Íslendingaþættir Tímans

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Íslendingaþættir Tímans - 07.03.1981, Qupperneq 8

Íslendingaþættir Tímans - 07.03.1981, Qupperneq 8
Ólöf Þórðardóttir frá Ríp Fædd 8. janiíar 1963. Dáin 14. desember 1980. Nú áriö er liöið laldanna skaut og aldrei þaö kemur til baka, nú gengin er sérhver þess gleði og þraut, það gjörvallt er runnið á eiiiföarbraut, Oft hefur það komiö fyrir á árinu 1980, sem nú er nýgengið, að maður hefur spurt sjálfan sig að þvi' i einlægni, til hvers við séum eiginlega að fæðast í þennan heim, heim sem stundum er svo fullur af fjand skap, grimmd og sársauka. Svarið hef ég ekki en einhver hlýtur tilgangurinn að vera, þó við skiljum ekki og viljum e.t.v. ekki skilja hann. Vel má það vera að best fari á því að vita sem minnst og hugsa sem minnst um það. Og enn einu sinni brýst þessi spurning fram á varirnar þegar þú, Olöf Þórðar- dóttir, ert skyndilega hrifin burt úr þess- um heimi, svoung og Ufsglöö, þegar leiðir lágu til allra átta og þú áttir allt llfið framundan — að þvi er manni virtist. Það fer þá ekki hjá þvl að maður standi eftir ráðþrota og djúpt særður og reyni að leita svara við ofangreindri spurningu. Fátt verður um svöroghinn tí'ttnefndi tilgang- ur virðist ekki vera neinn. Það var eins og að slökkva ljósin, svo snöggt og óvænt kom þetta reiðarslag. Hverjum hefði dottíð I hug, að morgunn sunnudagsins 14. desember væri siðasti morguninn á stuttri en bjartri lífsleið þinni. Hverjum hefði dottið þaö I hug þeg- ar verið var að boröa hádegismatinn, án efa undir fjörugum umræðum um hrossin sem áttiaðfara áð sækja, að þú sem varst svo hress og kát myndir verða örend áður en sól hnigi til viðar það dimma vetrar- kvöld. Enginn, og sist af öllu þú sjálf, myndir hafa látið þér detta svo fáránleg vitleysa I hug. En svo sem margsannað er, ráðum við ósköp, ósköp litlu um gang lifsins og bilið millili'fs og dauða er örmjótt. Kannski er allt okkar lif fyrirfram ákveöiö, llkt og I púsluspili, og þegar siðasti búturinn er kominn á sinn stað er spilið búið. Það spil sem þér hefur verið ætlað hefur haft yfir svo alltof, alltof fáum bútum að ráða og nú ertufarin frá okkur og slðasti búturinn i spilinu kominn á sinn stað. Eftirsitjum viðhin og viljum ekki trúa 8 þvi sem við vitum að er svo óumdeilan- lega satt. Ég rifja upp I huganum minningar frá sjö sl. sumrum og nú síðast einnig frá jól- um og páskum: upprekstrarferðir á vor- in, heyvinna á sumrin, smalamennska á haustin og svo ótalmargt fleira. Þó alltaf verði gaman að koma heim I Rip verður þaö þó aldrei eins og áður þar sem nú vantar þig. Ólöf fæddist 8. janúar 1963 og ólst upp á heimili slnu, RIp, Hegranesi, Skagafirði. Hún var næstyngst af 8 börnum hjónanna Sólveigar Júliusdóttur og Þórðar Þórar- inssonar. Ólöf var I alla staði vel af Guði gerð, bæði myndarleg og vel gefin. Ekki var hún gefin fyrir langar skólagöngur en vildi heldur njóta æskunnar meðan hún varaði. Gáskinn var rikur i Ollu og meöal4 félaga var hún hrókur alis fagnaðar. Fjöískyldu sinni allri var Ólöf mikils virði og veit ég að miklar vonir voru við hana bundnar og hennar sárt saknað af öllum heima á Rip. Ólöf var mikið gefin fyrir skepnur og þó við værum á margan hátt óli'kar, þá höfð- um við báðar mjög gaman af hestum og hestamennsku. Oft vorum viö búnar að ræða um það okkar á milli, að „þaö yrði nú ekki hægt að tala um gæðinga I Skaga- firöinum fyrr en búið væri að temja hryssurnar okkar og við færum að ríða út á beim saman” Ekki átti það samt fyrir Ollu að liggja að taka Blesu til kostanna, en vonandi eru þeir þarna hjá henni gömlu klárarnir sem við áttum svo mikinn vinskap við, Kolur, Mósi, Vindur, Blesi og fleiri. Þann 26. nóvember eignaöist Olla stóra og myndarlega dóttur. Strax i sumar á- kvað hún að ef barnið yrði stúlka skyldi hún heita Sólveig i höfuðið á Sólveigu móður sinni. Ekki hafði það nú verið inni I áætluninni að eignast bam, en allan með- göngutímann var Olla svo glæsileg og bar sig svo vel, að aðdáunarvert var með því að fylgjast. Einhvern tima áður en hún varð ófrísk vorum við að ræða málin svona eins og gengur og gerist. Talið beindist eitthvað inn á hálar brautir fóstureyðinganna. Þá verður Olluað orði: „Aldrei myndi ég láta eyða fóstri ef ég yrði ófrísk, — þvl þaðer maður eins og ég”! Orðum þessum gleymi ég ekki og finnst að margir mættu taka þau sér til fyrirmyndar. Við þessa fullyrðingu stóð hún svo sannarlega sjálf og færði með þvl ómælda hamingju inn á heimili foreldra sinna og systkina auk þess sem hún skildi eftir yndislegan minnisvarða um sjálfa sig og stutta dvöl sina I þessum heimi. A jóladag var svo dóttirin skirð og henm gefið nafnið ólöf Sólveig. Jæja, Olla min! í dag, þann 8. janúar 1981 hefðir þú orðið 18 ára ef þú hefðir lif' að. En það var komið aö leiðarlokum. Við sem sjáum á bak þér yfir móðuna miklú trúum þvi að þú hafir verið kölluð til æðri starfa i heimi sem við ekki þekkjum en fá' um þó öll að kynnast. Égþakka þér fyrirstutta og ánægjulegn samfylgd og tel mig hafa verið heppna að fá aðkynnastþér. Þetta sama liggur fynr okkur öllum hinum og hver veit nema Þ11 takir á móti okkur á hvitum gæðingi Þe8' ar við komum yfir. Elsku Doddi, Sólveig, Ólöf Sólveig, afi> amma og systkyni, heima á Ríp- Meg1 Guð senda ykkur þann frið er megnar að græða sárin og gefa ykkur styrk sem mes misstuð. Ó, gef þú oss, Drottinn, enn gleöilegt ár og góðar og blessaðar ti'öir, gef himneska dögg gegnum harmanna tár. gef himneskan frið fyrir lausnarans sár og eillfan unað um siðir. 8. janúar, 1981 Sigriður Ævarsdóttir. Framhald á 7. siðu- islendingaþ*tti»”'

x

Íslendingaþættir Tímans

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.