NT


NT - 08.05.1984, Síða 8

NT - 08.05.1984, Síða 8
LT Þriðjudagur 8. maí 1984 8 ndur haf Hvað varð um HB-heimilisblaðið? ■ Sl. haust var ég undirrituð beðin að safna áskrifendum fyrir HB-heimilisblaðið og skyldi greiða árið fyrirfram, í árgangi áttu að vera 4 blöð og var hið fyrsta þeirra afhent við greiðslu árgjaldsins. Síðan leið og beið og engin blöð komu og fóru áskrifendur að ókyrrast og spyrja hvenær von væri á blöðunum, sem vonlegt var. Ég byrjaði að hringja í Ósk- ar Mikaelsson, framkv.stj. í janúar og fékk þá þau svör að þetta hefði nú dregist vegna veikinda, en blaðið færi alveg að koma. Næst, þegar ég hafði samband, sagði hann að þau væru hætt Jóhanna (ritsj.) og Smári (ábm.) en hann væri búinn að fá fólk í þeirra stað svo þetta færi nú alveg að koma. Ég hringdi enn og ekki stóð á svörum: Þá átti blaðið að vera komið út um land 14. marz, en ekki gerðist það. Síðast þegar ég hafði samband við Óskar í byrjun apríl, sagði hann að blaðið færi í póst eftir helgina og þetta yrði kynnt í útvarpi og sjónvarpi svo ekki færi fram hjá neinum, svo kæmu blöðin reglulega, næsta blað fyrstu dagana í maí og svo á tveggja mánaða fresti. Svona framkoma finnst mér vægast sagt ómerkileg og sjálf- sagt hafa fleiri en ég verið blekktir til að safna „áskrifend- um“ að blöðum, sem svo koma aldrei út. Virðingafyllst Margrét Guðlaugsdóttir Túngötu 25, Tálknafirði Ihaldspress- an gul og grá -vísa að austan ■ Hrafn Sveinbjarnarson á Hallormsstað bað mig að senda ykkur eftirfarandi vísu í tilefni af því að Tíminn hefur nú hætt göngu sinni og Nútím- inn tekið við. „íhaldspressan gul og grá gerist æði kt'min, loksins er nú lagst í dá landsmálablaðið Tíminn. Með bestu kveðju og ósk um góðan árangur í blaðaút- gáfunni, og vonandi þjarmið þið nú að íhaldspressunni svo um munar, svo glottið á henni fölni. Jón Kristjansson Egilsstöðum ■ Strætisvagnar Kópavogs taka upp nýtt leiðakerfi 2. júní nk. og hafa hagkvæmni, sparnað og þjónustu að leiðarljósi. Nýtt leiðakerfi hjá S.V.K. - Breiðholtið tengist því ■ í blaði þínu NT 3/5 ’84 er fyrirspurn frá „Breiðholtsbúa" um tengsl almenningsvagna- þjónustu milli Kópavogs og Breiðholts. Ástæðurnar fyrir því að ekki hafa verið betri tengsl þarna á milli eru margar, t.d. að ekki eru komin fullnægjandi um- ferðarmannvirki, ekki talin vera þörf á því, mikil einka- bílaeign og fleira mætti telja. Það má segja að leiðakerfi strætisvagna þurfi alltaf að vera í endurskoðun og í því sambandi er rétt að geta þess að leiðakerfi S.V.K. var endurskoðað og breytt veru- lega 1974 og svo aftur 1981 og þá lengt verulega í Austurbæn- um m.a. ekinn hringur um svokallað iðnaðarhverfi, með því var ekið inn undir Reykja- nesbraut og er um 200 m gangur að biðstöð S.V.R í Álfabakka. Það hefur komið í Ijós að umferð gangandi veg- faranda yfir Reykjanesbraut skapar verulega slysahættu, þó slys hafi verið í lágmarki þarna ennþá, sem betur fer. Undanfama mánuði hefur rekst- ur S.V.K. verið í endur- skoðun og markmiðið: Hag- kvæmni - sparnaður - þjón- usta. Það var svo í síðasta mánuði að bæjaryfirvöld í Kópavogi —8---8----=8= ' J Sncl. Grund. Auóbr. Ð V Brcttcbr. Bleaugr. / Astún Hólin. V'v ^ / ©—L | —-o— - ÁLFHÓLSVEGUR [I___Q____, | Alfah. | Engihj. | Stekkjarb.Q \KÓPAVOGSBR. Kópav. Þingólaak lióar SUHAR_0G HELGARttTLUN(VlRKA D*GaJ* 111 Morgun- og mióvakt • —— (U) j ■ Svona lítur SUlVfAR OG HELGARÁÆTLUN S.V.K. út virka daga, morgun- og miðvakt. Áætlunin tekur giidi 2. júní nk. og gildir frá kl. 6.40 - 19.30. Ferðirnar verða á 30 mín. fresti á tímunum kl. 7-9 og 16-19, en á öðrum tímum á 15 mín. fresti. samþ. nýtt leiðakerfi fyrir un“ sem þýðir að það er ekið á ca. 15 mín., sem sagt ekið S. V.K. sem gert er ráð fyrir að hálftímafresti, nema á morgn- meira þegar þarf en dregið úr byrji laugardaginn 2. júní n.k. ana og seinni hluta dags akstriþegarfarþegarerufærri. og þá svokölluð „Sumaráætl- (virka). Þá verða þéttari ferðir Með þessu nýja leiðakerfi er ákveðið að vagnar S.V.K. aki í Breiðholt þ.e.a.s. ekið verður austur Smiðjuveg inn á Reykjanesbraut, af henni inní Álfabakka að biðstöð S.V.R. (gegnt B.P. bensínstöðinni), síðan beygt til hægri í Stekkjar- bakka og biðstöð S.V.R. þar síðan inn á Breiðholtsbraut og þaðan upp Suðurhlíðarveg inn í Kópavog aftur og í skiptistöð (sjá kort) Góð samvinna er við S.V.R. um biðstöðvar og eins er gagn- kvæmt skiptimiðakerfi síðan 1974. Það er því von þeirra sem að þessari breytingu standa að hún komi sér vel. Forráðamönnum er það vel ljóst að þetta er erfið leið að aka á álagstímum vegna mikill- ar umferðar en það er okkar von að reynt verði að liðka til fyrir þessum þörfu samgöngu- tækjum, eins og kostur er. Ég geri ekki frekari grein fyrir þessu nýja leiðakerfi í þessari blaðagrein en vil þó að lokum upplýsa eftirfarandi: Farþega- fjöldi árið 1983 var um 2,3 milljónir, heildarakstur á öllum vögnum um 580 þús. km. Farþegum fjölgaði um 4% á árinu 1983. Kópavogi 4. maí 1984 Karl Árnason forstöðumaður S.V.K. Dónaskapur sjónvarpsins ■ Mér finnst dónaskapur sjónvarpsins með afbrigðum. í íþróttaþætti síðast liðinn mánudag var farið rangt með nafn á átta ára dreng sem varð efstur í sínum flokki á Andrés- ar andar - leikunum. Ekki nóg með að nafnið væri rangt held- ur þurfti Bjarni Felixson endi- lega að kenna hann við rangan kaupstað. Þegar ég fór þess á leit að sjónvarpið leiðrétti þessi mistök varð fátt um svör, sagt að Bjarni væri í beinni útsendingu og ekki hægt að fá að tala við hann. Mér er spurn hvort ekki hefði mátt koma til hans bréfsnepli? Drengurinn sem hér um ræðir heitir Róbert Hafsteins- son, en ekki Harðarson. Hann er frá Isafirði en ekki Akureyri. Og ég vil benda Bjarna Felixsyni á það, að átta ára börnum þykir ekki síður vænt um að þeirra sé getið fyrir afrek sem þau vinna en full- orðnu fólki. Þess vegna er ekki síður ástæða til að leiðrétta nafnabrengl hjá þeim en þegar fullorðnir eiga í hlut. Annars vil ég þakka sæmilegan íþrótta- þátt. Einar Valur Kristjánsson á ísafirði Börnum þykir ekki síður vænt um að þeirra sé getið fyrir afrek sem þau vinna en fullorðnu fólki, segir bréfritari. En þá verður líka að fara rétt með nöfn þeirra. Launaumslögin koma eftir 4 til 16 mánuði ■ Peningarnir í launaumslaginu eru oft orðnir lítils virði eftir 4-16 mánuði. ■ Um síðustu mánaðamót greiddi Mjólkursamsalan bændum suð-vestanlands upp mjólk frá í fyrra, 220 milljónir. Það hefur verið erfitt fyrir bændur að lána þetta óverð- tryggt í verðbólgunni. Fóður- verð tvöfaldaðist á árinu. Veðurfar alþekkt. Ba:ndur hafa lifað á skuldasöfnun. Er það von mín að hægt verði að borga upp ekki sjaldnar en á 6 mánaða fresti. Nú hefur ráðherra stungið M.S. og þar með bændum í fjárlagagatið. Hætt er við að enn sé glufa sem vel mætti fylla upp í. Væri ekki ráð að haga launagreiðslum ríkisstarfs- manna líkt og bænda, greiða í einu lagi eftir 16 mánuði.? Trausti Skúlason Skógarnesi

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.