NT - 08.05.1984, Qupperneq 26
Þriðjudagur 8. maí 1984 26
Hvammstanga-
hlaupið...
■ Hvammstangahlaup
veröur haldið laugardag-
inn 12. maí n.k. kl. 14.00.
Hlaupið hefst við Félags-
heimilið á Hvammstanga
og er keppt í sömu flokk-
um og í víðavangshlaupi
íslands þ.e. karlar 8 km,
konur 3 km, drengir og
sveinar 3 km, piltar og
telpur 1.5 km, strákar og
stelpur 1.5 km. Keppt er
um bikar í hverjum flokk
fyrir 3ja manna sveit, Þátt-
tökutilkynningar þurfa að
berast fyrir fimmtudags-
kvöld 10. maí itl Flemm-
ings Jessen síma 1368, eða
Páls Sigurðssonar síma
1328.
Hlaup þetta er liður í
stigakeppni Víðavangs-
hlaupanefndar veturinn
1983-1984.
Breiðablik
tók ÍBV
Frá Sigfúsi Guðmunds-
syni, Vestmannaeyjum:
■ Breiðablik sigraði
ÍBV hér um helgina í
bæjarkeppni milli Vest-
mannaeyjakaupstaðar og
Kópavogskaupsstaðar
með fjórum mörkum gegn
tveimur.
Breiðablik komst í 4-0
þegar 3 mínútur voru Iiðn-
ar af síðari hálfleik, staðan
í hálfleik var 3-0. Vest-
mannaeyingar náðu svo að
klóra í bakkann í síðari
hálfleik og gerðu þá tvö
mörk.
Mörk Breiðabliksgerðu
Ingólfur Ingólfsson, Jó-
hann Grétarsson, Ómar
Rafnsson og Benedikt
Guðmundsson. MörkÍBV
gerðu Sigurjón Kristins-
son bæði (Jonni).
Haraldur
setti met
Evrópumeistaramótið
í ólympískum lyftingum
fór fram í
Vitoria á Spáni fyrir
skömmu. Frír Islendingar
voru meðal keppenda á
mótinu, Haraldur Olafs-
son og tvíburabræðumir
Gylfi og Garðar Gíslasynir
frá Akureyri.
Mikið var um sterka
keppendur á mótinu og
var gengi íslensku kepp-
endanna í samræmi vð það
þótt þeir stæðu sig vel á
íslenskan mælikvarða.
Haraldur Ólafsson
keppti í 75 kg flokki og
lenti í 15. sæti. Hann snar-
aði 127,5 kg og jafnhenti
172,5 kg, sem er nýtt Is-
iandsmet. Hér er einnig um
Islandsmet að ræða í
samanlögðum árangri, 300
kg slétt.
Gylfl keppti í 90 kg
flokki og lenti í 18. sæti.
Hann snaraði 140 kg og
jafnhenti 175 kg. Saman-
lagt eru það því 315 kg.
Tvíburabróðir hans
Garðar Gíslason keppti í
100 kg flokki. Hann snar-
aði 145 kg og jafnhenti
175 kg.
„Verð líklega
áfram í Cannes"
■ „Það getur allt gerst“, sagði
Teitur Þórðarson, þegar blaða-
maður NT inni hann eftir því
hvað tæki við hjá honum á
næsta keppnistímahili í knatt-
spyrnunni.
„Ég á eitt ár eftir af samning-
num hér í Cannes og mestar
líkur eru á því að ég verði hér
áfram. Hins vegar hafa bæði
sænsk og frönsk lið sýnt því
áhuga að fá mig til sín og allt
getur gerst í þeim málum. Jafn-
vel flyt ég mig til hér innan
Frakklands", sagði Teitur.
Cannes leikur sem kunnugt er í
2. deild og hafnaði þar í sjötta
sæti á nýloknu keppnistímabili.
Áður lék Teitur með 1. deildar-
liðinu Lens og kann því að vera
freystandi fyrir Teit að komast
aftur í 1. deildarkeppnina, þar
sem lið í 1. deild hafa áhuga á
því að fá hann til sín. Þá varð
Teitur sænskur meistari með
Öster tvö ár í röð, þegar hann
lék í Svíþjóð fyrir nokkrum
árum.
Þú ert ekkert á leiðinni heim
til að leika með í A?
„Nei, það held ég ekki. Ég
ætla mér að leika erlendis í tvö
til þrjú ár í viðbót“, sagði Teitur
Þórðarson, í NT-viðtali í gær.
Ný stjama í Belgiu
-18 ára gamall ftali nú í aðalhlutverki hjá Anderlecht
■ „Enzo Scifo er áreiðanlega
mesta efni sem fram hefur kom-
ið í evrópskri knattspyrnu í ár“
segir þjálfari Anderlecht, Paul
van Himst, um hinn 18 ára
gamla miðvallarleikmann, sem
núna er að verða einn aðalmað-
urinn í leik Anderlecht, í belg-
ísku knattspyrnuni.
Scifo fæddist í Belgíu 1966 og
er sonur sikileyskra innflytj-
enda, sem fluttu til Belgíu upp
úr 1950. Þar fyrir er Scifo
ítalskur ríkisborgari.
Sjö ára gamall hóf Scifo feril
sinn sem knattspyrnumaður
hjá La Louviere, en með því
félagi léku einmitt tveir íslend-
ingar, átímabili, þeirKarl Þórð-
arson og Þorsteinn Bjarnason.
Þar sem leikmenn yngri en átta
ára fá ekki að taka þátt í
knattspyrnukeppni í Belgíu,
fékk La Louviere væga sekt
fyrir að nota Scifo í leik. Síðan
vann hann sig upp og lék með
unglingaliðum La Louviere, allt
þar til hann var 14 ára gamall.
Þá var hann keyptur til Ander-
lecht fyrir aðeins eina milljón
franka (eða 18.000 dollara).
Síðasta keppnistímabil lék hann
með unglingaliði Anderlecht og
í vetur fór hann að koma inná í
leikjum aðalliðsins, sem varam-
aður þegar skammt var til leiks-
loka.
En svo fór Enzo Scifo að
leika meira og meira. Þegar
Anderlect lék síðari leik sinn
gegn Nottingham Forest í
UEFA-keppninni var Scifo stór
póstur í 3-0 sigri Anderlecht í
leiknum og var talinn besti mað-
ur vallarins. Fyrir leikinn voru
möguleikar Anderlect taidir
litlir, þar sem þeir höfðu tapað
fyrri leiknum, í Englandi, 2-0.
Næstkomandi miðvikudag
munu augu 10 milljóna Belga
beinast að Enzo Scifo og fé-
lögum hans í Anderlecht, því
þá leika Anderlecht og Totten-
ham Hotspur fyrri úrslitaleik
sinn um UÉFA bikarinn.
Scifo hefur nú skorað fjögur
mörk fyrir Anderlect f vetur,
eftir að hann fór að leika með
aðalliðinu, á miðju
keppnistímabilinu. Aðalhæfi-
leikar hans eru hárnákvæmar
sendingar og hnitmiðuð föst
skot og hefur honum verið líkt
við Brasílíumanninn stórkost-
lega Pele og argentínska goðið
Diego Maradona. Ekki dóna-
legur félagsskapur það fyrir 18
ára gutta.
Nýlega hefur athygli annarra
liða beinst að Scifo og haft er
fyrir satt að útsendarar frá ■
ítölskum félögum hafi sést á
sveimi við bækistöðvar Ander-
lect.
Sjálfur segist Scifo hafa mest-
an áhuga á því að fara til Ítalíu,
sem innfæddur, því samkvæmt
þarlendum reglum telst hann
útlendingur, því hann hefur
leikið svo lengi í Belgíu. Það
ætti hins vegar ekki að vera eins
mikið mál fyrir Scifo að fá að
leika með ítalska landsliðinu
þegar fram líða stundir.
Þess má geta að lokum að þau
tækifæri sem Scifo hefur fengið
með Anderlecht í vetur, koma
til vegna þess að aðalmiðvallar
leikmaður liðsins frá því í fyrra,
Arnór Guðjohnsen, hefur átt
við meiðsl að stríða í allan vetur
og af þeim sökum ekki getað
leikið með liðinu.
Reykjavíkur-
mótið í kvöld:
■ Einn leikur fer fram í Reykjavíkurmót-
inu í knattspyrnu í kvöld. Leika þá Valur og
Fylkir og eru Valsmenn sigurstranglegri.
Það gæti þó orðið gaman að fylgjast með
þessari viðureign. Valsmenn tefla fram
mjög ungu liði og með þeim leika ýmsir
nýir leikmenn. T.d. Örn Guðmundsson
áður í KR og Jóhann Þorvarðarson, sem
áður lék með Víkingi.
■ „Liðssamvinna í hnotskurn“ gæti þessi mynd heitið. Við rákumst á hana í erlendu blaði og gátum
ekki stillt okkur um að birta hana. Það mun vera franska landsliðið í rugby sem svona vel vinnur saman
í leikjum. Þeir virka nú heldur þreytulegir greyin enda örugglega ekkert auðvelt að stunda íþrótt sem
rugby.
VIPPU-
bílskúrshurðin
Lagerstærðir 210 x 270 cm,
aðrar stærðir eru smíðaðar eftir beiðni
Gluggasmiðjan Síðumúla 20
Reykjavfk - Símar 38220 og 81080
Punktar...
... í A-Þýskalandi er það
helst að frétta að Dynamo
Berlin leiðir í fyrstu deild-
inni þar með 37 stig eftir
24 leiki. í öðru sæti er
Dynamo Dresden með 34
stig eftir 24 leiki. í öðru
sæti er Dynamo Dresden
með 34 stig eftir 24 leiki og
í þriðja sæti er Lokomotiv
Leipzig með 33...
... Austria Vín og Rapid
frá Vín eru efst og jöfn í
Austurríki. Hvort lið um
sig er með 39 stig. í þriðja
sæti er Lask með 36 stig...
... Grikkland. Nú bíða
margir spenntir. Panathin-
aikos er efst með 46 stig en
í öðru sæti er Olympiakos.
Liðið í þriðja sæti heitir
Iraklis og hefur 42 stig.
Fyrir aðdáendur Paok
liðsins þá má geta þess að
það er í fimmta sæti með
35 stig...
... Rauða stj arnan frá Bel-
grad hefur nauma forystu
í júgóslavnesku knatt-
spyrnunni, er með 36 stig,
einu stigi meira en Partiz-
an og Rijeka sem hafa þar
af leiðandi 35 stig...
Grimsby úr leik
■ Það má segja að Grimsby
hafl endanlega misst af fyrstu
deildarsæti með tapi sínu gegn
Oldham í gærdag. Leiknum
lauk mcð tveimur mörkum gegn
einu. Blackburn og Cardiff
skildu jöfn, 1-1. Brighton sigr-
aði Middlesbrough 3-0, Cam-
bridge vann Shrewsbury, 1-0 og
Carlisle og Crystal Palace gerðu
jafntefli, 2-2. Fulham sigraði
Charlton á útivelli í skemmti-
legum leik með fjórum mörkum
gegn þremur. Chelsea fór létt
með Barnsley, sigraði 3-1 og
Newcastle tryggði sér fyrstu
deildar sæti með jafntefli gegn
Huddersfíeld á útivelli. Topp-
liðið, Sheff. Wednesday sigraði
Manchester City ekki, heldur
gerði jafntefli án þess að mark
væri gert í leiknum. Loks má
geta þess að Swansea og Leeds
skildu jöfn 2-2.
I skosku deUdinni léku Dund-
ee United og Aberdeen og fór
það þannig að hvorugt liðið
náði að setja mark.
Hagkaups
Open
■ Opna Hagkaups golf-
mótið, verður haldið á
HómsveUi í Leiru um helg-
ina 12.-13. maí. Byrjað
verður að ræsa út laugar-
daginn kl. 8.00. Skráning
hefst á morgun, miðviku-
daginn 9. maí kl. 19.00 í
golfskálanum Leiru, sími
2908. Reglugerð mótsins
mun þá liggja frammi.
Æfingadagar verða á
fimmtudag og föstudag.
Leiknar verða 36 holur
eftir Stableford, 18 holur
hvom dag.
Veitt verða 15 glæsUeg
verðlaun og í fyrstu verð-
laun verður Dunlop
Maxfli Model ’84 ásamt
poka og kerru, að verð-
mæti 40.000 kr. sem munu
vera ein glæsilegustu verð-
laun sem veitt hafa verið
hér á landi. 2.-15. verð-
laun eru IKEA-vörur og
er heUdarverðmæti vinn-
inga um 80.000 kr.
Þá fær sigurvegarinn
nafn sitt skráð á farand-
grip sem geymdur er í
verslun Hagkaups í
Njarðvík. Sigurvegari í
þessu móti í fyrra var Sig-
urður Pétursson. Kepp-
endur eru minntir á að
sýna félagsskírteini til
sönnunar forgjafar.
Iþrótta-
maður
HSK
1983
■ I febrúar s.l. var hinn
kunni afreksmaður Vé-
steinn Hafsteinsson frá
Selfossi kjörinn íþrótta-
maður ársins innan Hér-
aðssambandsins Skarp-
héðins.
Vésteinn er 23 ára
kringlukastari. Frami hans
í kringlukasthringnum
hefur verið skjótur og
glæsilegur. í fyrra kastaði
hann í fyrsta sinn yflr 60 m
og bætti sig um 6.12 m frá
fyrra ári. Hann setti 9
HSK met og eitt Islands-
met og varð íslandsmeist-
ari í kringlu. íslandsmetið
setti hann í Bikarkeppni
FRÍ, kastaði 65.50 m, og
mun það hafa verið annar
besti árangur á Norður-
löndum á árinu. Vésteinn
náði Olympíulágmarkinu
15. maí er hann kastaði
62.60 m.
Vésteinn varð fímmti á
bandaríska háskólameist-
aramótinu með 61.50 m.
Hann keppti á Heims-
meistaramótinu og varð í
24. sæti. Þá náði hann
þeim frábæra árangri að
vera valinn í úrvalslið
Norðurlanda (3 í grein),
sem keppti gegn banda-
ríska landsliðinu í Stokk-
hólmi. Hann var fasta-
maður í íslenska landslið-
inu í kringlukasti og kúlu-
varpi. Keppti með því í
Kalottkeppninni, 6-landa-
keppni í Edinborg, Kast-
landakeppni við Itali og
Evrópukeppni í Dublin.
Samkvæmt alþjóðlegri
stigatöflu hlaut Vésteinn
1.129 stig, sem er besta
afrek íslendings 1983. Til
samanburðar gefur afrek
Einars Vilhjálmssonar í
spjótkasti 1.099 stig.