NT


NT - 08.05.1984, Side 28

NT - 08.05.1984, Side 28
LÚRIR ÞÚ Á ÞÁ í SÍMA 8-C Viö tökum við ábendingum um fréttir allan sðlarhringinn. Greiddar verða 1000 krónur fyrir hverja ábendincju sem leiðir til fréttar í blaðinu og 10.000 krónur fyrir ábendingu sem leiðir til bitastæðustu fráttar mánaðarins. Fullrar raafnleyndar er gaett ■ Hvert fer hagnaðurinn af kvótasölum? Rennur hann ó- skiptur til útgerðarinnar eða á áhöfnin sama rétt til hlutaskipta og við aðrar físksölur, þótt þorskurinn sé í þessu tilviki seldur „á fæti“? Kvótakerfið hefur þegar haft ýmsar lítt fyrirsjáanlegar af- leiðingar og enn munu ekki öll kurl komin til grafar í því efni. NT hafði samband við nokkra útgerðaraðila sem vitað var að hefðu selt kvóta eða voru í þann veginn og spurði þá hvort þeir ætluðu að láta áhöfnina njóta góðs af hagnaðinum. Flestir voru á einu máli um það að kvótasölurnar kæmu útgerðinni einni við, þótt einstaka dæmi fyndust um að menn teldu koma til greina að hagnaðurinn kæmi til skipta. Óskar Vigfússon, formaður sjómannasambandsins sagði í stuttu spjalli við NT, að þegar um væri að ræða hreinar kvóta- sölur virtist alls ekki fjarstætt að áhöfnin ætti rétt á hlut, þótt ekkert slíkt mál hefði enn kom- ið til kasta sambandsins. Óskar sagði hins vegar, að ekki kæmi til nokkurra mála að áhafnir skipa sem keyptu við- bótarkvóta, yrðu látnar bera hluta kostnaðarins með því að kvótaverðið yrði dregið frá afla- verðmæti. „Hér er um að ræða lögbundið lágmarksverð og ef einhver útgerðaraðili reynir að minnka hlut skipshafnarinnar verður það tafarlaust kært til dómstóla“. Samkvæmt upplýsingum sem NT hefur aflað sér, hefur verið töluvert um kvótasölur að undanförnu, en þó munu jafn- vel enn fleiri vera í burðarliðn- um um þessar mundir. ■ Skiptir máli hvort þorskur- inn selst lifandi eða dauður? Harður árekstur við Hagamelinn ■ Harður árekstur varð á mótum Hofsvallagötu og Hagamels á móts við Meia- búðina, í gærdag. Þar komu tveir bílar úr sitthvorri áttinni eftir Hagamel og stöðvuðu á gatnamótunum en þar er stöðvunarskylda. Síðan óku þeir báðir af stað í einu en annar sveigði skyndilega í norður og ók inn í hlið hins bílsins. Kona sem ók öðrum bílnum, var flutt á Slysadeild en reyndist ekki vera alvar- lega meidd. Annar bíllinn var óökufær á eftir. ■ LögregUn vinnur að mæl- ingum á gatnamótum Haga- mels og Hofsvallagötu þar sem harður árekstur varð í g*r- , NT-mynd Ólafur. Þorsk- aflinn dregst saman ■ Á tímabilinu jan.-april veiddust tæplega 110 þús. iestir af þorski, eða u.þ.b. 30. þús. lestum minna en á santa tíma i fyrra. Að öðru leyti er fiskaöi landsmanna sambæriiegur við síðasta ár að frátaidri loðnmmi, en af henni veiddust yfir 660 þiisund lestír á vertíðinni i ár en loðnuveiðin brást alveg í fyrra sem kunnngt er. Samdrátturinn í þorsk- veiðinni er tneiri en sem svarar áhrifum kvöta- kerfisins, þannig að nú virðast jafnvel líkur á að ekki takist að veiða upp í allan þorskkvótann. 111 þess að það takist þurfa þorskveiðarnar að ganga jafnvel og í fyrra það sem eftir er ársins. Fálkaþjófarnir eru lausir: Komuá vegum þýskra aðila V-þýska lögreglan rannsakar málið þar ■ Þýsku hjónin sem handtek- in voru í Dalasýslu með 8 fálka- egg hafa veríð látin laus úr gæsluvarðhaldi. Þeim hefur hins- vegar verið gert að halda sig innan lögsagnarumdæmis Reykjavíkur þar til máli þeirra er lokið af hálfu íslenskra dóms- málayfirvalda. Að sögn Hallvarðs Einvarðs- sonar rannsóknarlögreglustjóra hafa hjónin játað að hafa komið hingað til lands í þeim tilgangi að verða sér út um fálkaegg á vegum aðila í Þýskalandi. Rannsóknin beinist nú að þeim tengslum, m.a. með aðstoð vesmr-þýskra lögregluyfirvalda. Hallvarður sagði að Konrad Chiselsky hefði ekki verið sér- staklega tilgreindur en þó bein- ist rannsóknin að honum. Hallvarður sagði að reynt yrði að hraða afgreiðslu málsins hjá RLR og það yrði jafnvel sent ríkissaksóknara í dag eða á morgun.

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.