NT - 08.05.1984, Page 2
4i
Itt
Þriðjudagur 8. maí 1984
Akurey ringar f á stærstu
slökkvibifreið landsins
Bílasalan þriðjungi meiri en í fyrra:
Meira en fjórði hver
f ékk sér Lödu eða Fíat
■ Lada og Fiat hafa skotiö
öðrum keppinautum sínum
ref fyrir rass á bílamarkaðin-
um fyrstu þrjá mánuði
ársins. Meira en fjórði hver
kaupandi, að nýjum bíl á
þessu tímabili, hefur valið
aðra hvora þessara tegunda,
eða um 27,4% af öllum
kaupendum.
Ladan er á toppnum að
þessu sinni með 227 selda
bíla þessa þrjá mánuði, sem
er um helmingur þessa sem
seldist af Lödu allt áriði •
fyrra. Fiat verður þó eigin-
lega að teljast sigurvegarinn
með sína 219 seldu bíla, sem
er nær sama tala og seldist
allt árið 1983. Næst í röðinni
kemur Daihatsu með 191
sölu, sem er um helmingur
miðað við allt árið 1983. Þá
má geta til gamans að 11
manns hafa nú séð sér fært
að kaupa Mercedes Benz,
en þeir voru aðeins 17 er það
gerðu allt árið 1983.
Sala á nýjum fólksbílum
var nær þriðjungi meiri mán-
uðina jan.-mars í ár en sömu
mánuði í fyrra, eða 1.626
bílar nú miðað við 1.234 í
fyrra, þ.e. tæp 32% aukning
milli ára. Sömuleiðis er sala
á nýjum sendibílum um 20%
meiri nú. Hins vegar hafa nú
um helmingi færri lagt út í
vörubílakaup, þ.e. 49 nú á
móti 103ásamatímaífyrra.
Hvers á biskup
að gjalda?
■ Mörg eru mistökin í
I Mogga, en sem betur fer er
blaðið rúmgott og nóg pláss til
að birta leiðréttingar og afsak-
| anir.
Eina slíka gat að líta í
I sunnudagsblaði Moggans og
I er þar gerið að láðst hafi að
koma á framfæri í myndatexta
í föstudagsblaði, að slegnir
hafa verið 30 silfurpeningar á
fslandi annó 1984 af sérstöku
tilefni og þótti þeim sem fyrir
myntsláttunni stóðu ekki ann-
að hæfa en að biskupi íslands
væri afhentur fyrsti peningur-
inn.
Von er að hér þyrfti að gera
bragabót því mikil er ánægja
gefanda og þiggjanda silfur-
peningsins, hins fyrsta af 30
þegar flett er upp á myndinni
góðu í föstudagsmogga.
En herra Ásmundur heitinn
Guðmundsson hangir brúna-
þungur upp á vegg, enda ekki
fleiprað með silfurpeningana
30 í hans Biblfu.
Vonandi fáum við enn eina
leiðréttingu í Mogga um
sjóðinn, þar sem sagt verður
frá að biskup hafi ekki vitað
um upplag silfurpeningana og
að myntsláttumenn hafi hvorki
lesið kverið sitt eða Biblíuna.
Einnig verður gaman að frétta
hverjir fengu hina 29 silfurpen-
ingana, og hvers vegna verið
er að skipta þessu smáræði.
■ Nýr slökkvibíll hefur bæst í
flota Slökkviliðs Akureyrar. Er
þarna um að ræða stærsta
slökkvibíl, sem fluttur hefur
verið inn til landsins.
Bíllinn er allt í senn, tankbíll
sem getur tekið inn á sig 10 tonn
af vatni, slökkvibíll, en á honum
er öflug dæla, sem hefur 3000
lítra afkastagetu á mínútu, og
froðubíll, sem getur dælt 600
lítrum af froðu. Auk þess er
vatnsbyssa á toppi bílsins, sem
getur sprautað vatni og froðu
yfir 50 metra vegalengd. Bíll
þessi kostaði 3,5-4 milljónir,
kominn á götuna.
Þetta er 7. bíllinn sem slökkvi-
liðið á Akureyri fær til afnota.
Hinir eru orðnir gamlir, en er
vel við haldið, að sögn Tómasar
Búa Böðvarssonar, slökkviliðs-
stjóra: „Það hefur verið erfitt
að fá bæjarfélagið til að endur-
nýja bílaflotann vegna þess hve
vel þeir gömlu líta út,“ sagði
Tómas í samtali við NT.
Bíllinn er af MAN gerð en
yfirbygging hans var smíðuð í
Danmörku hjá H.F. Nielsen
Maskinfabrik AS. Tómas sagð-
ist vera mjög ánægður með
samstarfið við Danina en þessi
Júdas Ískaríót fékk sína 30
oskipta.
Lögbundin
lögleysa??
■ Bandormurinn margfrægi
hefur vakið mikinn kurr meðal
námsmanna eftir að Ijóst var
að þar er nánast lögbundið að
lög um námslán skuli að engu
höfð. Talið er að lánin rnuni
skerðast um allt að 40% og að
einungis verði greitt út fyrir
60% fjárþarfar námsmanna. í
annarri grein bandormsins seg-
ir að fjárveiting til sjóðsins
skuli eigi nema hærri upphæð
en þeim 650 milljónum sem
hann hefur þegar fengið og
skuli „hlutfallstala lána af
reiknaðri fjárþörf miðuð við
það fjármagn sem sjóðurinn
hefur til ráðstöfunar". Engin
ákvæði eru í frumvarpinu að
eldri lög um LÍN séu með
þessu numin úr gildi heldur
lagagreinin nánast skrifuð eins
og þau hafi aldrei verið til.
Einhverntíma hefði þetta
nú verið kölluð lögleysa en er
það tæplega lengur. Það er þó
alltjent búið að lögbinda hana.
Enn langt í
þingkosningar
■ Flóamenn eru sannfærðir
um að enn er langt til næstu
alþingiskosninga þrátt fyrri að
margir þykist sjá feigðarmerki
á ríkisstjórninni. Til marks um
það hafa þeir að enginn þing-
manna Suðurlandskjördæmis
var mættur á aðalfund Mjólk-
urbús Flóamanna, sem haldinn
var í vikunni sem leið.
Segja fundarmenn að þegar
þingkosningar nálgist sé vart
þverfótað fyrir pólitíkusum og
mönnum sem hyggja á trama á
vettvangi stjórnmála á aðal-
fundi MBF. „Það mun að
minnsta kosti koma mönnum
á óvart ef stjórnin situr ekki út
kjörtímabilið - bæði þing-
mönnum sjálfum og þeim sem
sátu þennan aðalfund", sagði
einn aðalfundarmanna.
Bless, bless
■ Allt útlit er fyrir, að skóla-
rannsóknadeild menntamála-
ráðuneytisins fái ekki lengur
að leita ráðgjafar Dr. Wolf-
gangs Edelstein, prófessors og
eins forstöðumanns Max Plank
stofnunarinnar í Vestur-
Berlín. Wolfgang Edelstein
hefur verið skólarannsókna-
deildinni ráðgefandi, einkum
um endurskipulagningu sam-
félagsfræðináms í grunn-
skólum, allt frá því að deildin
var stofnuð í menntamálaráð-
herratíð Gylfa Þ. Gíslasonar,
og hefur hann komið hingað
a.m.k. einu sinni ári til skrafs
og ráðagerða.
Opinberlega hefur engin
ákvörðun verið tekin í máli
þessu, en Ragnhildur Helga-
dóttir menntamálaráðherra
hefur látið að því liggja, að í
framtíðinni verði ekki leitað til
Edelstein. Um ástæðurnar er
ekki vitað og eiga margir erfitt
með að skilja afstöðu ráðherr-
ans.
verksmiðja starfar í nánum
tengslum við slökkvilið þar.
Sérfræðingur frá verksmiðjunni
mun koma til Akureyrar eftir
helgi til að skila bílnum endan-
lega og bjóst Tómas við að
bíllinn yrði formlega tekinn í
notkun um miðja næstu viku.
■ Tómas Búi Böðvarsson, slökkviliðsstjóri, við nýjan bð Slökkvi-
liðs Akureyrar. NT mynd Sverrir
Allt stefnir nú í
flugmannaverkfall
„málið í sjálfheldu“, segir ríkissáttasemjari
■ Ekkert virðist nú geta kom-
ið í veg fyrir það að allt flug á
vegum Flugleiða stöðvist á
föstudag og laugardag, en flug-
menn hafa boðað skyndiverkfall
þá daga til þess að leggja áherslu
á launakröfur sínar. Guðlaugur
Þorvaldsson, ríkissáttasemjari,
sagði í samtali við NT í gær að
deilan virtist í algerri sjálfheldu
og hann myndi taka afstöðu til
þess í dag hvort hann boðaði til
sáttafundar.
„Svona skyndiverkföll skaða
félagið alveg gífurlega og líka
ísland sem ferðamannaland",
sagði Sigfús Erlingsson, fram-
kvæmdastjóri Markaðssviðs
Flugleiða. „Fólk er kannski
búið að ákveða það fyrir löngu
að fara í sumarfrí á þessum tíma
og svo kemst það ekki. Slíkt
spyrst náttúrulega. Svo held ég
að það sé ekki tilviijun að
verkfallið var boðað um helgi,
þegar langflestir eru á ferða-
lögum,“ sagði Sigfús ennfrem-
ur.
„Við fylgjumst vel með þess-
ari deilu og ég vona að menn
sjái að sér og sættist“, sagði
Steingrímur Hermannsson,
forsætisráðherra. „Ef þessar
upplýsingar sem fram hafa kom-
ið um kröfugerð flugmanna eru
réttar er alveg ljóst að þær eru
langt utan við þá mynd sem
aðrir eru inní“, sagði Steingrím-
ur ennfremur. Hann sagðist
ekki vilja tjá sig um það hvort
að ríkisstjórnin myndi grípa inn
í deiluna, en bætti við: „Þetta er
jú aðeins tveggja daga verkfall“.
■ Níutíu og sex pör tóku þátt í undankeppni íslandsmótsins í tvímenning á Hótel Esju um helgina.
Hér sést hluti þátttakenda í mótinu, en alls þurfti 3 sali undir keppnina. NT mynd Ámi Sæberg
islandsmótið í tvímenning 1984:
Stærsta bridge-
mót f rá upphafi
■ Stefán Pálsson og Rúnar
Magnússon unnu undankeppni
íslandsmótsins í tvímenning í
bridge, sem haldin var um helg-
ina. Alls tóku 96 pör þátt í
undankeppninni, sem er met
þátttaka, en 24 komust áfram í
úrslitakeppnina, sem haldin
verður eftir 3 vikur.
Þrátt fyrir hinn mikla fjölda
spilara sem tók þátt í mótinu
tókst nær öllum sterkustu pör-
unum að tryggja sér sæti í
úrslitunum. Þó vakti athygli að
Guðlaugur Jóhannsson og Örn
Arnþórsson oe Guðmundur
Pálsson og Sigtryggur Sigurðs-
son voru ekki í þeim hópi.
Af þeim 24 pörum sem spila í
úrslitunum er 21 af höfuðborg-
arsvæðinu. Hin þrjú pörin eru
frá Akranesi, Borgarnesi og ísa-
firði.
ísaf jörður myndaður í bak og fyrir
■ Á ísafirði er þessa dagana
unnið að gerð kvikmyndar til
kynningar á ísafjarðarbæ og
atvinnulífinu í bænum, og
greiða fyrirtækin þar stærstan
hluta kostnaðarins. Að sögn
Sigurjóns Valdimarssonar, sem
er höfundur textans við mynd-
ina, kom frumkvæðið að
myndatökunni frá Myndbæ hf.
í Reykjavík. Stjórnendur upp-
töku eru Magnús Bjarnfreðsson
og Bryndís Schram, sem einnig
les textann inn á myndina.
Myndin verður sýnd á heimil-
issýningu og sjávarútvegssýn-
ingu í Laugardalshöll í haust.
Jafnframt mun hugmyndin að
sýna hana í flugstöðvum og
hótelum. Þá munu eintök fara
myndbandasafn sjómannasam
takanna, Námsgagnastofnun o
til Ferðamálaráðs, auk þess ser
myndinni verður dreift erlendi
á vegum utanríkisráðuneytis oj
Flugleiða. Allir, sem fjármagn;
fyrirtækið, fá síðan eintak ti
eigin nota.