Íslendingaþættir Tímans - 06.10.1982, Síða 1
ÍSLENDINGAÞÆTTIR
Miðvikudagur 6. október 1982 — 39. tbl. TÍMANS
Alexander Stefánsson
alþingismaður
Árið 1959 lögfesti Alþingi núverandi kjör-
dæmaskipan. Pað ár kynntist ég mörgu fólki, er
ég áður þekkti lítið eða ekki neitt. Meðal þeirra
er ég kynntist var Alexander Stefánsson
þáverandi kaupfélagsstjóri, sem í dag 6. október
er sextugur.
Það er ekki þörf á því að kynna hann eða störf
hans, því svo þekktur er hann á meðal
þjóðarinnar, enda verður hér stiklað á stóru.
Alexander er fæddur í Ólafsvík, sonur
sæmdarhjónanna Svanborgar Jónsdóttur frá
Ólafsvík, ættaðri úr Staðarsveit, og Stefáns S.
Kristjánssonar vegaverkstjóra, en hann var af
Hjarðarfellsætt, sem er fjölmenn og rakin frá
Þórði Jónssyni og Ingibjörgu Sigurðardóttur. Þau
voru bræðraböm. í Dalamönnum er eftirfarandi
sagt frá Jóni afa þeirra: „Talinn ættaður úr
Skagafirði og foreldrar han&nefndir Jón og Björg.
Bóndi að Giljalandi í Haukadal fyrir 1732 og
síðan til 1738 eða lengur. Kona Jóns var
Ragnheiður Sigurðardóttir frá Dunk í Hörðudal.
Þau fluttu út í Eyrarsveit á Snæfellsnesi." Ekki
skal ég fara lengra út í ættfræðina, en ég get þessa
hér, því í Hjarðarfellsætt hafa verið og eru margir
félagshyggjumenn, búhöldar ágætir og dugmiklir
sjómenn, eins og fram kemur hjá Þórði Kárasyni
í bókinni Hjarðarfellsætt.
Alexander ólst upp í Ólafsvík og vandist þar
öllum þeim störfum sem til féllu bæði til lands og’
sjávar. Hann stundaði nám við Héraðsskólann að
Laugarvatni og síðar við Samvinnuskólann og
útskrifaðist þaðan 1943. Það sama ár gerðist hann
starfsmaður hjá kaupfélaginu Dagsbrún í Ólafs-
vík og kaupfélagsstjóri var hann þar frá 1947-1961
að hann gerðist skrifstofustjóri hjá Ólafsvíkur-
hreppi og síðar sveitarstjóri. Oddviti hrepps-
nefndar var hann frá 1964-1979, en sæti átti hann
í hreppsnefnd frá 1954-1982. í stjórn Sambands
ísl. sveitarfélaga frá 1969 og í stjórn innheimtu-
stofnunar sveitarfélaga. í bankaráði Útvegsbanka
íslands frá 1976. Hann beitti sér fyrir stofnun
samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi og formaður
þeirra 1969-1976. í stjórn Framkvæmdastofnunar
ríkisins frá 1979. Varaþingmaður Framsóknar-
flokksins frá 1959-1978 að hann var kjörinn
alþingismaður og er hann nú 1. þingmaður
Vesturlands. Hann var lengi formaður sóknar-
nefndar Ólafsvíkursóknar og á þeim árum var
byggð myndarleg kirkja, ásamt safnaðarheimili. í
kirkjukórnum hefur hann lengi verið, enda
söngmaður ágætur og einsöngvari góður. Kona
hans hefur verið organisti í Ólafsvíkurkirkju og