NT - 08.05.1984, Page 16
Þriðjudagur 8. maí 1984 16
Úttekt á klæðnaði gesta við
- Alltfráþvíaðverastórglæsilegur
■Úthlutun Óskarsverðlauna hefur lengi verið ágætis tæki-
færi fyrir gesti til að sýna sig og sjá aðra.
Og þá er um að gera að ganga sem mest í augu áhorfenda,
því að hver sá, sem hverfur í f jöldann og enginn tekur eftir,
hefur þar með glatað einstæðu tækifæri, sem ekki gefst
aftur kostur á fyrr en að ári liðnu.
1 Hönnuðurinn Jacques Beliini hefur gert nokkrum gesta
við hátíðina þann greiða að gera athugasemdir við
CHÉR Perlusaumaði kjóllinn, sem huldi ekki meira
en bráðnauðsynlegt er, var alveg stórkostlegur. Hann er
fleginn næstum niður á nafla og klæddi hana gífurlega
vel. Hún bar af öllum öðrum á hátíðinni.
CHRISTIE BRINKLEY Það var ekki hægt að fá
nokkurn botn í hvernig hún var klædd. Það var engu
líkara en að hún hefði í hasti smeygt sér í svartan nærbol
og pils. Hún var eins og gagnfræðaskólastúlka.
LIZA MINELLI Fjólublátt og Liza eiga bara alls ekki saman. Hún er stórkostleg
kona, en það var engu líkara en að hún hefði reyrt á sér brjóstin, svo að hún gæti
verið í þessari spennitreyju.
Nureyev (? ára). -
*■**"*■ °bú«in8num<r-*>
Nureyev dansar ballett
í fíkjublaði
■ Þótt Rudolf Nureyev sé
með eldri ballett-dönsurum
sem enn dansa sem aðaldans-
arar, þá er langt í frá að hann
sé gamaldags í verkefnavali.
Nú er Nureyev að dansa í
ballettsýningu, sem 89 ára
danskennari, Martha Grahant,
er höfundur að, en dansinn
þykir þó mjög nýtískulegur.
Hún tekur fyrir efni, sem alls
ekki hefði komið til greina að
sýna á sviði, þegar hún var upp
á sitt besta, - en eins og hún
segir í blaðaviðtali þá er hún
svo heppin að hafa heilsu til að
starfa að ballett þrátt fyrir
háan aldur og tileinka sér ný
vinnubrögð og ný viðhorf á
mörgum sviðum.
Þessi dans hennar, sem
Nureyev dansar nú í er kallað-
ur „homosexual ballett“.f’ykir
ballettinn fallegur - en nókkuð
djarfur, t.d. dansar Nureyev í
fíkjublaði (úr teygjuefni) einu
saman!
■ Þó að ekki séu allir á eitt sáttir um vinnubrögð bandarísku kvikmyndaakademíunnar, var Shirley MacLaine harðánægð með að
vera nú loks álitin verðug Óskarsverðlaunanna eftir 26 ára tilraunir til þess. Jack Nicholson varð ekki eins uppnæmur, enda er þetta í
annað sinn, sem hann hlýtur náð fyrir augum (ýmist opnum eða lokuðum) meðlima akademíunnar.