NT - 08.05.1984, Page 27

NT - 08.05.1984, Page 27
 Þriðjudagur 8. maf 1984 27 LlL .. ' * :í - - . ■ - . ':.-Á -'Á- ^ fþróttir lan Rush gerði fjögur mörk í gær: Liverpool nú með fimm stiga forskot - sigraði Coventry 5-0 í gær og Man. Utd. tapaði óvænt á heimavelli gegn Ipswich Brian Clough umlan ■ Maður gærdagsins í Bret- landi í gær var auðvitað lan Rush, markaskorarinn mikli hjá Liverpool. Brian Clough hinn virti framkvæmdastjóri Nottingham Forest var beðinn um að segja álit sitt á lan Rush, fyrir skemmstu í bresku íþrótta- blaði. Clough sagði m.a.: „Hann hreinlega getur ekki hætt að skora mörk. Allt sem pilturinn gerir, er gert af hreinni eðlisávísun, og allt gerir hann frábærlega vel. Ef hann misnot- Rush: ar dauðafæri sem gerist örsjald- an, þá er hann ekki lengi að notfæra sér það næsta. Ég veit að sumir segja að það muni öllu fyrir Rush að vera í Liverpool liðinu sem er svo geysisterkt. Ég veit að hann myndi skora og skora þótt hann væri í einhverju öðru liði. Og þó, hann myndi kannski ekki skora nema 30 rnörk á keppnistímabili". Þetta sagði Clough um kauð- ann Rush, sern nú hefur gert 56 mörk á keppnistímabilinu, og geri aðrir betur! ■ Ian Rush, gerði hvorki meira né minna en fjögur mörk í 5-0 sigri Liverpool gegn Co- ventry er liðin léku í gær í ensku fyrstu deildinni. Petta var sætur sigur og kannski enn sætari fyrir vikið að helstu keppinautar Liv- erpool um meistaratitilinn, Manchester United, töpuðu mjög óvænt á heimavelli gegn Ipswich, sem hefur staðið sig afar vel undanfarið. Ipswich vann 1-2 Lítum þá á úrslitin í fyrstu deild í gær: Arsenal-West Ham .............3-3 Aston Villa-Everton...........0-2 Luton-Stoke...................0-1 Man.Utd.-lpswich..............1-2 Norwich-Birmingham............1-1 Nott. Forest-Watford......... S-1 QPR-WBA ......................1-1 Southampton-Tottenham ........5-0 Sunderland-Notts County......0-0 Wolverhampton-Leicester .... 1-0 Já hann er engum líkur hann Ian Rush og sá var í banastuði í gærdag gegn Coventry, lék á als oddi og gerði 4 mörk, ekki í fyrsta sinn á ferlinum. Þar sem United tapaði leiknum gegn Ipswich, þá hefur Liverpool nú 5 stiga forskot, hvorki meira né minna og eru nú nær öruggir með meistaratitilinn. Rush gerði fyrsta mark leiksins á 43. mínútu og setti nýtt félagsmet í markaskorun á einu ári hjá Liverpool, þetta var hans 43 mark í vetur og þar féll 22 ára gamalt met Roger Hunts. Nokkrum sekúndum síðarskor- aði Rush svo aftur eftir góða sendingufráJohn Wark. Staðan var 2-0 í leikhléi. Á 57. mínútu fullkomnaði Rush hat-trick sitt úr vítaspyrnu sem hann fiskaði sjálfur. Þá skoraði Alan Hansen og rétt fyrir leikslok kom svo fjórða mark Rush, og fimmta mark Liverpool í leiknum. Meistarataktar á Anfield og enn eina ferðina verður það líkleg- ast Liverpool sem tekur breska meistaratitilinn. Þeir brostu leikmenn Manc- hester United eftir 26 mínútur því þá hafði welska stirnið, Mark Hughes komið liðinu yfir gegn Ipswich liðinu. En aðeins 2 mínútum síðar jafnaði Mick D’Avray og það virkaði sem rothögg á áhangendur Man. Utd. og leikmenn liðsins. Áhorfendur voru þá fljótir að ná sér aftur og hvöttu liðið óspart til dáða. United sótti og sótti og Stapleton þrumaði í .stöngina og Wilkins skallaði í þverslána en inn vildi knöttur- inn ekki. Alan Sunderland, áður Arsenal, var á skotskónum þremur mínútum fyrir leikslok og tryggði Ipswich óvæntan úti- sigur. Sigur Ipswich forðar þeim að öllum líkindum frá falli en Notts County féll í gær þar þótt liðið næði jafntefli á útivelli gegn Sunderland. Baráttan um þriðja fallsætið stendur nú á milli Stoke, Birmingh-og Coventry. Það vantaði hvorki meira né minna en 9 fastamenn í Totten- ham liðið sem lék gegn Sout- hampton í gærdag. Enda steinlá liðið, tapaði 5-0 ■ Valsmenn sigruðu Fyll ismenn örugglega í Reykjavíkurmótinu í knattspyrnuí gær, 3-1. Þessi mynd er úr leiknum í gær. NT-mynd Róbert. Fimm reknir út af - hrottaskapur nú aðaleinkenni spönsku knattspyrnunnar ■ Santiago Bernabeu knattspyrnu- völlurinn Madrid var enn vettvangur óíþróttamannlegra átaka í fyrrakvöld, þegar Real Madrid og Atletico Mad- rid leiddu saman hesta sína í spönsku 1. deildarkeppninni í fyrrakvöld. Hræðilega grófum leik lauk með því að 5 leikmenn voru reknir af leikvelli og aðrir 5 voru áminntir. Leiknum lauk með jafntefli 1-1 Á laugardag var þessi sami knatt- spyrnuvöllur líka vettvangur grófrar knattspyrnu, því þá fór þar fram úrslitaleikurinn í spönsku bikar- keppninni.milli Barcelona Atletico og Bilbao. Bilbao vann þann leik 1-0. Að sögn fréttaskýrenda var sá leikur sá grófasti í spánskri knattspyrnu frá upphafi og kalla þeir þó ekki allt ömmu sína, í þeim efnum. Eftir þann leik logaði allt í slagsmálum og þurftu þá um sextíu manns að leita læknis eftir leikinn, jafnt leikmenn sem áhorfendur. Menn hljóta nú að fara að velta því alvarlega fyrir sér hvert knattspyrnan á Spáni stefnir, eða verður haldið áfram að þróa knattspyrnuna í þá átt að hún verði vígaíþrótt eins og til forna? Sérstök áskrift að Islendingaþáttum - minningar- og afmælisgreinar birtar daglega. ■ Framve}>is vertla af'mælis- o}> minnin}>ar}>reinar liirtar \ lilaAinu daj>le}>a. en hætt verdtir viknle^ri utjíaln Islend- in}>aþátta eins o}> verið liefur. I stad þess hefur \erid akvedid ad }>ela út Íslendin}»aþætti sjaldnar en efiiismeiri. o}> hjoða þa i serstakri askrif't til þeirra sem alui}>a hafa. Áhu}>af'(>lk iim íslendingaþættina er hedid um ad lata skra si}> nidur á af}>rei(islu hladsins. Suinmiila 15. Re\kjavík. eda i sima 86300. ritst j. þegar blómin þurfa Reykjavik Höföabakka 9, S.85411

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.