Heimilistíminn - 10.04.1975, Page 19
15. april
Þú hefur ákaflega samsettan persónu-
leika. Þótt þú hafir gaman ab listum og
fagurri tónlist, ertu afskaplega raunsær,
þegar um viðskipti er að ræða. Þú ert hátt
uppi i skýjunum, þegar þú ert að fást við
bókmenntaleg viðfangsefni, en mjög svo
niðri á jörðinni, þegar um er að ræða að
undirrita kaupsamning. Þú hefur áhuga á
sálrænum og dulrænum hlutum og ert si-
fellt að leita sannleikans á þeim sviðum.
En þú vilt þö að hlutirnir verði visinda-
lega sannaðir, og ert þvi alltaf að leita
sannana.
Karlar fæddir þennan dag eru ágætis
ræöumenn, og munu að likindum ná
frama á stjórnmálasviðinu. Hins vegar
heillast konur að sviðinu, þar sem þær
hafa leikhæfileika og geta túlkað tilfinn-
ingar. Þú hefur unan af selskapslifi og
hlakkar alltaf til að hitta athyglisvert
fólk. Allt fólk vekur áhuga þinn, og þú
þreytist aldrei á að skilgreina manngerð-
ir. Þú ert mjög tilfinninganæmur og ert
alltaf reiðubúinn að hjálpa þeim, sem
verr er ástatt fyrir. En þar sem þú átt
auðvelt með að dæma fólk, læturðu sjald-
an leika á þig, og þú vilt fá greiða fyrir
greiða. Þú ert alltaf reiðubúinn að hjálpa
fólki til að hjálpa sér sjálft, en kærir þig
kollóttan um þá lötu og getur verið hrana-
legur i viðmóti við þá. Þegar volæði fólks
stafar af leti, kemurðu öðruvisi fram en
annars.
16. april.
Þú hefur staðfastan persónuleika og af-
ar sterkan. Karlar fæddir þennan dag
eiga aldrei sitt undir öðrum, og konur eru
einnig sjálfstæðar. Þú býrð yfir mikilli
orku, og ef þú ert ekki stöðugt að starfa,
verðurðu óstyrkur. Börn fædd i þessu
merki lenda auðveldlega i vandræðum.
Foreldrar verða að sjá til þess að þau hafi
ætið næg viðfangsefni.
Það er ekki erfitt að móta eitthvað já-
kvætt, en hins vegar að bæta eitthvað,
sem hefur verið eyðilagt. Þess vegna
verðurðu að vera viss um að starfa að
hugsjónum þinum og að nota hæfileikana
á sem beztan hátt. Eðli þitt er þannig, að
þú getur bæði verið þrjózkur og stifur, og
þaö getur verið gott, ef það þjónar góðum
málstað, en sérlega slæmt, ef þú ert að
gera vitleysu.
Þú ert glaðlyndur og vingjarnlegur, og
margt fólk beinlinis loðir við þig. Oft ertu
rausnarlegri en þú ættir að vera. Þar sem
þú hefur gaman af að skemmta fólki, ertu
frábær gestgjafi. Þú hefur gaman af
veizlum, en vilt halda þær heima hjá þér.
Þú ert ástrlöufullur og bliðlyndur, og þér
hættir til afbrýðisemi, ef sá eða sú, sem
þú elskar, snýr sér of mikið að öðrum.
Sjálfur ertu mjög heiðarlegur og tryggur,
og þú vilt, að maki þinn sé það lika.
Stööug hvild er óþolandi þreytandi.
List, sem þarf að útskýra, er eitthvaö
gruggugt við.
Það var kona, sem kysst var á ennið,
sem fann upp háu hælana.
♦
Vertu aldrei hræddur við að koma of
seint á útsölu.
Flestir lifa á þeim launum, sem þeir
búast við að fá einhvern tima.
Ef maður lifir eins og lamb, dreymir
hann eins og úlf.
★
Nágranninn fann upp nýja aðferð til að
ala upp börn. Hann flengir þau.
♦
Spekingur cr maður, sem alltaf veit
nákvæmlega, hvað gera skal, þangað
til hann verður sjálfur fyrir einhverju.
Hvers vegna að berjast gegn
náttúrunni? Etum og drekkum.
19