Íslendingaþættir Tímans - 19.01.1978, Blaðsíða 2

Íslendingaþættir Tímans - 19.01.1978, Blaðsíða 2
ar ég leit fyrst augum húsiö sem viö áttum aö búa i, mér fannst þaö llta út eins og kassi. Ekki var ég biiin aö vera marga daga á Hvammstanga þegar mér fannst aö ég yröi aö skrifa ömmu og afa og segja þeim alla feröasöguna og lýsti ég öllu sem fyrir augun bar. Þaö var ekki meiningin aö ég skrifaöi endurminningar um mig, en þaö er nú einu sinni svona, aö þegar ég tek mér penna f hönd, þá er þaö svo dtal margt sem aö kemur upp i huga minn og er þaö komiö á pappirinn fyrr en varir. bá slæ ég botninn i þessi fátæklegu orö. Ég sendi ástrikum afa minum Birnu móöursystur minni, sem annast um hann og öllum aöstandendum inni- legar samúöarkveöjur og vona ég aö góöur guö styrki ykkur öll. Hildur Kt. Jakobsdóttir Hvammstangabraut 15 Hvammstanga f Þann 29. september siöastliöinn andaöist aö heimili slnu, Ingimars- stööum á Þórshöfn frú Oddný Friö- rikka Arnadóttir, 84 ára aö aldri. Meö henni er til foldar hnigin glæsi- leg og mikilhæf kona, minnisstæö öll- um þeim sem kynntust henni. Naut hún,aö veröugu vinsælda og viröingar þar nyröra og bar margt til. Hún stóö um langt skeiö i fremstu röö þeirra er unnu aö márefnum Kvenfélags Lang- nesinga, hún var einnig um langt ára- bil organisti I Sauöaneskirkju, stjórnaöi kirkjukór sóknarinnar, kenndi söng viö barnaskólann á Þórs- höfn. Siöast en ekki sizt var hún gædd sliku glaölyndi, ljúflyndi og góövild aö öllum hlaut aö liöa vel I návist hennar. Fædd varhún aö Felli I Vopnafiröi þ. 16. júlf árið 1893. Foreldrar hennar voru Arni póstur Sigurbjörnsson prests aö Sandfdli og Kálfafellsstaö Sigfúss • prests I Hofteigi, Finnssonar arprests i Þingmúla, Hallgrlmssonar og kona hans, Þórdis Benediktsdóttir, Einarssonar Eirlkssonar bónda aö Brunnum i Suðursveit, Einarssonar. Sex ára gömul tóku hjónin á Skeggjastööum I Bakkafirði, séra Jón Halldórsson og Soffla Danlelsdóttir Oddnýju I fóstur, og ólu hana upp sem eigin dóttir væri. Naut hún hjá þeim hins bezta atlætis og uppeldis. Séra Jón fékk Sauöanes áriö 1906 og þar liföi Oddný sin æskuár. 13. janúar áriö 1912 giftisthún Ingi- mar Baldvinssyni, miklum ágætis og dugnaöarmanni. Ungu hjónin dvöldust þó áfram i Sauöanesi I 3 ár og störfuöu aö búi séra Jóns. / En áriö 1915 fluttust þau til Þórs- 2 hafnar og hafa átt þar heimili sitt slöan. Ingimar geröist bóndi á hluta þeim af Syöra Lóni er hann haföi fengiö I sinn hlut eftir fósturforeldra sina, Jó- hann Jónsson borgara Þórshöfn og konu hans Arnþrúöi Jónsdóttur og ungu hjónin settust aö I húsi þeirra sem enn stendurog mun vera elzta hús á Þórshöfn. Lét Ingimar endurbæta þaö og lagfæra verulega meðan þau bjuggu þar.Ogi þessu húsi bjuggu þau Ihart nær hálfa öld viö mikil umsvif og fjölþætt enda heimiliö löngum mann- margt. Þar var um langt skeiö póstaf- greiösla og simavarzla sem Ingimar haföi á hendi. Búskap rak hann einnig eins og áður var getiö og trúnaöarstörf komu einnig i hans hlut. En hann var frábær og dugnaði og áhuga og lét sér fátt I augum vaxa. Og húsfreyjan lét sinn hlut ekki eftir liggja siöur en svo. Þau eignuöust stóran og friöan barnahópsem þau studdu til þroska og mennta.en börnin uröu ellefu. 1. Soffia Arnþrúöur gift Helga Guönasyni póstmeistara á Þórshöfn, ættuöum frá Karlskála viö Reyöar- fjörö. 2. Hólmfriöur Þórdls ekkja Karls sáluga Hjálmarssonar kaupfélags- stjóra á Þórshöfn og viðar. 3. Helga Aöalbjörg, sem lézt áriö 1945 I aldursblóma. Hún var gift Björgvin Sigurjónssoni vélstjóra frá Vestmannaeyjum. 4. Steinunn Birna, giftSigurði Sigur- jónssyni, útgeröarmanni á Þórshöfn. 5. Arnþrúður, gift Jóni Kristinssyni forstööumnni elliheimilanna á Akur- eyri og i Skjaldarvík. 6. Halldóra, gift Jóhanni Gunnari Benediktssyni, tannlækni á Akureyri. 7. Oddný Friörikka ekkja Ásgeirs heitins Hjartarsonar, sagnfræðings og bókavaröar í Reykjavlk. 8. Jóna Gunnlaug, áöur gift Daviö Sigurössyni framkvæmdarstj. 1 Reykjavík. 9. Jóhann forstjóri á Akureyri kvæntur Guörúnu Helgadóttur, 10. Ingimar, sóknarprestur og odd- viti i Vik i Mýrdal kvæntur Sigriði Sigurgislasóttur. 11. Arni Sigfús Páll, sem lézt I frum- bernsku áriö 1935. Um vorið 1963 hóf Ingimar byggingu nýs húss á jaröarparti Syöra Lóns, sem hann á og aö hausti 1964 var þar risiö smekklegt og stllhreint hús, þar sem til alls var vandaö utan húss sem innan. Og þar hafa þau hjónin átt heimili sitt siöan, friösætl, smekklegt og fagurt heimili. Frú Oddný heitin var þegar á bernskuárum mjög hneigö fyrir tónlist og söng, og fékk nokkra undirstööu- menntun á þvi sviöi. Ofan á þá undir- stööu byggöi hún siöan af kostgæfni meö sjálfsnámiog æfingum. Og þegar hún var aöeins 14 ára hóf hún aö leika á orgeliö I Sauöaneskirkju viö messur og aörar kirkjulegar athafnir. Og ávallt siban var tónlistin ein kær- asta tómstundaiöja hennar. Aöur hef égminnzt á störf hennar á þessu sviöi I þágu kirkju og sveitafélags. En heimiliö naut ekki siöur þeirrar unun- ar og sálubótar, sem tónlistin megnar aö veita. Félagsmál lét Oddný llka til sln taka. Hún starfaöi mikiö i Kvenfélagi sveitarfélags síns, var iöulega I stjórn þessog á stundum fulltrúi þess á sam- bandsþingum Kvenfélaganna nyröra. Ég kynntist Oddnýju sálugu fyrir ellefu árum, er ég og fjölskylda mln fluttist i Sauðanes. Þá var hún enn organisti Sauöanessóknar. Hreifst ég strax af lifandi áhuga hennar á söng- málum, svo og færni hennar, dugnaöi og smekkvisi sem kirkjuorganisti. En aölaöandi og elskulegt viömót þessarar glæsilegu konu leiddi fljót- lega til einlægrar vináttu milli okkar og heimila okkar. A þá vináttu bar aldrei skugga. Og upp rifjast margar ljúfar minn- ingar frá samverustundum liöinna ára. Það var alltaf hátiö aö koma 1 Ingi- marsstaöi til Oddnýjar og Ingimars. Innileg gestrisni, friösæld og hógvær glebi heilsaöi gestum. Þar leiö öllum vel. Oddný heitin var ekki aöeins vel gef- in kona, hún var einnig i ríkum mæli gædd þvl hlýja hugarþeli, sem öllum vildi vel. Glaölyndi var henni eiginlegt, og elskulegt viömót var henni samgróiö. Mikið var ævistarfiö og fagurt varö ævikvöldiö. Umvafin var hún ástúö og umhyggjubarna sinna og barnabarna. Harm og sársauka haföi hún oröið aö reyna, missi bama og síöast sviplegan missi tveggja dóttursona, sem voru henni ástfólgnir, enda aldir aö nokkru upp hjá henni. Slíkar stundir bar hún meö stillingu. Harma sina bar hún ekki á torg. Þ. 8. október siðastliöinn fór útför hennar fram með húskveöju á heimili hennar og kveöjuathöfn I Sauöanes- kirkju, þar sem hún haföi sjálf átt svo margar helgar og dýrmætar stundir. Fylgdi henni fjölmenni hinztu förina og kom þar fram, hve hún var vin- mörg. Siðbúnar þakkir mlnar, konu minn- arog barna, fylgja fátæklegum minn- ingaroröum. Þakkir fyrir aö hafa eignazt vináttu göfugrar konu. Hjartanlegar samúöarkveöjur sendi islendinqaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.