Íslendingaþættir Tímans - 08.05.1976, Síða 15

Íslendingaþættir Tímans - 08.05.1976, Síða 15
Barnamynd 1943, vatnslitir. Barbara myndir Barböru hefðu komið fyrir alinenningssjónir á sýningu sem Magnús A. Arnason hélt haustið 1936, var það samt ekki fyrr en á samsýn- ingu þeirra hjóna i Markaðsskálanum við Ingólfsstræti haustið 1938 sem list hennar varö mönnum opinber. Og raunar var ekki trútt um að hún væri fólki um leið talsverð opinberun, þvi slikan finleika handbragðs hafði varla fyrir augu þess borið, nema á sýningu kinverskra listmuna sem frú Oddný Sen hélt á sama stað og um likt leyti. Myndir Barböru voru flestallar tré- stungur, þrykktar af æðalausum, slip- uðum viði, og myndefnin jafn ljóðræn °g innileg sem túlkun þeirra var tæknilega fullkomin.” Nasareddin og asninn, bóka- skreyting I skóla hafði Barbara lagt mesta stund á grafik, málmristu og tré- stungu, og vatnslitamyndir gerði hún ekki fyrr en hér á tslandi. 1 fyrstu teiknaöi hún mikið i enskar bækur, en siðar i islenzkar. Fyrsta islenzka bók- ln, sem hún myndskreytti var Leit ég suður til landa, safn erlendra ævintýra 1 samantekt Einars Öl. Sveinssonar (Mál og menning 1944), en höfuðverk hennar á þessu sviöi er myndbálkur- lnn við passiusálma Hallgrims Péturs- •slendingaþættir sonar,ein mynd við hvern hinna 50 sálma (Menningarsjóður 1961) Frum- myndirnar eru nU i eigu Listasafns ís- lands. 1 annan stað málaði Barbara og teiknaði kynstur af barnamyndum, sem margar hveijar þykja frábærar. Þá eru vel kunnar veggskreytingar hennar i Melaskólanum, Vesturbæjar- apóteki ogSundlaug Vesturbæjar. Upp úr 1950 tók hún að gera tilraunir með ásaumuð myndklæði af ýmsu tagi, veggteppi og myndskerma, sem hún sýndi bæði i London og Paris, og þóttu allmikil nýlunda þar. Vatnslitamyndir málaði Barbara margar á ferðum þeirra Magnúsar og náði afar góðum tökum á þeirri tækni. Loks berað geta leiktjalda hennar við barnaleikrit MagnUsar, Glókoll, sem voru þannig unnin, að málað var beint á 10x10 sm glerplögu, og þannig búin til litskyggna, sem siðan var varpað upp á hvitt gjald. Mun þetta hafa verið uppfinning hennar. Arið 1961 hélt FIM yfirlitssýningu á verkum Barböru i Listamannaskálan- um, i tilefni af tvöföldu afmæli hennar, þvi þá var Barbara fimmtug.auk þess sem 25 ár voru liðin síðan hún kom hingað fyrst. Hafði félagiö áöur hald- ið slfka sýningu á verkum Þorvalds Skúlasonar, Svavars Guðnasonar og Snorra Arinbjarnar. Um þessa sýningu segir Asgeir Bjarnþórsson m.a. i Timanum, að bersýnilega hafi Barbara ekki óttazt að eyðileggja málarahæfnina með þvi að „læra að teikna”, en Björn Franzson segir i Þjóðviljanum : „Það er margt sem til þess ber, hversu fágætlega eftirtektar- verð þessi sýning hlýtur að teljast. Fyrst mætti nefna fjölbreytni hennar bæði um aðferðir og viðfangsefni. Barbara má heita jafnvig á allar þær margvislegu tæknitegundir, sem hún beitir, hvort sem um er aö ræða teikn- ingu eða meðferð vatnslita, tréristu, bókaskreytingu, veggtjaldasaum eða annað, og aö myndefni veröur henni himinn, haf og hauður jafnt sem jurtir, menn og dýr, hugmyndir, ævintýri, þjóðsögur, og þar fram eftir götun- um.” Björn telur athyglisvert hiö háa gæöastig sýningarinnar, og hina óskeikulu tæknikunnáttu, bæði i teikn- un og meöferð lita. Og hann klykkir út: „Barbara Arnason er vissulega annað og meira en handlaginn listmuna- smiður. Hún er sannarlega mikill myndlistarmaður, svo að vér eigum ekki aðra meiri núlifandi á landi hér.” Og nú er Barbara Arnason öll. HUn hafði til aö bera þann hæfileika, sem löngum þótti einkenna þjóð hennar, aö vera jafnan fremst i flokki án þess að vart yrði byltinga eða umróts. Þvi list Barböru breyttist mikið með timan- Tússjteikning. Mörgum þótti gæta austurlenzkra áhrifa i hinu fin- gerða flúri. um, þótt aldrei rofnuðu tengslin við upprunann, skreytilist og öguð vinnu- brögð. Þegar hún var spurö þess hvaða list heföu haft mest áhrif á hana (Timinn 20. april 1961), taldi hún fyrst hellamálverkin I Lascaux i Frakk- landi, sem eru 30,000 ára gömul, en næsttaldi hún nútima höggmyndalist, einsogmyndir Henrys Moore. Þvi list- in er löng þótt lifið sé stutt. Siguröur Steinþórsson 15

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.