Heimilistíminn - 27.04.1980, Blaðsíða 11

Heimilistíminn - 27.04.1980, Blaðsíða 11
Þegar ég ætlaði að ganga yfir að dyrunum var eins og gólfinu væri kippt undan fótum mér, og ég steyptist á höfuðið. — Hjálpið mér! hrópaði ég. — Komið og hjálpið mér! Þegar dyrunum var lokið upp á ný hélt ég fyrst, að það væri John, sem kominn var aftur og reyndi að verja mig ósjálfrátt. En það var Charlotte sem stóð i dyrunum, i náttkjól og morgunsloppiyfir. Mér létti óendanlega mikið. Charlotte myndi nú sjá til þess, að ekkert kæmi fyrir mig. Enda þótt John kæmi aftur, myndi hann ekki þora að gera mér neitt, þegar mágkona hans var nærstödd. — Hvað er þetta? Eruð þér veikar? Hún lokaði á eftir sér og gekk i áttina til min en nam svo skyndilega staðar, þegar hún kom auga á grænu ferðafötin, sem lágu á stólbak- inu. Hún dró djúpt andann og spurði svo: — En eru.... eru þetta ekki föt Celiu? Svo leit hún i átt til min, og bleik húðin var orðin gul- leit. — Hvar hafið þér fundið þetta? — í ferðakistunni hennar Celiu uppi á lofti. Þyngslin voru að gera út af við mig, og ég átti erfitt með að tala. — Þetta eru fötin, sem Celia var i, þegar hún var myrt. Og svo bætti ég við eins og það væri óhjákvæmilegt annað en segja það upphátt, svo orðin brenndu sig i með- vitund mina: — Þegar John myrti hana. Það brá skugga fyrir i fögrum augum Char- lottu, en hún sagði ekkert. Ég hélt áfram i á- sökunartón: — Þér vissuð þetta, eða hvað? Þér hafið vitað þetta frá upphafi? Charlotte hjálpaði mér á fætur og leiddi mig aftur yfir að rúminu. — Ég hef haft minar grumsemdir, muldraði hún. Siðasta kvöldið þegar ég fór upp til Celiu sá ég ferðafötin liggja á rúminu, og ég skildi, að hún hafði hugsað sér að flýja með Brian. Næsta morgun, þegar við fundum hana dauða var ég svolitið undrandi á þvi, að ferðafötin voru hvergi sjáanleg, en það gerðist svo mikið á skömmum tima, allir voru svo æstir, að ég gleymdi þessu aftur. Ég mundi ekki eftir þvi fyrr en siðar, og þá ákvað ég að vera ekkert að skipta mér af þvi meira, sætta mig bara við skýringar Johns um að þetta hefði verið óhapp. Nafn Barclay-ættarinnar varð að vernda, hvað sem það kostaði.... — Hvernig komst John á snoðir um það, að Celia ætlaði að yfirgefa hann? Charlotte hrukkaði ennið. — Vel getur verið, að Giles hafi sagt honum það. Hafi Giles komið aftur, eins og Rowena heldur fram, getur hann vel hafa komizt að þvi að eitthvað grunsamlegt var að gerast i hesthúsinu — kannski hestarnir hafi verið söðlaðir. Svo hefur hann mjög lik- lega riðið aftur til Silver Grove og sótt John. Já, Giles vissi þetta, hugsaði ég með mér, það var ástæðan fyrir tökunum, sem hann hafði haft á John allan þennan tima. Þess vegna hafði John ekki getað rekið hann. Þegar ég fór svo að róta þessu upp, varð honum ljóst, að nauðsynlegt væri að þagga niður i Giles i eitt skipti fyrir öll. Siðan hafði enn eitt slysið orðið. Ég skalf frá hvirfli til ilja. Mér fannst ég væri öll helköld, en samt var ég löðursveitt, eins og ég væri með háan hita. Charlotte ýtti mér niður á koddana og sagði áhyggjufull: — Þér verðið að liggja kyrr, vegna þess að þér hafið fengið taugaáfall. Litið koniak er það sem þér þurfið á að halda. Ég skal fara og ná i glas. Ég hallaði mér aftur á dak og lagði aftur augun og reyndi að hugsa ekki um það, hvernig John hafði verið á svipinn, þegar ég sagði hon- um frá fötum Celiu, sem ég hafði fundið... Svo heyrði ég Charlotte koma aftur, fann hvernig glasinu var þrýst upp að vörum minum. Ég fékk mér stóran sopa og koniakið brenndi mig i hálsinn, en svo fékk ég hóstakast. —Drekkið þetta allt, Jenny. Charlotte settist við rúmið. — Það gerir yður bara gott. Nú verðum við að hugsa upp ráð fyrir yður. Þér verðið auðvitað að fara frá Fernwood eins fljótt og hægt er, sagði hún eins og ekkert væri um annað að ræða. — Maður veit aldrei hvað John.... Nei verið nú róleg. Ég á bara við, að John hefði kannski verið öruggur, ef þér hefðuð gifzt honum. En nú — nú getið þér enga áhættu tekið. — Hvað á ég......þá að gera? Charlotta leit undan og i átt til gluggans, þar sem regnið barði rúðurnar. — 1 þessu óveðri getið þér ekkert farið. Ég sting upp á, að þér sofnið nú og hvilizt vel i nótt og hafið bæði dyr og glugga vandlega lokaða. í fyrramálið, áður en nokkur er kominn á fætur verður Jonas að aka með yður til Crossroads. Þar getið þér komizt i póstvagninn til Leestown og náð i niulestina til Richmond. Ég blundaði og lét mér liða vel á meðan ein- hver annar var að taka ákvarðanir fyrir mig, lyfta þungum byrðum af öxlum minum. Svo sá ég andlit Johns fyrir mér, ekki eins og það hafði verið i hesthúsinu heldur fullt af hlýju eins og það hafði verið morguninn góða i rósa- n

x

Heimilistíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Heimilistíminn
https://timarit.is/publication/304

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.