Íslendingaþættir Tímans - 04.10.1980, Page 8

Íslendingaþættir Tímans - 04.10.1980, Page 8
Auðbjörg Gunnlaugsdóttir Au6björg Gunnlaugsdóttir, kaupkona á Sauðárkróki, andaöist á heimili sinu 18. mai eftir langvinna vanheilsu. Hún var borin til grafar á Hvammstanga laugar- daginn fyrir hvitasunnu eftir minningar- athöfn i Sauðárkrókskirkju þann sama dag, að viðstöddu fjölmenni á báðum stööum. Dagurinn sólrikur og hlýr. Auðbjörg var fædd á Geitafelli á Vatns- nesi 3. okt. 1911. Foreldrar hennar voru hjónin Auðbjörg Jakobsdóttir og Gunn- laugur Skúlason, bóndi þar. Ættir þeirra kann ég ekki að rekja, en veit þó, að Auð björg var komin af Ulugastaða- og Kata- dalsætt. Æsku og uppvaxtarár Auðbjarg- ar og systra hennar tveggja, liðu svo fram i skjóli góöra foreldra og öruggs efna- hags, meðan þeirra naut beggja við. Bjargræði byggðist jöfnum höndum á sjávargagni og landsnytjum. Sú afkoma stóð og féll meö samhentum vilja fjöl skyldunnar, að nýta hverja stund og vinna eins og orkan leyfði. Stopulir leikir bernskunnar áttu þar eigi aö siður sina töfra, sem geymdust eins og helgir dómar i endurminningum Auðbjargar. Þegar árin, fjöll og dalir höfðu skilið á milli hennar og þeirra, raunir steöjuðu að, var henni hugfró að leita á þeirra fund. Orna sér við þær, þótt ekki væru þær allar sárs- aukalausar, fremur en margt annað i þessu mannlifi. Fjórtán ára gömul missti hún móöur sina og komu þá húsmóður- störf á hennar heröar, vanda sem hún leysti af umhyggjusemi og dugnaði. Hún fór ekki dult með ást sina á heimahögum, fólki sem hún þekkti þar, lifandi og látnu, vanabundnu og óskyldu. Heima kynntist hún manni slnum, Pétri Gunnarssyni (gift áriö 1931). Þau bjuggu fyrst á Geitafelli og Tjörn, sitt árið á hvorum staö, en flutt- ust slðan til Hvammstanga. Þar lést Pétur (1946) frá 6 börnum þeirra ungum. Ekkert var Auðbjörgu fjær en að gefast upp. Þá voru engar tryggingar til að styöjast viö, eins og nú, heldur harð- neskjulegur veruleiki óendanlegs þræl- dóms fyrir litinn pening og svo hjálpsemi hjartagóðs fólks þegar best lét. Fátækt oftar en hitt. Hvort tveggja mun Auðbjörg hafa kynnst, þegar verst gegndi. Hún gekk i þá vinnu sem bauðst og lagöi oft nótt við dag. Henni var tiörætt um hjúkr- unarstörf sin við Sjúkrahúsið á Hvamms- tanga, vökur yfir sjúkum, mokstur kola I kyndingu I kjallara og siöan gengiö til annarrar vinnu aö morgni með andvöku 1 augum. Auðbjörgu voru hjúkrunar- og liknarstörf hugleikin og hafði mikinn hug á að læra þau en aöstæður komu i veg 8 fyrir þaö. Alltnám hefði reynst henni auð- velt, jafnvel leikur. Auðbjörg fluttist búferlum til Sauðár- króks áriö 1951 og bjó þar meö Páli Svein- björnssyni bilstjóra. Hann lést að vori 1970. A Sauðárkróki var ekki haldið aö sér höndum. Arið 1964 kaupir hún verslunina Vökul af Konráði Þorsteinssyni, eftir aö hafa starfað hjá honum sem verslunar- stjóri i tvö ár. Fáir spáöu vel fyrir þeim kaupum, sem ekki var heldur von, konan meö tvær hendur tómar. Skömmu siðar varð hún húsnæðislaus og réöst þá I að kaupa hús meö tveimur hæðum. Neöri hæö hússins varö hún að breyta og gera upp áður en báðar yrðu Ibúðarhæfar. Það geröi hún að miklu leyti með eigin hönd- um. Enn biðu hennar erfið ár, sem ekki veröa rakin hérpn reyndu mjög á þrek og útsjón. Þeirri baráttu lauk með sigri. Hún átti sitt verslunar- og Ibúðarhúsnæði skuldlaust við leiðarlok. Siöustu niu árin bjó hún með Torfa Sveinssyni frá Hóli i Svartárdal og rak verslunina I félagi við hann. Torfi reyndist henni vel og best þeg- ar þrek hennar og heilsa bilaöi og ekki varð lengur á fótum staðið. Ahugamál átti Auðbjörg mörg. Sálar- rannsóknarfélag Skagafjarðar mun þó hafa verið henni hugstæðast. Hún átti þar sæti I stjórn og horföi ekki I tima og erfiöi fyrir gengi þess. Þar er nú stórt skarð 6- fyllt. Ég þakka Auöbjörgu góð kynni og um- hyggju fyrir mér og mlnum nánustu. Hún var skapstór og vinföst. Það stóö enginn einn, sem átti hana að vini. Börn Auðbjargar og Péturs eru: Maria, húsmóðir, Viðidalstungu V- Hún., Soffia, húsmóðir, Finnmörk, V- Hún., Erla, húsmóðir, Litluhllö, V-Hún., Guðrún, húsmóðir, Sandgerði, Auöbjörg, húsmóöir, Borg, Mývatnssveit, Gunn- laugur, verkstjóri, Reykjavik. Eins og segir I upphafi þessara orða, var Auöbjörg Gunnlaugsdóttir borin til grafar á heimaslóöum laugardaginn fyrir hvitasunnu i skýlausri heiðrikju þessa góða vors. Þannig fögnuðu átthagarnir komu hennar, þegar hún vitjaði þar hinstu hvilu eftir erfiðan dag og langar fjarvistir. Þarvarhetja komin heim til aö sameinast moldinni hugþekku og vorinu eilifa. Guöm. Halldórsson, frá Bergsstööum, Ekki eru birtar greinar sem eru skrifaðar fyrir önnur blöð en Tímann Látið myndir af þeim sem skrifað er um fylgja greinunum____________________ islendingaþæ^'r

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.