NT


NT - 08.05.1984, Side 5

NT - 08.05.1984, Side 5
 IW' Þriðjudagur 8. maí 1984 5 IlI Fréttir Bjami Einarsson í nýrri ársskýrslu Framkvæmdastofnunar ■ ■ Aðeins 15% nýrra starfa í hlut landsbyggðarinnar ■ Af 1.072 nýjum störfum (ársverkum) sem bættust við hér á landi við byggingar og mannvirkjagerð á árunum 1981 og 1982 urðu aðeins 32 störf (3%) til úti á landsbyggðinni, en hin 1.040 (97%) á Suðvest- urlandi, að því er fram kemur í grein Bjarna Einarssonar í nýrri ársskýrslu Framkvæmdastofn- unar. Á Suðvesturlandi (Hval- fjarðarbotn - Hellisheiði) búa nú 60% þjóðarinnar. Bjarni rekur þá fjölgun starfa sem átt hefur sér stað á árunum 1980-1982 og hvernig þau skipt- ast milli landshluta. Fyrsta árið var hlutur landsbyggðarinnar 46% af alls 3.395 nýjum störfum,1981 var sá hlutur38% af alls 3.666 nýjum störfum og árið 1982 komu aðeins 15%, eða 434 störf í hlut landsbyggð- arinnar af alls 2.810 nýjum störf- um það ár. Pá þróun sem lesa megi út úr þessum tölum telur Bjarni ugg- vænlega. Haldi svo áfram virðist ný flóðbylgja flutninga af lands- byggðinni til Suðvesturlands vera að rísa í líkingu við þá sem skall á á höfuðborgarsvæðinu og Suðurnesjum á 6. áratugn- um. Slíkt sé hvorki hagur Suð- vesturlands né landsbyggðar- innar og síst af öllu þjóðarheild- arinnar. Hlutfall landsbyggðarinnar í nýjum störfum 1981-82 í eftir- töldum greinum var sem hér segir: Verslun 21%, banka- og tryggingastarfsemi 22%, sam- göngum 33% og iðnaði og veitum 35%. Samkvæmt því sem að framan segir hafa þessi hlutföll verið stórum lakari fyrir landsbyggðina síðara árið sem hér er fjailað um. Eigi full atvinna að haldast í landinu á árunum 1982-1992 segir Bjarni að um 16.800 ný störf þurfi að bætast við á þessu tímabili miðað við núverandi framleiðni og því fleiri ef fram- leiðni eykst. Eigi að koma í veg fyrir frekari fólksflutninga milli fyrrnefndra landssvæða þurfi um 8.100 þessara nýju starfa að verða til úti á landsbyggðinni, þar sem hlutfallslega stærri ár- gangar séu á leið inn á vinnu- markaðinn, og um 8.700 á Suðvesturlandi. Sé gert ráð fyrir að allur vöxtur atvinnulífsins verði í iðnaði og þjónustugrein- um (þar sem fáir búast við aukningu í landbúnaði, fisk- veiðum og fiskvinnslu) segir Bjarni að þessar greinar saman- lagðar þurfi að vaxa um 30% úti á landsbyggðinni á þessu 10 ára bili og um 15% á Suðvestur- landi. Norrænumþýð- ingarstyrkjum úthlutað í dag - frændur vorir vilja þýða níu íslenskar bækur ■ í dag verður gengið frá úthlutun styrkja til þýðingar og útgáfu norrænna bókmennta af einu norðurlandamáli á annað, en fundur úthlutunarnefndar norræna þýðingarsjóðs- ins er að þessu sinni haldinn hér á landi. Það eru útgefendur sem sækja um styrk til þýðinga og að þessu sinni er sótt um styrk vegna þýðinga á níu íslenskum bókum yfir á dönsku, norsku eða sænsku. Um er að ræða „Sitji Guðs englar“ eftir Guðrúnu Helgadóttur. „Gefið hvort öðru“, og fleiri smásögur eftir Svövu Jakobsdóttur. „Himnaríki fauk ekki um koll“ eftir Ár- mann Kr. Einarsson. Bók með Ijóðum 50 íslenskra kvenna. Tvær íslendingasögur frá 13. öld og ein biskupasaga frá sama tíma. Óvíst er hvort að styrkur fæst vegna allra þessara bóka þar sem sótt er um miklu meira fé en sjóðurinn hefur til umráða, en það er 1,65 milljónir danskar og er helm- ingnum úthlutað nú. Níu prósentum af þessari fjárhæð verður varið til þýðinga yfir á íslensku. Pað er níu manna nefnd sem úthlutar og er formaður hennar Bengt Holmqvist frá Svíþjóð. Fulltrúi íslands í nefndinni er Kristján Karlsson, en varamað- ur hans Gerður Steinþórsdóttir situr þennan fund nefndarinnar. Hetjan í hólminum á ný í sviðsljósið ■ Fyrirlestur Þórhallar Vilmundarsonar prófessors, „Hver var hetjan í hóiminum?“ vakti verðskuldaða athygli, enda var þar brugðið nýju Ijósi á ritun og tilurð tiltekinn- ar Islendingasögu. Þórhallur sýndi fram á með gildum rökum að Harðar saga og Hólmverja á sér hlið- stæðu í hernaðarbrölti og frækilegum tiltekt- um Sturlu Sighvatssonar, og er skrifuð af samtíðarmanni hins síðamefnda Styrmi fróða ábóta íViðey. í fyrirlestri sínum notaði Þórhallur mynd- ir til að skýra mál sitt og glöggva áheyrendur sig vel á þeim aðstæðum sem verið er að lýsa hverju sinni. Þar að auki er Þórhalli einkar lagið að útskýra flókna hluti á einfaldan hátt svo að auðvelt er að fylgja rökfærslu hans. Vegna tilmæla úr ýmsum áttum verður fyrirlestur prófessors Þórhallar endurtek- inn. Flytur hann því „Hver var hetjan í hólminum?" á ný í hátíðarsal Háskóla íslands miðvikudaginn 9. maí og hefst hann kl. 20.40. Það mun einsdæmi að háskólafyrirlestur er endurfluttur vegna óska annars staðar að. Öllum er heimill aðgangur svo lengi sem hátíðarsalurinn rýmir áheyrendur. Macintosh Þessi frábæra nýja 32 bita tölva frá Apple er væntanleg í mjög takmörkuöu magni næstu daga. Vinsamlegast staöfestiö pantanir. Skipholti 19 — Sími 29800.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.