NT - 08.05.1984, Page 3
IW' Þridjudagur 8. maí 1984 3
lil Fréttir
Þetta er ekki mál f ræðsluráðs
segir Ragnar Júlíusson um kröfu Gerðar Steinþórsdóttur og Þor-
bjarnar Broddasonar um að fræðslustjóramálið verði afftur ræftt í ráðinu
■ Þetta er ekki mál fræðsluráðs, fræðslu-
ráð afgreiddi það í fyrra og meirihluti
borgarstjórnar samþykkti afgreiðsluna.
Málið er það að Þorbjörn Broddason og
Gerður Steinþórsdóttir skilja það ekki hvort
fræðsluráð er yfir borgarráði eða borgarráð
yfir fræðsluráði,“ sagði Ragnar Júlíusson
borgarfulltrúi í samtali við NT í gær.
Tilefnið var harðar umræður sem áttu sér
stað í fræðsluráði í gær um hina nýju skipan
á yfirstjórn fræðslumála í Reykjavík, sem
borgarstjóri hefur tilkynnt að hann muni
hrinda í framkvæmd á næstunni. Þorbjörn
Broddason og Gerður Steinþórsdóttir báru
fram fyrirspurn um það hvert yrði starfssvið
Áslaugar Brynjólfsdóttur fræðslustjóra eftir
breytinguna. Einnig spurðu þau hvort breyt-
ingar hefðu verið gerðar á þeim samnings-
drögum sem gerð voru fyrir rúmu ári síðan
milli menntamálaráðuneytisins og borgar-
innar í ljósi ummæla menntamálaráðherra í
viðtölum þess efnis að um lögfræðileg
vafaatriði geti verið að ræða, eða hvort
menntamálaráðherra hefði skipt um
skoðun. Þau óskuðu eftir því að málið yrði
formlega tekið á dagskrá á næsta fundi
fræðsluráðs. „Það var engin afstaða tekin til
þess hvort málið verður tekið á dagskrá,"
sagði Ragnar Júlíusson.
Eftir að borgarstjóra hafði verið falið að
hrinda hinum umdeildu samkomulags-
drögum í framkvæmd skipaði hann tvo
Garðaúðun
háð leyfi
■ Hollustuvernd ríkisins hefur í fyrsta
skipti gefið út reglur um garðaúðun. Sam-
kvæmt þeim verður hver sá, sem ætlar að
stunda garðaúðun að sækja um leyfi til þess
hjá Hollustuverndinni, en áður stunduðu
þessi störf þeir sem höfðu leyfi til að nota
þau efni sem til þarf.
Garðaúðunarmenn verða einnig að upp-
fylla ströng skilyrði um tækjabúnað og
hlífðarklæðnað og þeir munu verða undir
eftirliti heilbrigðisnefnda á hverjum stað og
Vinnueftirlits ríkisins, sem þarf að viður-
kenna tækjabúnað þann, sem notaður er.
Einnig á að samræma varnarmiða, sem
hengdir eru upp í úðuðum görðum, þannig
að þeir verði aðeins af einni gerð. I
reglunum eru jafnframt ákvæði um fram-
kvæmd úðunar, þannig að tillit verði tekið
til umhverfisins. T.d. verður að fjarlægja öll
færanleg leiktæki barna, eða þá breiða yfir
önnur, eins og sandkassa.
Jón Gíslason hjá Hollustuvernd ríkisins
var spurður hvers vegna reglur þessar hefðu
verið settar nú.
„Það urðu miklar umræður um úðun í
fyrra og mikið deilt á þá, sem unnu að þessu
og ég held, að þeir sem vinna að úðuninni
hafi haft mikinn áhuga á að gerðar yrðu
úrbætur,“ sagði Jón.
Mjólkurfram-
leiðsla aukist
■ Af alls rúmlega 38,3 milljónum lítra af
mjólk sem bárust til Mjólkurbús Flóamanna
á s.l. ári voru um 22,1 milljón lítra seld sem
nýmjólk, þar af voru 2,5 millj. lítra seldar
austan fjalls. Mjólk sem barst til MBF á
síðasta ári var 0,2% minni en árið 1982, að
því er fram kom á aðalfundi búsins, sem
haldinn var s.l. föstudag.
Ef litið er á síðustu mánuðina 1983 og
þrjá fyrstu mánuði þessa árs hefur hins
vegar orðið veruleg aukning á mjólkurfram-
leiðslu á Suðurlandi. Hins vegar kom fram
á fundinum að þessi þróun væri að breytast
nú í aprílmánuði, sem bendi til að aukningin
í vetur sé til komin vegna þess að sunnlensk-
um bændum sé að takast að jafna ársfram-
leiðsluna, þ.e. að losna við hinn stóra
framleiðslutopp sem venjulega hefur komið
yfir sumarið, sem talið er mikilvægt bæði
gagnvart markaðinum og rekstri búsins.
Mjólkurbússtjóri hvatti bændur til að draga
úr fóðurbætisgjöf næstu mánuðina.
Nettó útborgun til bænda, að frádregnum
flutningskostnaði til búsins, stofnlánasjóðs-
gjaldi og sjóðatillögum, varð 11,29 kr. á
hvern lítra. Fram kom á fundinum að
rekstur MBF hafi gengið fremur vel á s.l. ári.
menn í nefnd til að ræða um málið við
menntamálaráðuneytið. Þeir voru Ragnar
Júlíusson og Björn Halldórsson, en af hálfu
menntamálaráðuneytisins sátu í henni Sól-
rún Jensdóttir og Örlygur Geirsson. Gerður
og Þorbjörn töldu ekki ljóst hvort sú nefnd
hefði í einhverju breytt samkomulagsdrög-
unum sem áður lágu fyrir. „Hún fjallaði
eingöngu um framkvæmdaatriði, gömlu
samkomulagsdrögin standa alveg óbreytt,"
sagði Ragnar.
„Það er í reglugerð að ef tveir borgarfull-
trúar óska eftir að taka mál á dagskrá þá skal
það gert,“ sagði Gerður Steinþórsdóttir í
samtali við NTr „og það ætti Ragnar Júl-
íusson að vita. Hún átaldi það að verið væri
að vinna að málinu án þess að fræðsluráð
fylgdist með því. „Við teljum að ekki sé
farið að lögum og því gerum við þá kröfu að
það verði tekið á dagskrá fræðsluráðs."
Hannesog
Kristján
Ljóðabækurnar: 36
ljóð eftir Hannes Péturs-
son og New York eftir
Kristján Karlsson hafa
verið tilnefndar af íslands
hálfu til Bókmenntaverð-
launa Norðurlandaráðs
fyrir 1985. f dómnefnd-
inni, sem valdi bækurnar,
eru: Jóhann Hjálmarsson,
rithöfundur og Heimir
Pálsson, menntaskóla-
kennari.
dppkz computcr
Stórkosdeg verölækkun!
Nú geta allir fengið sér alvöru tölvu
Nú hafa verið felldir niður tollar og söluskattur af töivubúnaöi.
Þetta gerir islendingum kleift að tölvuvæðast í samræmi við
kröfur nútímans. Nú átt þú næsta ieik!
' Nú getum við boöið þér vinsælustu alvöru einkatölvu í heimi,
Apple / / e, en hún hefur nú selst í 1.500.000 eintökum. Meira
en 20.000 forrit eru fáanleg á Apple / / e, en það er mun meira
en nokkur önnur tölva getur státaö af. Mörg íslensk forrit eru
fáanleg á vélina, t.d. fjárhagsbókhald, viöskiptamannabókhald,
lagerbókhald, launabókhald, tollvörugeymsluforrit, veröútreikn-
ingar o.fl. Mundu þaö, aö án forrita er tölva eins og bensínlaus
bíll.
Á Apple / / e er staölaö íslenskt lyklaborö, og hentar hún því
einkar vel til ritvinnslu.
Notendaminni vélarinnar er 64K, en þaö er stækkanlegt í 128K
og ætti þaö aö vera nægilegt fyrir flesta.
Apple tölvur eru notaöar hjá skólum, bönkum, opinberum
stofnunum, einkafyrirtækjum, skipafélögum, flugfélögum, verk-
fræöistofum, læknastofum, rannsóknarstofum, lögfræöistof-
um, endurskoöendum, vélsmiöjum, fataframleiöendum, ráö-
gjafarfyrirtækjum, verktökum, útgáfufyrirtækjum, prentsmiöj-
um og þannig mætti lengi telja. Fjölmargir einstaklingar nota
Apple, svo sem kennarar, rithöfundar, vísindamenn, forritarar,
rafeindavirkjar, radioamatörar, stjórnendur fyrirtækja og stofn-
ana, læknar, verkfræöingar, þýöendur og blaðamenn, og eru
þá aöeins tekin örfá dæmi.
Tilboö:
aöeins kr. 39.980.-
Útborgun kr. 8.000 og eftirstöðvar
á 10 mánuðum!
Skipholti 19, sími 29800