Íslendingaþættir Tímans - 29.12.1982, Síða 12

Íslendingaþættir Tímans - 29.12.1982, Síða 12
áhættusöm. Bar þar hæst harðsóttar smala- mennskur á óravíðáttum Brúardala og fjárhirð- ingu á vetrum á beitarhúsum langt frá bæ með gamla laginu, þar sem treyst var til þrautar á beitina, þótt allra veðra gæti verið von. Hausið 1945 fór Halldór í eftirminnilega smalamennsku, en þá fór hann ásamt Agnari. Pálssyni frá Aðalbóli inná Kringilsáranna, sem liggur inn við Vatnajökul milli Kringilsár og Jökulsár á Brú. Þar náðu þeir félagar saman 9 útigöngukindum og komu þeim til byggða. Sú smalamennska varð einn samfelldur sprettur frá því að féð varð vart við þá félaga inni á Kringilsárrana og þar til það tók að spekjast úti á Laugarvalladal, en sá sprettur tók 18 klukku- stundir. Sumt af þessu fé hafði gengið úti fleiri vetur en einn og einn veturgamall hrútur var < í hópnum, sem var ómarkaður. Féð var bæði þungt, feitt og mörmikið, og þegar því var slátrað, kom í ljós, að margar kindurnar voru bræddar. Þá gerist það, að mörinn hitnar svo innan í fénu, að hann rennur til og safnast eins og blóðhlaupin hella neðst í kviðarholi. Af þessu sást, að þessu dýrstygga fé hafði verið hart fylgt eftir á hlaupunum. Halldór á Brú átti margt fé og vænt. Hann bjó lengst af upp á gamla móðinn, treysti á beit og síldarmjölsgjöf, en gaf ekki fullorðnu fé hey nema í nauðir ræki. Flestar ær voru einlembdar hjá honum, en lömbin urðu fádæma þung. Margoft var Halldór með hæstu meðalvigt á Austurlandi og jafnvel á öllu landinu, enda eru landgæði mikil á Brúardölum. Þeim Halldóri og Unni varð 5 barna auðið. Yngsti sonur þeirra, Hrafn, efnismaður hinn mesti, fórst af slysförum uppkominn. Var sár harmur kveðinn að þeim hjónum við þann missi. Önnur börn þeirra eru Kolbrún, húsfreyja á Egilsstöðum, gift Svavari Sigurðssyni, Sigvarður, bóndi á Brú, ókvæntur, Stefán, bóndi á Brú, kvæntur Sigríði Ragnarsdóttur og Anna, hús- freyja á Brú, gift Einari Jónssyni, bónda. Eins og ofanritað ber með sér, búa þrjú börn þeirra Halldórs og Unnar á Brú. Halldór hætti búskap, þegar heilsu hans fór að hraka, en hafði lengi vel á hendi veðurathuganir á Brú fyrir Veðurstofu íslands og sinnti þeim af sérstakri alúð. Mcr er það minnisstætt, að Adda Bára Sigfúsdóttir, veðurfræðingur, kom einu sinni á fund með landbúnaðarsérfræðingum og ræddi um nauðsyn þess að veðurskýrslur á tilrauna- stöðvum í landbúnaði voru sem vandaðastar í alla staði. Til að útskýra fyrir fundarmönnum, hvernig skýrslurnar ættu að vera, kom hún á fundinn með veðurfarsbók, sem Halldór á Brú hafði fært. Á Brúarheimilinu ríkti alltaf gestrisni, glaðværð og góðvild. Þangað komu mörg barnabörn þeirra Unnar og Halldórs til sumardvala ár eftir ár og áttu þar sitt annað heimili og þar uxu barnabörn úr grasi heimafyrir undir handarjaðri og hand- leiðslu afa og ömmu. En góðvildin á Brú náði ekki aðeins til náinna skyldmenna heima fyrir, heldur nutu nágrannar-. Brúar hennar í stóru og smáu. Það er ekki á aðra hallað þó að fullyrt sé, að Halldór á Brú hafi verið einsgóður nágranni og frekast er hægt að óska sér. Ég votta ekkju Halldórs, Unni á Brú, börnum hans, tengdabörnum og barnabörnum innilega samúð mína með þessum línum. Stefán Aðalsteinsson 12 Karl Nikulásson bóndi, Gunnlaugsstöðum Vallahreppi Fæddur 17. september 1908. Dáinn 16. október 1982. Laugardaginn 16. október síðastliðinn varð Karl Nikulásson bráðkvaddur á heimili sínu Gunnlaugsstöðum. Jarðarför hans fór fram frá Vallaneskirkju laugardaginn 23. sama mánaðarað viðstöddu fjölmenni. Karl var fæddur á Úlfsstöðum á Völlum 17/9 1908. Foreldrar hans voru hjónin Nikulás Jónsson af Völlum og Guðrún Guðmundsdóttir af Jökul- dal. Bjuggu þau fyrst á ýmsum jörðum, í Vallahreppi. En árið 1918 kaupir Nikulás Gunn- laugsstaði og búa þau hjón þar til 1935 að Ragnar, yngri bróðir Karls tók við jörðinni og bjó þar til 1944. Hætti hann þá búskap og flutti til Seyðisfjarðar með fjölskyldu sína. Ragnar lést síðastliðið vor. Karl fór ungur að taka hendi til við heimilisverk- , in eftir því sem kraftar leyfðu. Á þeim árum var allt unnið með handverkfærum og allir urðu að leggja sitt af mörkum til að afla heimilinu lífsbjargar. Hann var greindur og bókhneigður og stóð hugur hans til að leita sér menntunar. Haustið 1927 fór hann til náms í gagnfræðaskóla á Akureyri og lauk þaðan gagnfræðaprófi 1930, hætti þá námi, enda voru þá mikil kreppuár og erfitt að afla sér námseyris. Árið 1942 verða þáttaskil í lífi Karls, en þá gengur hann að eiga Önnu Björgu Sigurðardóttur frá Sauðhaga, myndar og ágætis konu sem búið hefur manni sínum og börnum snyrtilegt og farsælt heimili. Þau giftu sig 22. október 1942. Hjónaband þeirra var því tæp 40 ár. Vorið 1943 fara þau í Vallanes og búa þar í tvö ár, en 1945 flytja þau að Gunnlaugsstöðum og búa þar til 1971, Síðan búa þau í 7 ár í félagi við Sigurð son sinn og Maríu Pétursdóttur konu hans, en 1978 fytja þau Sigurður og María í Egilsstaði. Karl bætti jörð sína bæði með ræktun og húsakosti. Á Gunnlaugsstöðum ríkti góð um- gengni og snyrtimennska. Þar sást hvergi spýta eöa spotti, allt sópað og hreint, húsin máluð, snyrtilegur og vel hirtur trjágarður við íbúðarhús- ið og túngirðingin svo vel gerð að hún vakti athygli vegfarenda. Karl var hlédrægur en félagslyndur. Á yngri árum starfaði hann mikið í ungmennafélagi sveitarinnar og var lengi formaður þess. Hann var um áratuga skeið formaður búnaðarfélagsins, átti sæti í hreppsneínd í 12 ár, en gaf ekki kost á sér lengur. Mörgum fleiri störfum gegndi hann þó ekki verði talin hér. Þau Karl og Anna eignuðust sjö börn. Talin í aldursröð: Guðrún húsfr. Reykjavík, Pálína húsfr. og kaupmaður Akranesi, Sigurður af- greiðslumaður hjá K.H.B. Egilsstöðumi , , gerður húsfr. Reykjavík og Finnur við nám Þýskalandi. Eitt barn dó ungt og næst yngsta so sinn misstu þau 22 ára gamlan, mesta myndar P sem þau hörmuðu mikið. Öll eru börn Þcirj^ hjóna sem upp komust greind og hafa stofnað si eigin heimili. ... Síðastliðin 15 ár var Karl mjög heilsuvd Reyndi þá á þrek og dugnað Önnu konu han > sem annaðist hann og hjúkraði af mikilli kostgS' °g alúð. Að lokum þakka ég Karli löng og ánægjn kynni. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi. ' hjónin vottum Önnu, börnum hennar og 'J skyldum þeirra innilega samúð. Stefán Bjamason, Fiögu-

x

Íslendingaþættir Tímans

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Íslendingaþættir Tímans
https://timarit.is/publication/303

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.