NT - 08.05.1984, Síða 7
Fólks-
flótti úr
Frétta-
stofu
■ Tíðar mannabreyting-
ar hafa verið á fréttastofu
ríkisútvarpsins undanfarið
ár. Nýlega eru hættir tveir
reyndir fréttamenn, þeir
Helgi H. Jónsson og
Gunnar E. Kvaran og nú
hefur Ema Indríðadóttir
sagt upp störfum og mun
hún hætta á miðju sumrí.
Það hefur ekki farið leynt
að fólksflóttinn stafar fyrst
og fremst af óánægju með
kjör.
„Því er alls ekki að
leyna að þetta hefur verið
okkur nokkurt áhyggju-
efni“, sagði Hörður Vil-
hjálmsson fjármálastjóri
ríkisútvarpsins í samtali
við NT. Hann sagði að
það væri öllum ljóst að
launaskrið, það er að segja
yfirborganir til einstakra
starfsmanna, hefði verið
minna hjá útvarpinu held-
ur en fyrirtækjum
almennt. Því hefði kjara-
skerðing undanfarinna ára
mætt starfsmönnum stofn-
unarinnar með fullum
þunga. Hann sagði enn-
fremur að nú væri verið að
leita leiða til að bæta úr
þessu, en það væri erfitt
að finna til þess leiðir.
Þegar hann var spurður
hvort forráðamenn stofn-
unarinnar óttuðust ekki að
með sama áframhaldi
stæði fréttastofan uppi
með eintómt óreynt
starfsfólk, til dæmis á
meðan á sumarfríum
stendur. Hann taldi ekki
mikla hættu á því þar sem
ásókn í fréttamannastöður
væri mikil og yfirleitt væru
reyndir blaðamenn í hópi
umsækjenda. Svo væri
líka fjöldi reyndra frétta-
manna sem ekki hefðu
sýnt á sér neitt fararsnið.
Mikil ólga ríkjandi
meðal starfsfólksins
vegna hugmynda um breytta tilhögun vinnu og hugsanlega fækkun í starfsliði
■ Mikil ólga er nú ríkjandi
meðal starfsfólks eldhússins í
Kópavogshæli vegna breytingar
á vinnutilhögun og fækkunar á
starfsliði, sem skrifstofa Ríkis-
spítalanna tilkynnti að stæði
fyrir dyrum, á fundi með fólkinu
í gær. Var starfsfólkinu tilkynnt,
að annað hvort sætti það sig við
hið nýja fyrirkomulag eða eld-
húsið yrði lagt niður fljótlega.
„Það er í sjálfu sér ekkert
athugavert við það að vinnuveit-
endur breyti um skipulag á
vinnustöðum. En í þessu tilfelli
finnst okkur ekki rétt farið af
stað. Við erum öll með innan
við 13 þúsund á mánuði í
grunnkaup og okkur finnst að
eðlilegra hefði verið að klípa af
hjá einhverjum öðrum“, sagði
Guðlaug Pétursdóttir, trúnað-
armaður starfsfóksins, í samtali
við NT í gær.
Hún sagði að nýja fyrirkomu-
lagið fæli það í sér að vinnutími
morgunvaktar færðist, það er
að segja að hann hefðist klukk-
an átta í stað sjö áður og stæði
til fjögur í stað þrjú, sem þýddi
að álagstíminn milli sjö og átta
á morgnana dytti út og þar með
þúsund krónur af mánaðar-
kaupinu eða þar um bil. Klukk-
an fjögur tæki svo við
kvöldvakt, sem áður hefði hafist
klukkan þrjú, en eftir sem áður
lyki henni klukkan sjö, þannig
að nú væri hún þrír tímar í stað
fjögurra. „Sumir sem á þessari
vakt vinna búa í Reykjavík og
það fer að verða spurning hvort
það borgar sig fyrir þá að fara
með strætó í Kópavog til að
vinna ekki einu sinni hálfan
dag“, sagði Guðlaug.
Guðlaug sagði, að því starfs-
fólki sem sagt yrði upp í kjölfar
fækkunarinnar hefði verið boð-
in ný vinna á Ríkisspítölunum,
en ekkert hefði komið fram um
það hvort það yrðu ræstingar
eða eitthvað annað.
„Engar breytingar ákveðnar“
segir Símon Steingrímsson hjá Ríkisspítölunum
■ „Það hefur ekkert verið ákveðið í þessu efni, en það er í gangi
áætlun um að ná rekstrarkostnaði, og eldhúsin eru eitt af því sem
við höfum haft sérstaklega í sigti á undanförnum mánuðum“, sagði
Símon Steingrímsson, framkvæmdastjóri tæknisviðs Ríkisspítal-
anna, þegar hann var spurður um breytingarnar í eldhúsi
Kópavogshælis. Akvörðunar um breytingarnar eru að vænta síðar
í þessum mánuði.
Símon sagði, að verið væri
að leggja mat á það hvort
ætti að bjóða út aftur hluta af
starfsemi eldhúsa Ríkis-
spítalanna, hvort flytja ætti
mat á milli stofnana í meira
mæli en gert væri, eða hvort
hægt væri að ná fram
rekstrarhagræðingu á þeim
deildum sem væru nú reknar.
„Það hefur verið rætt við
starfsfólk um að gera tilraun
með ákveðnar breytingar í
eldhúsinu, en það hefur eng-
um verið sagt upp. Ef til
breytinga kemur, verður
fólki ekki sagt upp, heldur
verður það fært til innan
Kópavogshælisins eða Ríkis-
spítalanna", sagði Símón
Steingrímsson.
„Eg verð 95
ára í sumar“
- segir Ingibjörg Þorbergs
sem er að hætta hjá útvarpinu
■ Ingibjörg Þorbergs vara-
dagskrárstjóri Ríkisútvarpsins
hljópvarps er nú að hætta störf-
um eftir 38 ára samfellt starf hjá
útvarpinu. Við hringdum í hana
af því tilefni og spjölluðum
aðeins við hana.
- Af hverju ertu að hætta?
„Ég verð 95 ára í sumar, sem
er samanlagður starfsaldur og
aldur. Þess vegna fer ég á
eftirlaun. Ég hætti í raun og
veru ekki fyrr en um áramót, en
ég á inni frí svo að ég hætti upp
úr miðjum ágúst.“
- Hvað tekur við?
„Ég á nóg af áhugamálum.
Svo ætla ég líka að hafa það
gott, vera í garðinum og svona.
Og ef andinn er ekki búinn að
yfirgefa mig, þá ætla ég að fara
að skrifa og semja. Ég hef
reyndar alltaf verið að semja
eitthvað, en þá helst í sumarfrí-
um og öðrum fríum.“
- Er eitthvað sérstakt á leið-
inni frá þér?
„Það eru bæði sögur, ljóð,
leikrit og tónlist. En þetta er allt
hálfklárað, og eins og Halldór
Laxness sagði, þá talar maður
ekki um ófædd börn.“
- Hvað er þér minnisstæðast
úr starfinu?
„Ég er búin að vera í mörgum
deildum, lengst af í tónlistar-
deild. Eg hef verið varadag-
skrárstjóri í 3 ár. Þetta hefur verið
skemmtilegt allt, þetta er fjöl-
breytilegt og lifandi starf. En
eftirminnilegasta árið var þegar
Hjörtur Pálsson dagskrárstjóri
fór í frí, og þá var ég dagskrár-
stjóri. Það var frá 1. okt. ’82 til
1. okt. ’83, og það var bæði
erfitt og skemmtilegt.“
■ Ingibjörg Þorbergs
Hótel Saga:
Súlnasal breytt
„opin kvöld“ duga ekki lengur
■ „Þessi bísnis kallar orðið
á það að meira sé gert fyrir
gestina. Það þýðir ekki lengur
fyrir þig að opna bara dyrnar
og segja „opið í kvöld“ - þú
verður orðið að hafa mikið
meira fyrir því að ná til við-
skiptavinanna heldur en það -
t.d. að bjóða upp á skemmti-
dagskrár og sýningar af ýmsu
tagi“, sagði Wilhelm Wessman
á Hótel Sögu, en þar standa
nú fyrír dyrum breytingar í
Súlnasal á sviði, dansgólfí og
lýsingu.
Wilhelm sagði hugmyndina
að stækka sviðið og skapa þar
búningsaðstöðu og búr fyrir
tæknibúnað svo sem diskótek
ljós og annað. Aukning á
ljósabúnaði er bæði fyrir sýn-
ingar og dans- og diskólýsingu.
Þá munu Súlnaslar dansa á
upphækkuðu gólfi eftir breyt-
ingarnar.
Spurður hvort breytingar
þessar væru vegna þess að
Saga hefði átt erfitt uppdráttar
í samkeppninni s.l. vetur,
sagði Wilhelm það nú eitthvað
annað. „Við byrjuðum á þess-
um breytingum s.l. haust og
síðan hefur verið stanslaust
uppselt hjá okkur hverja ein-
ustu helgi og jafnvel 1-2 helgar
fram í tímann. Þetta hefur
verið líkast því sem það var í
þessa góðu gömlu daga, þegar
Saga hafði allt að því einokun-
araðstöðu á markaðnum”.