Íslendingaþættir Tímans

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Íslendingaþættir Tímans - 19.01.1978, Qupperneq 16

Íslendingaþættir Tímans - 19.01.1978, Qupperneq 16
Stefán Olafsson frá Kalmanstungu Stefán ölafsson fæddist 14. júli 1901 og lézt 18. sept. 1977. Hann var sonur Ólafs Stefánssonar, bönda I Kalmans- tungu, og konu hans Sesselju Jónsdótt- ur frá Galtarholti. Stefán var yngstur þriggja systkina, sem upp komust.Hin voru Ólöf kona Siguröar Gíslasonar á Hamraendum, dáinfyrir nokkrum árum og Kristófer fyrrum bóndi i Kalmanstungu. Stefán fór ungur i Hvitárbakkaskóla ogsi"6an á bændaskólann á Hvanneyri. Um tvitugt fór hann til Skotlands og vann þar á búgaröi i eitt ár. Náði hann mjög góöum tökum á ensku og kom þaö sér oft vel fyrir hann siöar, þegar útlenda feröamenn bar aö garöi. Hinn 17. sept. 1930 kvæntist Stefán Valgeröi Einarsdóttur, Pálssonar, prests I Reykholti. HUn var þá nýkomin heim frá Ame- riku. Haföi hún numiö hjúkrunarfræöi iSkotlandi og starfaö siöan viö sjúkra- hús i Amerikuf 5ár. Þau hófu búskap I Kalmanstungu og bjuggu þar 1 tvibýli viö Kristófer, bróöur Stefáns. - Stefán og Valgeröur eignuöust þrjú börn: Ólaf lögfræöing, starfar i fjár málaráöuneytinu, Jóhönnu Helgu Lind, sem giftist i Bandarfkjunum og fluttist siöar til Brasiliu meö manni sinum og þrem börnum, og Gunnlaug Kalman sem býr með konu sinni Bryndfsi Jónsdóttur i Kalmanstungu, eiga þau þrjú börn. Stefán var hiö mesta glæsimenni, fríður sinum, mikill á velli og rammur aö afli. Hann var hógvær f orðum og fasi og haföi næmt skipskyn. Hann haföi góöa frásagnargáfu og haföi gaman af aö segja frá spaugilegum at- vikum en geröi þaö ávallt græsku- laust. Þó aö hann segði frá kröftum annarra og afrekum, minntist hann aldrei á sjálfan síg i þvi sambandi. Eru þó til ýmsar sögur af kröftum Stefáns og vaskleika, en þær veröa ekki raktar hér. Stefán var ekki framgjarn en vann eingöngu aö búi sinu. Kalmanstunga erlandmikilfjallajörö.þar semoft var mikiðaf fugli og veiði er góð i vötnum. Þeir Kalmanstungubræöur stunduöu veiöiskap og voru fengsælir. Stefán var afbragös skytta og missti sjaldan marks. Hann haföi yndi af veiöiferöum og oft voru gestir teknir með i slikar feröir. Á þeim feröum kynntust menn hinu rólega en ákveöna fasi hins æföa veiöimanns, sem umgekkst alla, menn ogskepnur, meöhægö og elskulegheit- um. Þó aö Stefán legði litt fyrir sig smiö- ar, duldist það engum, sem til sá, aö hann kunnivel aö halda á verkfærum. Hann byggöi þær byggingar á jöröinni og ræktaöi þaö land, sem þurfti til hag- kvæms búrekstrar. Þeir bræöur, Stefán og Kristófer, komu upp rafstöö áriö 1930. Var þaö erfiður fjárhags- baggi aö bera framan af en vel var til verksins vandað og rafstööin er enn starfrækt og framleiðir allt þaö raf- magn, sem bæöi heimilin þurfa til allra nota. Þrátt fyrir sina miklu likamsburöi var Stefán lengi heilsutæpur og átt' oft erfitt meö ýmis verk, þó aö hann léti littáþvibera.Nauthann þá umhyggju og aöstoöar konu sinnar, sem gekk meö honum i öll verk af hinum mesta dugnaöi. Stefán var mjög gestrisinn og hallaðist þar ekki á með þeim hjónum. Hann var músikalskur og eignaöist snemma pianó, sem hann lék mjög vel á og oft skemmti hann gestum og heimafólki með pianóleik. Undruöust margir hversu léttilega hann spilaöi á pianóið með þessum stóru kraftalegu höndum. Áriö 1956 gekk Stefán undir erfiöan uppskurö og árið eftir tók Kalman, sonur hans við búinu. Tveim árum siö- ar fluttust þau Stefán og Valgeröur til Reykjavikur. Valgeröur tók upp sln fyrri störf, gerðist yfirhjúkrunarkona á Hrafnistu og starfar þar enn. Stefán vann ýmis störf þar til hann gerðist starfsmaöur Alþingis. Hann starfaöi sem þingvöröur i nokkur ár, þar til 1970 aö hann hætti störfum vegna van- heilsu. Hin síöari ár var heilsan mjög tekin aö bila, en þrátt fyrir vanliðan sina tók hann gestum á vallt meö sinu elskulega brosi. Gamall maður og þreyttur er geng- inn til feöra sinna. Ekkjan heldur áfram störfum sfnum viö aö hlynna aö gömlu fólki á Hrafnistu, Kalman bros- ir jafn elskulega og foreldrar hans og býöur gestum inn til sinnar góöu konu ogbarna, Ólafur heldur við músikgáfu fööur si'ns og spilar á hljóöfæri sin sér ogöðrum tilánægju og Jóhanna dreifir hróöri lands sins alla leiö til Suöur- Ameriku. Ég sendi þeim öllum kveöjur minar. Haraldur Arnason. 16 Islendingaþættir

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.