NT - 28.05.1984, Page 2
Jil- Mánudagur 28. maí 1984 2
JML Fréttir
Offramleiðslugreinum hampað
meðan ekki fæst króna í hinar
- er loðdýrarækt aðeins skrýtla í munni stjórnmálamanna?
■ Beinn styrkur til uppbygg-
ingar á vísitölubúi í hefðbundn-
um búgreinum nemur nú um
hálfri milljón króna meðan ekki
hefur fengist króna í styrki til
annarra búgrcina svo sem loð-
dýraræktar sem býr við mjög
lök kjör miöað við samkeppnis-
aðila á nágrannalöndum. Þá
eru lánakjör til fjós og fjárhús-
bygginga mun betri en til ann-
arra og arðvænlegri búgreina
eins og viðmælandi NT úr hópi
loðdýrabænda kaus að orða
það.
„Það er greinilegt að það er
bara á orði en ekki á borði sem
loðdýrarækt á að þrífast í þessu
landi, á meðan þeir sem fyrstir
lögðu út í þetta berjast enn í
bökkum rísa upp myndarleg kúa-
bú fyrir tugi mjólkurkúa á næstu
bæjum þrátt fyrir offramleiðslu
í þessum greinum," sagði loð-
dýrabóndi að norðan sem blaðið
átti samtal við. „Stjórnmála-
menn hafa gaman af því að tala
fallega um loðdýraræktina en
svo nær það ekki lengra."
Samkvæmt þeim upplýsing-
um sem fengust hjá Stéttasam-
bandi bænda er loðdýraræktin
hcr á landi mun verr stödd
heldur en hjá samkeppnisaðil-
um erlendis en afurðir búgrein-
arinnar eru nær eingöngu til
útflutnings.. Þrátt fyrir nokkrar
endurbætur á lánafyrirgreiðslu
til nýrra búgreina 1979 er það
samt cnn svo að veitt eru hærri
lán til bygginga á gamaldags
fjárhúsum með taðgólfi heldur
en skýli fyrir refi eða minka, svo
dæmi sé tekið. Þá eru eins og
fyrr sagði beinir styrkir til bygg1”-
ingu nýrra húsa í sauðfjár og
kúabúskap úr jarðræktarsjóði
verulegur á meðan ekki hefur
fengist króna úr sama sjóði til
annarra búgreina. Undantekn-
ing þar frá er styrkur til bygg-
ingu á kartöflugeymslum.
íslandsmeisf aramótið í tvímenning:
Jón og Hörður
í fyrsta sæti
■ Jón Baldursson og Hörður urðu í öðru sæti. Þetta er fjórða
Blöndal unnu íslandsmeistara- árið í röð sem Jón Baldursson
mótið í tvímenning sem haldið vinnur íslandsmeistaramótið í
var um helgina. Jón og Hörður tvímenning. A myndinni sjást
enduðu með 176 stig, 57 stigum íslandsmeistararnir spila við
fyrir ofan Guðmund Árnason lngvar Hauksson og Orwell Ut-
Og Þórarin Sigþórsson sem ley. NT-mynd Árni Srtberg
Félag íslenskra bifreiðaeigenda boðar til almenns félagsfundar í
fundarsal veitingahússins Glóðarinnar við Hafnargötu í Keflavík,
þriðjudaginn 29. maí 1984, kl. 20.30 stundvíslega.
DAGSKRÁ:
1. Kl. 20.30 Ávarp Arinbjörns Kolbeinssonar, formanns F.Í.B.
2. Kl. 20.35 Tilnefning og kjör fundarstjóra og fundarritara.
3. Kl. 20.40 Framsöguerindi
★ Vegakerfið á Suðurnesjum með tilliti til atvinnuuppbyggingar (10-15 mín.)
Sigurður Guðmundsson, aðstoðarframkvæmdastj. byggðadeildar Fram-
kvæmdast.
★ Reyknanesbraut, núverandi ástand og umferðarþungi (10-15 mín.)
Helgi Hallgrímsson, forstjóri tæknideildar Vegagerðar ríkisins.
★ Arðsemi varanlegrar vegagerðar í Reykjaneskjördæmi (10-15 mín.)
Sveinn Torfi Sveinsson, verkfræðingur.
4. Kl. 21.15 Kaffiveitingar
5. Kl. 21.40 Framhald framsöguerinda.
★ Nýi bílasíminn og fjarskiptabúnaður bifreiðarinnar (10-15 mín.)
Gústav Arnar, yfirverkfræðingur tæknirekstrardeildar Póst- og síma-
málast.
★ Kostnaður við rekstur einkabifreiðarinnar (10-15 mín.)
Tómas H. Sveinsson, viðskiptafræðingur.
6. Kl. 22.05 Fyrirspurnir og frjálsar umræður.
Innflytjendur nýja bílasímans, fyrirtækin Georg Ámundason & Co., og Heimilistæki hf.,
munu kynna fundarmönnum búnað þennan í fundarhléi.
Félagsmenn fjölmennið og takið með ykkur gesti!
Stjórn F.Í.B.
Félag íslenskra bifreiðaeigetida
NT keppnin:
Breakað í botn
■ Allt á annan endann, gæti manni dottið í hug; ef rétt er
að nota orðið að detta undir svona kringumstæðum. Hér er á
ferðinni breakdans keppni Traffic, NT og Kók sem haldin er
í Traffic nú um þessar mundir. Fjrsta keppnin fór fram í
skemmtistaðnum Traffic í gær og var keppt í tveimur
aldurshópum, 12 til 15 ára og 16 ára og eldri. Meðfylgjandi
mynd er af einum keppenda í yngri aldurshópnum. NTm,„d: Ari