Heimilistíminn - 15.02.1981, Blaðsíða 3
«s
cí2 'O
U CÖ
‘2 w
u ^
«Q
S.a
eö fe
*>q •
O W 3
« («
E2 E
S? « ss
•S « «
g fc us
'5Ó jji “
g S S
X S 3
hrædd um, aö fólk sé að reyna ab njósna
um hana og komast að einhverju um
hana, sem það siðan ætli að nota gegn
henni.
Ef vinir hennar vilja ná sambandi við
hana, er eina leiðin að afhenda ná-
granna hennar miða, sem hann kemur
svo áleiðis til hennar og réttir henni yfir
girðinguna i garðinum bak við húsið.
Eitt aðalvandamál Doris Day er ótti
hennar við sjúkdóma. Hún býst alltaf við
að hún sé að fá krabbamein. Svo heldur
hún lika að andrúmsloftið sé svo mengað
að hún eigi eftir að veikjast af þvi eða þá
hún heldur að hún borði ekki réttan mat.
Hún tekur heil ósköp af vitamintöflum
dag hvern og borðar ómengaðan mat,
náttúrulækningafæði.
Hundarnir eru það sem hún hefur mest-
an áhuga á þessa stundina. Rithöfundur,
sem heimsótti Doris á siðasta ári, segir,
að hún eigi hvorki meira né minna en 17
hunda. Hún hugsar ekki um annað en
hundana og leikur meira að segja fyrir þá
tónlist af plötum. Hún þykist vita hvaða
tónlist fellur hverjum hundi bezt i geð og
velur plöturnar með tilliti til smekks
hundanna hverju sinni. Ef einhver hund-
anna deyr grefur hún hann i garðinum
bak viö húsið. Þurfi hún að tala um dauða
hundinn grætur hún. Hún getur ekki einu
sinni afborið að horfa á myndir af dánum
hundum, sem hún hefur átt. Henni yrði
ekki um þótt einhver nákominn ættingi
hennar hefði látizt. Alls staðar um húsið
má sjá innrammaðar myndir af hundun-
um... mörgum finnst þetta svolitið undar-
legt.
Doris hugsar ekki um annað en hund-
ana daginn langan. Hún er hundóð, eins
og vinir hennar komast að orði. Hún býr
til finustu pottrétti úr nautakjöti handa
þeim og gera má ráð fyrir að það kosti
töluverða peninga!
Eitt sinn dáðu Bandarikjamenn allir
Doris Day. Nú er svo komið, að hún ætlar
sér að flytjast burtu frá Beverly Hills til
þess að geta notið einverunnar betur en
ella. Hún ætlar að flytja til Carmel dals
sem er um 500 kilómetra fyrir norðan Los
Angeles. Þar hefur hún látið byggja fyrir
sig hús á stóru landi sem hún á, en að hús-
inu liggur aðeins malarvegur. Þarna
ætlar hún að lifa i nokkurs konar kastala
eða virki og við innganginn er varðskýli
að þvi er nágranni hennar segir. Gadda-
virsgirðing er umhverfis landareignina
og hundar verða þarna til þess að halda
óvelkomnum gestum fjarri leikkonunni.
Þegar Doris Day bregður sér i bæinn i
nánd við þetta nýja heimili hefur hún meö
sér risastóran og illilegan hund, svo hún
þarf ekki að óttast áreitni fólks.
Hver skyldi svo vera ástæðan fyrir þvi
að Doris Day sem eitt sinn var alltaf bros-
andi og glaðleg er orðin eins og hún nú er?
Llklega er hún sú að margt slæmt hefur
fyrir hana komið um ævina. Hún hefur
fjórum sinnum verið gift og hjónaböndin
öll farið út um þúfur. Þriðji maðurinn
hennar Marty Melcher rændi hana öllum
auði hennar vib skilnaðinn og skildi hana
eftir bláfátæka og á kafi I skuldum. Hún
hafði unnið sér inn 20 milljónir dollara en
tapaði öllu fyrir tilstilli Melchers og lög-
fræðings hans. Siðasta hjónabandið fór
lika út um þúfur. Hún var þá gift Barry
Comden sem hafði unnið sem móttöku-
stjóri á veitingahúsi. Hún gafst upp á
Barry vegna kappakstursæðis hans og
ráðriki. Nú hefur hún sem sé endanlega
gefizt upp. Hún hefur ekki áhuga á að
kynnast fleiri karlmönnum, enda hafa
ekkert nema vandamál fylgt þeim mönn-
um, sem hún hefur haft samband við um
ævina. Þeir hafa reynt að notfæra sér auð
hennar og velgengni en minna hugsað um
Doris Day-manneskjuna.
Doris Day er lika alveg búin að leggja
leiklistina á hilluna og nú likist hún engu
meir en milljónamæringnum Howard
Hughes, sem látinn er fyrir nokkrum ár-
um og lokaði sig að mestu frá umheimin-
um þótt næga ætti hann peningana.
3