Heimilistíminn - 10.04.1975, Síða 29
A blómaskeiöi sínu var Murray vaxandi gullgrafarabær. tbúum hefur nú fækkað úr 10 þúsundum i 87. Til vinstri er hús
Christopherson-hjónanna, en örfá önnur hús standa enn við aöalgötuna.
snemma á fótum i dag. Hún þurfti að
fara i búðina sina, Murray Store, —
þar sem hún hefur unnið undanfarin 25
ár, og keypti fyrir 12 árum, — til að
gera hreint og fylla hillurnar.
Salan hjá Lucille gengur vel, en hún
er að hugsa um að selja búðina, bar-
inn, gullnámuna og 100 ára gamalt
húsið fyrir 70 þúsund dollara. Hún ætl-
ar nefnilega að setjast i helgan stein.
Hinir ibúarnir telja að hún hafi sett
heldur hátt verð á þetta og liklega hafa
þeir rétt fyrir sér. En „Leil” eins og
hún er kölluð, er á annarri skoðun. Það
var I svefnherberginu hennar, inn af
búðinni, sem maður hennar Chris, 64
ára, gróf gullnámu fyrir sjö árum.
Með spaðanum sinum gróf Chris
göng, 1.35x2.70metra að stærð, niður á
fast berg, sem var á 10 metra dýpi.
Þar niðri gerði hann námu og enginn
veit, hversu mikið gull hefur fundizt
þarna.
Bill Almquist, sem er fæddur og
uppalinn i bænum, er á eftirlaunum,
en hann starfaði við blý-, silfur- og
zinknámurnar i grenndinni. Hann er
nú eigandi eina barsins þarna, sem op-
inn er allt árið. Hann segir að „svefn-
herbergi 1” eins og náma Lucille og
Chris er kölluð, gefi ekki meira af sér
en tiu cent á hverja vinnustund.
Gull i svefnherberginu
Leil vill ekki skýra frá þvi hve mikið
gull hefur komið upp úr námunni. Hún
segist geyma það i bankahólfi sinu.
Þegar reynt er að leggja fastar að
henni, segir hún aðeins: — Það er að
minnsta kosti nóg til að gera námuna
athyglisverða.
Enginn vafi er á, að gull er i svefn-
herbergisnámunum eins og þær eru
kallaðar. A nokkrum mánuðum voru
grafnar margar námur út úr svefn-
herbergjum við aðalgötuna. Eina
Þeirra starfrækir Walt Almquist, sem
er safnvörður á staðnum. — Ég var
Frank Weigelc er 82 ára og næstelzli ibúi Murray. Ilann man vel gullæðið rétt eftir
aldamótin. A gamla skiltinu stendur: óviðkomandi verða skotnir.
\
79