NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 08.05.1984, Qupperneq 14

NT - 08.05.1984, Qupperneq 14
ÍW' Þriðjudagur 8. maí 1984 14 Lil Úttekt GARÐA HVAÐ^ i Iííi vlTuu]^ LLLLLLV/'Í llll“*m& lLtLLUfe 'X, GARÐA- PLAST hefur verið notað við kartöflurækt með góðum árangri. Garðaplast ★ Eykur uppskeruna ★ Eykur gæði kartafl- anna ★ Styttirvaxtartímann Veljið það besta Heildsölubirgðir 1'liisl.os lll’ © 8 26 55 Sólarlandaferðirnar: Sólin er uppseld!“* ■ „Sólin er uppseld“; Ef til vill til sæti í júlí og september en annað uppselt; „Mikið til fullt í sólarlandaferðir hjá okkur.“ Þetta voru svör sem NT fékk undantekningarlaust hjá ferðaskrifstof- um þegar blaðið spurðist fyrir um eftir- spurn eftir sólarlandaferðum í sumar. Petta er önnur saga en í fyrra þegar sólarlandamarkaðurinn brást miðað við þær áætlanir sem gerðar höfðu verið. Árið 1982 hafði verið mjög mikið ferðaár og ferðaskrifstofurnar miðuðu áætlanir sínar fyrir árið 1983 við það. Síðan kom í ljós að ferðir til sólarlanda bókuðust illa, og skrifstofurnar gerðu þá ráðstafanir, felldu niður ferðir eða sameinuðu leiguflug. Petta varð til þess að ferðaskrifstof- urnar sluppu flestar með sæmi- lega heil skinn, þrátt fyrir að tap yrði á rekstri þeirra yfir árið. Vegna þessa var hálfgerður kreppuviðbúnaður hjá ferða- skrifstofunum í haust þegar þær skipulögðu sínar ferðir til sólar- landa. Sætaframboð í leigu- flugum er nú talsvert minna í heild en það var í fyrra eftir samdráttarráðstafanirnar. En svo virðist sem ekki hafi verið ástæða til svartsýni því eins og sagði í upphafi hefur eftirspurn eftir skipulögðum ferðum, hvort heldur er til sólar- landa eða í sumarhús í Evrópu, verið mjög mikil í vor. Þetta kemur e.t.v. á óvart eftir krepputal og kjaraskerðingu undanfarinna mánuða: bendir þetta til þess að þrátt fyrir tal um lág laun og erfiðleika við að ná endum saman sé þessu ekki svo farið í raun? NT sneri sér til nokkurra framámanna í ferðaiðnaðnum og spurði þá hverju þetta sætti að þeirra dómi. Aukinn stöðug- leiki í þjóðfélaginu „Ég held að það sé þessi aukni stöðugleiki í þjóðfélag- inu. Fólk virðist ákveða sig snemma og fyrr en venjulega. Það veit meira að hverju það gengur og getur þar af leiðandi gert áætlanir fram í tímann" sagði Ingólfur Guðbrandsson forstjóri Útsýnar en Útsýn er stærsta ferðaskrifstofan á sólar- landamarkaðnum. „Betri kjör á ferðum koma þarna einnig við sögu. Verðið á þeim hefur ekki hækkað eftir gengisfellingu í fyrra og í sumum tilfellum hefur það lækkað vegna ennþá hag- stæðari samninga og afnáms ferðamannagjaldeyrisskatts- ins.“ „Veðurfarið undanfarið, tveir þungir vetur og vont sumar í fyrra, gott verð á ferðunum nú og yfirleitt lægra en í fyrra og almennt betri greiðsluskilmálar eru atriði sem hafa mikið að segja“ sagði Karl Sigurhjartar- son, framkvæmdastjóri Úrvals. „En það kemur fleira til, ákveð- inn stöðugleiki í þjóðfélaginu eykur bjartsýnina. Fólk sem veit nú nokkurnveginn hvar það stendur og treystir sér því betur til að leggja í svona fjárfestingu. Samningar við verkalýðsfélögin gengu síðan c.t.v. betur en menn þorðu að vona og gengið helst stöðugt.“ „Veðurfarið hefur haft mikið að segja“ sagði Steinþór Einars- son sölustjóri hjá Samvinnu- ferðum - Landsýn. Menn eru orðnir þreyttir eftir tvo erfiða vetur og síðan léttan „vetur“ í fyrrasumar. Mér er sagt að á- standið á fasteignamörkuðum sé t.d. frekar rólegt, fólk fari frekar út í sumar en að fara út í stærri fjárfestingar.“ ■ Böðvar Valgeirsson stjóri Atlantik. Og nú eru önnur viðhorf í peningamálum. Áður kom fólk og kynnti sér verð sem síðan þegar til átti að taka hafði hækkað um 10-15%. Nú finnur maður á fólki að það gerir ráð fyrir að verð sem það fær í hendurnar á vori standist fram eftir sumri. Við höfum líka ýtt undir þessa trú því fátt bendir til þess að þetta þurfi að hækka." er „Þetta land okkar er e.t.v. ekki besti staður í heimi þó það sé margt gott um það að segja. Það er hálfgert veðravíti" sagði Böðvar Valgeirsson forstjóri Atlantik. „Fyrir 20 árum eða svo þekkti fólk ekki annað en nú eru utanlandsferðir orðnar fastur þáttur í lífi margra; það að hlakka til einhvers frís og það er tilbúið að láta annað víkja. Þetta er mynstur sem gengið hefur í gegnum síðustu áratugi í nágrannalöndum okkar. „í fyrra hélt fólk að höndum þar sem það vissi ekki hvar það stóð, sagði íslaug Aðalbjörnsdóttir forstjóri Ferðamiðstöðvarinnar. „Þetta er öðruvísi nú. Gengið stöðugt og fólk trúir að það geti gert áætlun sem stenst fram í tímann. Fólk ákvað sig snemma nú, það kom hér og var þá búið að ákveða sig þá þegar og þurfti ekki að velta vöngum.“ Eins og lesa mátti er varla hægt að benda á neina einhlíta skýringu á meiri ferðagleði ís- lendinga nú í sumar en í fyrra, en þó má ætla að þær ástæður sem flestir nefndu, íslenska veðráttan og meiri festa í pen- ingamálum séu aðalskýringarn- ar. En auk þess vegur örugglega þungt á metunum að verð sólar- for- landaferðanna er tiltölulega hagstætt, hefur í sumum tilfell- um staðið í stað frá því í fyrra ogjafnvel lækkað. Þar kemurtil stöðugleiki í gengismálum og einnig afnám ferðamannagjald- eyrisskattsins eins og Ingólfur Guðbrandsson nefndi. Áður þurftu ferðaskrifstofur að greiða fyrir hótel og íbúðir ytra í ferðamannagjaldeyri en eftir af- nám hans hafa ferðirnar lækkað í raunvirði. Auk þess koma til hagstæðari samningar við flugfélögin um leiguflug, kvöld- flug og fleira. Hagnaður víkur fyrir tryggri afkomu ■ Karl Sigurhjartarson fran- kvæmdastjóri Úrvals. ■ Ingólfur Guðbrandsson for- stjóri Útsýnar. En samdráttur í sætafram- boði hefur einnig áhrif á verð- lagningu. Með því móti fæst betri nýting á ferðunum enda er verðlagning þeirra öðrum þræði miðuð við góða nýtingu. Þá er hagnaðarsjónarmiðið frekar látið sitja á hakanum fyrir tryggri afkomu. í leigu- flugum er miðað við að ákveðið

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.