NT - 08.05.1984, Side 4
Þriðjudagur 8. maí 1984 4
Ætlar þú
að
hund?
Nýjar reglur um hundahald í Reykjavík:
„Ég sé ekki hvernig
hægt er að koma
þessu heim og saman“
- segir Skúli Johnsen borgarlæknir
Höldumokkurvið
köttinn í bili
■ „Maður veit aldrei hvað
gerist í tilverunni, en það eru
engar ráðagerðir um slíkt á
prjónunum.“
Þetta sagði Davíð Oddsson
borgarstjóri, þegar hann var
spurður hvort hann ætlaði að fá.
sérhund. En það var Davíðsem
lagði fram tillögu þá um að
hundahald yrði leyft með
ströngum skilyrðum, sem sam-
þykkt var í borgarstjórn í síð-
ustu viku. Davíð var spurður
hvers vegna hann ætlaði ekki að
fá sér hund.
„Við eigum kött og höfum
nóg með hann“
- Ertu kannski ekki áhuga-
maður um hunda?
„Jú,jú, en við höfum ekkert
rætt þetta í fjölskyldunni.“
- Þú útilokar þó ekki að þar
geti orðið breyting í framtíð-
inni?
„Ég útiloka það ekki, en við
höldum okkur við köttinn í
bili.“
■ „Ég sé ekki hvern-
ig er hægt að koma
þessu heim og saman,“
sagði Skúli Johnsen
borgarlæknir, þegar
NT spurði hann hvert
álit hans væri á þeim
rýmkuðu heimildum til
hundahalds, sem borg-
arstjórn samþykkti á
síðasta fundi sínum.
„Ég hef ekki séð samþykktina,
en mér skilst að menn megi
halda hunda að uppfylltum
mjög ströngum skilyrðum, og
það verður þá væntanlega
ennþá ólöglegra en verið hefur
að halda ólöglega hunda. Þetta
krefst mikils eftirlits sem er dýrt.
og það hlýtur að verða að greið-
ast af hundaeigendum, mér
finnst það ekki verjandi að fólk
sem er á móti hundahaldi greiði
Skúli Johnsen borgarlækn-
Hannes Hólm
syngur á árshátíð
■ Hannes Hólm(steinn)
Gissurarson, söngvarinn víð-
förli, er kominn til landsins.
Tilefni ku vera það, að öfga-
. klúbburinn Félag frjálshyggju-
manna á 5 ára afmæli um
þessar mundir og fengu þeir
Hannes til að skemmta. Margir
munu hafa hug á að heyra
Hannes syngja að þessu sinni,
en sá þráláti orðrómur hefur
gengið í landinu, að hann geti
alls ekki sungið. Hafa gárung-
arnir kallað hann „Garðar
Hólm“ af þessum sökum.
Hannes hefur ekki látið orð-
róm þennan sem vind um eyru
þjóta, heldur sendir hann
reglulega fréttatilkynningar
um nám sitt og ferðalög í
Morgunblaðið. Er það siður
hans að enda flestar ferðasögur
sínar á orðunum fleygu, „Sá
einn veit, er víða ratar.“
Því má skjóta hér inn, að
Hannes er óumdeilanlega
flínkur með orðskviði og spak-
mæli ýmiss konar. Hefur hann
oftlega skrifað í dagblöð um
þessa leikni sína. Margir niinn-
ast þess er hann listavel fletti
ofan af ranghugmyndum
manna um nokkur algeng
spakmæli. Eitt var „Sjálfs er
höndin hollust.“
Óvandaðir einhleypingar
höfðu komið þeirri ranghug-
mynd inn hjá landsmönnum
að máltæki þetta hefði klám-
kennda meiningu. Hannes,
leiðrétti misskilning þennan og
upplýsti að höfundurmáltækis-
ins væri enginn annar en járn-
frúin breska, Margrét
Thatcher, og hefði meining
hennar verið sú, að kapítalism-
inn væri góður! Allir sjá nú að
þetta er öldungis kórrétt.
Tal um kór og söng dregur
fram minninguna um mestu
vonbrigði ársins.
Þannig var að Hannes Hólm
hafði skorað á einn verstan
óvin sinn, Ólaf Ragnar
Grímsson, í einvígi. Ástæðan
var sú að Ólafur hafði styggt
Hannes með einhverri ómerki-
legri gagnrýni á Bandaríkja-
manninn Milton Friedman.
Vildi Hannes að þeir fjandvin-
irnir mættust á leiksviðinu í
Austurbæjarbíó og háðu með
sér einsöngskeppni. Var að
skilja á Hannesi að hann vildi
með þessu ganga frá andstæð-
ingi sínum, kommaskrattan-
um, og í leiðinni kveða endan-
lega niður raddir um litla söng-
hæfileika sína.
Undirbúningur var vel á veg
kominn þegar Ólafur Gríms-
son (eins og Hannes nefnir
hann, vegna þess að honum er
illa við að kommar monti sig
með millinöfnum) gerði kröfur
sem voru óaðgengilegar fyrir
Hannes, og var því söngeinvígi
þess aflýst.
Ólafur vildi gera úr þessu
stóran viðburð, þannig að þeir
forsöngvararnir syngju hvor
sinn hlutann í Páskaóratoríu
Hayeks og væri Pólyfónkórinn
hans Ingólfs Guðbrandssonar
með þeim á pallinum. Taldi
Ólafur að úr þessu yrði betri
söngskemmtun ef kórinn
bryddaði á bakröddum við
verkið, sjúbb-í-dú og þannig.
Ingólfur hefur getið sér gott
orð á Ítalíu fyrir þannig útsetn-
ingar á óratoríum hagfræðinn-
ar.
„Kór og samsöngur er sós-
íalismi", sagði Hannes að
bragði og hafnaði hugmynd-
inni alfarið. Sagði hann það
dæmigert fyrir sameignarsinna
að vilja ætíð deila sviðsljósinu
með öðrum og syngja í harm-
óníum. Varaði hann sérstak-
lega við þeirri miklu fjölgun
karlakóra sem orðið hefur í
landinu. Þar væri sósíalisminn
að smjúga inn um bakdyr þjóð-
félagsins.
' Einsöngur og sólo er Hannesi
Aólm hins vegar að skapi.
„Það er einkaframtakið og
kapítalisminn", segir hann.
Loksins, loksins er komið
að því að Hannes ætlar að
syngja á íslandi. Eftirvænting-
in í hópi pólitískra tónlistar-
unnenda er mikil. Allir miðar
eru löngu uppseldir, en nokkr-
ir ganga enn á fimmföldu
frjálsu verði hins svarta mark-
aðar. Mörg félög hafa óskað
eftir að heyra í drengnum, en
hann hefur ekki fengist til að
bóka sig annars staðar en hjá
Félagi frjálshyggjumanna. •
Heyrst hefur að rúsínan í
pylsuenda skemmtunarinnar
verði stuttur fyrirlestur sens
Hannes ætlar að flytja um
einkalíf sitt og öfund annarra.
Loks hyggst hann tileinka
Ólafi Grímssyni siðasta lagið
á prógramminu, en það verður
la'ljö „Þú ert minn súkkulaði-
grís“, eftir nafna hans, Gauk-
inn.
Einn aðgöngumiði á árs-
hátíð þessa hefur borist hingað
í skúmaskotið og mun Skuggi
því gefa skýrslu um gjörning
þennan við fyrsta hentuga
tækifæri. Skuggi
þann kostnað með sínum
sköttum.
Svona eftirlit er ef til vill fram-
kvæmanlegt í minni bæjum en
skýrslur erlendis frá sýna okkur
að í borgum með 80 þúsund
manns og þar yfir er það mjög
erfitt ef ekki óframkvæmanlegt.
En það verður að treysta á
löghlýðni borgaranna og það
kemur í ljós hve hún stendur
traustum fótum.
Skúli var spurður hvort ekki
væri of mikið gert úr þeirri
hættu sem frá hundum stafar
frá heilbrigðissjónarmiði og
svaraði hann því til að heilbrigð-
isþjónustan reyndi að fækka
sjúkdómstilfellum, en hunda-
hald hlyti að fjölga þeim. Hund-
ar bæru með sér sjúkdóma sem
menn gætu smitast af og leynd-
ust lengi með mönnum áður en
þeir uppgötvuðust. Þá stafaði af
þeim ónæði meira en mörgu
fólki þætti heilsu sinni samboð-
ið. Einnig væri þekkt að sumt
fólk hefði ofnæmi fyrir hundum
og yrði fyrir óþægindum af þeim
sökum ef hundur væri í sama
húsi og það. Menn gætu raunar
haft ofnæmi fyrir köttum á sama
hátt, „en það virðist óþarft að
fjölga sjúkdómsvöldum," sagði
Skúli Johnsen.
Á ekki að kjósa
um hesta,ketti
og kanarífugla?
spyr Jón Kristjánsson fiskifrædingur,
stjórnarmaður í Hundaræktarfélaginu
■ „Ég hef ekki ennþá kynnt
mér nákvænilega hvernig þessar
nýju reglur eiga að vera, en ég
fagna því að heimildir til hunda-
halds hafa verið rýmkaðar“,
sagði Jón Kristjánsson físki-
fræðingur í samtali við blaðið í
gær en hann er í stjórn Hunda-
ræktarfélagsins og hefur lengi
barist fyrir því að hundar yrðu
leyfðir í Reykjavík.
Hins vegar skyggir það óneit-
anlega á að það skuli eiga að
hafa allsherjaratkvæðagreiðslu
um það hvort hundar verði
leyfðir eða ekki. Ef meirihluti
verður gegn hundahaldi þá get-
ur það ekki Ieitt neitt af sér annað
en að hundar í borginni deyi út
á nokkrum árum og síðan taki
menn að koma sér upp hundum
á nýjan leik þótt ólöglegir teljist
og sami hringdansinn byrji
aftur. Það verða alltaf hundar í
borginni, þeir verða ekki bann-
aðir“, sagði Jón Kristjánsson.
Hann sagðist ekki skilja hvers
vegna ætti að kjósa um hunda.
„Eigum við ekki að kjósa um
hesta, ketti og kanarífugla",
spurði hann.
Jón sagði að félagsfræðingar
hefðu lengi bent á að meira og
meira malbik kallaði á fleiri
gæludýr, sem fólk hefði til að
stytta sér stundir við, hjálpa sér
til að vinna bug á einmana-
kennd, Þannig væri það heilsu-
farslega gott fyrir fólk að halda
gæludýr.
„Það er talað um að sjúkdóm-
ar fylgi hundum og þá vitnað til
bandormsins en það er löngu
leyst mál“ sagði Jón Kristjáns-
son. Hann minnti einnig á mikil-
vægi þess fyrir börn að geta
umgengist dýr. „Mín börn og
vinir þeirra hafa haft mikla
ánægju af hundum mínum og ég
hef aldrei orðið var við að fólki
væri illa við þá. Hitt er annað að
Jón Kristjánsson.
hundaeigendur verða að siða
hunda sína og temja þá vel.
Mesti vandi hundaeigenda staf-
ar af öðrum bundaeigendum,
sem ekki nenna að hirða al-
mennilega um hunda sína. Það
verður einmitt næsta verkefni
Hundaræktarfélagsins að vinna
að betri hundamenningu“.