
Karl Valdimar Eiðsson skipstjóri Vinur minn Karl Valdimar Eiðsson skipstjóri og útgerðarma&ur er horf- inn héðan i blóma lifsins frá konu og tveimur ungum börnum og öllu þvi, sem slikir dugnaðar- og athafnamenn eiga jafnan eftir ógert. Helfregn þessi barst mér til eyrna er ég hringdi til systur minnar þann 17. marz sl. héðan frá Massawa í Eritreu (Eþiópiu), þarsem ég er nú staddur á- samt fjölskyldu minni, en hér er ég með bát þann, sem ég er skipstjóri é, i slipp. Ekki er auðvelt að trúa slikum fregnum og sizt af öllu hvarflaði að mér, er ég átti við hann simtal hress- an og kátan að vanda heima á Fróni i byrjun janúar sl., að það yrði okkar siðasta simtal, en óveður hamlaði þá þvi, að við gætum hitzt, eins og við vorum búnir að ætla okkur. Að vanda vaf Valdimar kátúr og leit björtum augum á komandi vertið. Hann var meðal annars að segja mér frá ýmsu, sem hann var nýbúinn að gera við bátinn sinn til að auka öryggi, t.d. kaupa nýjan radar og var bátur hans mjög vel útbúinn til að mæta átökun- um á komandi vertíð, þó vist aldrei sé nóg að gert gegn islenzku óveðri. Valdi Eiðs, eins og hann jafnan var kállaður meðal vina og kunningja, fórst með skipi sinu m/b Hafrúnu frá Eyrarbakka ásamt allri áhöfn i fár- viðri við SV-strönd tslands þann 2. marz sl. Valdimar var fæddur á Akureyri 5. júni 1943 og ólst þar upp i stórum syst- kinahópi oft viö erfiö skilyrði, þvi fööur sinn missti hann ungur, en móð- irin vann hörðum höndum til aö koma öllum barnahópnum upp, enda einstök dugnaðarmanneskja. Snemma var þvi farið aö vinna til að létta undir með móður sinni, fyrst i sveit á hyerju sumri að Stóra-Dunhaga i HörgáVdal, en svo lá leiðin á sjóinn og upp frá þvi var sjórinn hans vettvangur. Kynni okkar hófust i Barnaskóla Akureyrar, siöan vorum viö saman fjóra vetur i Gagnfræðaskólanum á Akureyri og út- skrifuðumst viö þaöan árið 1960. Einn- ig vorum við samferöa i Stýrimanna- skólanum i Rvik. veturínn 1964—1965. Þann þriðja júni 1958 byrjuðum viö báðir á sjó rétt um fimmtán ára að aldri, var það á b/v Norðlendingi ÓF- 4. Þetta var ógleymanlegt sumar og margs var siðar minnzt frá þessum bernskutimum okkar á sjónum, bæði i gamni og alvöru. Valdi varð siðar meir mjög eftirsóttur i skipsrúm fyrir dugnað og mjög góða sjómennsku, og hafði hann orðið mjög góða og fjöl- breytta reynslu af sjómennsku við ís- landsstrendur, enda aldrei við annað unnið frá unga aldri. Jafnan var Valdi lengi i sama skipsrúmi og með sömu skipstjórunum ár eftir ár og sýnir það bezt hve eftirsóttur hann var i skips- rúm. Allt nám lá mjög opið fyrir honum og þurfti hann ákaflega litið fyrir lær- dómi að hafa, enda mjög vel gefinn maður. Valdimar var einn af fáum sem fékk bókaverðlaun úr minningar- sjóði Páls Jónssonar við slit Stýri- mannaskóians i Rvik, árið 1965 fyrir afbragðs námsárangur. Einnig var hann mjög vel lesinn og viða heima, einstaka frásagnarlist hafði hann til að bera og hrein unun að heyra hann segja sögur af ýmsu, sömu sögur duttu alveg niðurog uröu harla litlar i munni annarra. A árinu 1964 flyzt Valdimar austur að Eyrarbakka og kvænist þar eftirlif- andi konu sinni Bryndisi Kjarlansdótt- ur. Upp frá þvi rær hann mest þaðan á ýmsum bátum en þó mest með tveim- ur skipstjórum oft bæði sem mat- sveinn og stýrimaður i einu, en þó mest sem stýrimaður eftir aö hann öðlaðist til þess réttindi. Ariö 1971 ræðst Valdi ásamt félaga sinum Ragnari Jónssyni vélstjóra i það stórvirki að kaupa eigiö skip, keyptu þeir m/b Hafrúnu AR-28 af Hraðfrystístöð Eyrarbakka h/f.'m/b Hafrún var 65 lesta eikarbátur og var ætið hið mesta happafley, sem ávallt gekk mjög vel á og vetrarvertiðina 1974 var Valdimar aflakóngur á Eyr- arbakka. En um haustið 1974 verða þeir fyrir þvi óhappi aö missa þann bát i bruna skammt austur af Vestmanna- eyjum, en allri áhöfn var bjargað af bát frá Eyjum. Ekki lagði Valdi Eiös árar i bát við þetta óhapp heldur ræðst á ný og nú einn i bátakaup og kaupir m/b Ólaf KB um 80 lesta stálbát, sem hann siðar skirir Hafrúnu. Þetta var um áramót- in 1974—75. Flestum fannst heldur mikið færzt i fang með þessum kaup- um, en svona eru jafnan dugnaðar- menn. Ætið mun ég minnast þess, er Valdi leiddi mig stoltur um hinn nýja bát sinn til að sýna mér hitt og þetta allt frá stefni og aftur i skut, enda mátti hann vera stoltur. Þetta var mjög fallegt fley og vel útbúið skip. En jafnan er stutt á milli skins og skúra hjá sjómönnum. Á sl. hausti, er ofsa- veður af SV eyddi skipastól Eyrbekk- inga, eða svo til, var Valdi svo forsjáll eða veðurglöggur, að hann sigldi bát sinum daginn áður út i Þorlákshöfn i örugga höfn. Þá var m/b Hafrún eini sjófæri báturinn á Bakkanum, en nú svo skömmu siðar er allt búið. Geysi- legt áfall fyrir smápláss, góður bátur með topp áhöfn og jafnvel að mestu menn frá Eyrarbakka, dugandi og góðir sjómenn ásamt vönum og að- gætnum formanni. A siðast liðnu hausti flutti fjölskyld- an i nýtt hús sem þau hjónin höfðu reist af miklum dugnaði og bjartsýni. Samveran i þessu glæsilega húsi var alltof skammvinn, en það mun ætið verða gott minnismerki um dugnað Valda, þar sem hann eyddi öllum sin- um fritima frá annars erfiðu og anna- sömu starfi. Mikil og góð fjölskyldu- tengsl voru með okkar fjölskyldum, ótaldir eru þeir dagar, sem við eydd- um saman i útilegum á fallegum stöð- um á okkar landi eða i heimsóknum hvor hjá öðrum. Jafnan var Valdi hrókur alls fagnaðar á góðum stund- um og ógleymanlegur persónuleiki, sem maður veröur ávallt þakklátur fyrir aö hafa kynnzt, þó þau yröu alltof stutt. Ég læt nú þessum fátæklegu orðum minum skrifuðum héöan frá Rauða- hafinu úr um 9000 km fjarlægð senn Iokiö, enda veit ég að vini minum var Iitiö gefið um hól og sizt af öllu um sjálfan sig. Ég og fjölskylda min sendum Bryn- disi og börnunum tveim, Kjartani og Drifu, og öðrum ættingjum okkar inni- legustu samúðarkveðjur og vonumst til að þeim megi auðnast styrkur til að 10 íslendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.