NT - 28.05.1984, Blaðsíða 31
Búndeslígan:
Marka-
met!
Karl-Heinz
Rummenigge
markahæstur
■ Eftir keppnistímabilið
er vert að líta á nokkrar
tölur. Nýtt markamet var sett
í 21 árs sögu deildarinnar. í
allt voru skoruð 1097 mörk.
11 mörkum meira en á
keppnistímabilinu 1973-
1974.
Jafnframt var sett met
hvað varðar rauð spjöld. Alls
fékk 21 leikmaður að sjá
rauða spjaldið og á áttunda
hundrað gulra spjalda voru
sýnd í vetur.
Markahæsti maður deildar-
innar var Karl-Heinz
Rummenigge, hann skoraði
26 mörk, Allofs var með 20,
Mill hjá Gladbach var með
19 og Schreier hjá Bochum
með 18 eins og Rudi Wöller
hjá Bremen.
Markahæstur íslensku
leikmannanna í deildinni
varð Ásgeir Sigurvinsson,
hann skoraði 12 mörk, Atli
Eðvaldsson skorað 8 mörk,
og Pétur Ormslev eitt.
■ Asgeir Sigurvinsson á fullri ferð gegn HSV. Ásgeir og félagar
fóru varlega í leiknum, mikið var í húfí og um að gera að fá ekki á
sig mörk. Vörn Stuttgart var sterk, og leikmenn Þýskalands og
Evrópumeistaranna frá í fyrra komust hvergi áleiðis. Ásgeir átti
þokkalegan leik, án þess að sýna miklar listir, en þó mátti greinilega
sjá hvílíkt akkeri hann er í sóknaraðgerðum liðsins.
NT mynd (iuAmundur Sij>fús.son
Mánudagur 28. maí 1984 31
Hamburger S V
náði sigri
- en fyrsti ósigur Stuttgart dugði ekki til - Stuttgart meistari
■ íslendingar sáu VFB
Stuttgart, lið Ásgeirs Sigurvins-
sonar í v-þýsku Búndeslígunni
í knattspyrnu tryggja sér Þýska-
landsmeistaratitilinn í knatt-
spyrnu í beinni sjónvarpssend-
ingu á laugardag. Um leið tap-
aði Stuttgart fyrsta leiknum á
heimavelli í Búndeslígunni í
vetur, en aðeins 0-1 og við það
voru menn að sjá nokkuð sáttir.
Leikurinn var ekki sérstaklega
góður, einkenndist af öryggis-
spilamennsku, og kom nokkuð
á óvart að HSV skyldi ekki
sækja stífar.
Stuttgart var lengst af sterk-
ari aðilinn í leiknum, og nteð
örlítið meiri ákveðni hefði liðið
átt að tryggja sér sigur, áður en
HSV skoraði eina mark leiksins
á 85. mínútu. Stuttgart sótti
meira framan af, og strax á 7.
mínútu átti Allgöwer hörku-
skalla í hliðarnetið hjá HSV.
HSV sótti einnig, en flestar
sóknir framan af strönduðu á
sterkri vörn Stuttgart, þar sem
Karlheins Förster var fremstur
í flokki og hreinlega jarðaði
markaskorarann Schatzshnei-
der. Besta færi Stuttgart í jeikn-
um átti Svíinn Cornclius
á 32. mínútu, er hann skaut yfir
úr dauðafæri á markteig, og 10
mínútum síðar skaut Karl All-
göwer í þverslá HSV-marksins.
HSV átti líka færi í fyrri hálf-
leik, Roleder þurfti að verja
stórglæsilega til að forða marki
á II. mínútu.
HSV náði yfirtökum í
leiknum þegar leið á síðari
hálfleik, en sammerkt varþó í
öllunt leiknum að liðin sóttu til
skiptis, en hörkuna vantaði til
að reka endahnútinn. Minnstu
munaði þegar Jimrnty Hartwig
komst í dauðafæri á 73. mínútu
eftir frábæra sendingu Felix
Magath, en notaði það illa og
missti boltann í hendur Rol-
enders. Fáum mtnútum síðar
gerðist það sama hinunt megin,
Buchwald komst í gegn eftir
góða samvinnu við Reichert,
en missti boltann í hendur Uli
Stein.
Þegar stutt var eltir af leiknum
leit allt út fyrir markalaust
jafntefli, og leikmenn Stuttgart
virtust ánægðir með það, enda
ekki skrítið. En þá komst HSV
í sókn, og úr varð eina mark
leiksins. Magath gaf fyrir á
tjærstöng, Roleder fór í sicógar-
ferð og náði ekki boltanum,
Schrödcr skallaði til baka og
Milewski skoraði í tómt
ntarkið.
prátt fyrir fyrsta ósigurinn á
heimavelli í vetur, fékk Stutt-
gart meistaiatiltilinn. Liðið var
með langbest markahlutfall
þeirra þriggja liða sem voru
þrjú efst með 48 stig.
(Stuttgart, HSV og Möncheng-
ladbach).
Bestu menn þessa leiks voru
Felix Magath hjá Hamborg, og
Karlheins Förster hjá Stuttgart.
Aðrir voru í meðallagi, eins og
leikurinn.
Létt hjá Liverpool
■ Englandsmeistarar Liverpool eru nu
staddir í ísrael til að venja sig við Miðjarðar
hafsloftslagið f yrir leikinn gegn Roma í Róm í
þessari viku. Þeir spiluðu við landslið heima-
manna í vikunni og unnu auðveldlega 4-1. Það
voru þeir Ronnie Whelan 2. Mick Robinson
og Graeme Souncss sem gerðu mörk Liver-
pool en Rifat Turk skoraði fyrir heimamenn.
Joe Fagan, framkvæmdastjóri Liverpool,
gerði fjölmargar brcytingar á lið sínu í hálfleik
án þess að það kæmi Israelsmöm um til góða.
Svíar salta Möftu
■ Svíar „rústuðu" Möltubúa í leik þjóðanna
í forkeppni heimsmeistarakeppninnar i knatt-
spyrnu 4-0. Mörkin skoruðu Thomas Sunesson
2, Dan Corneliusson og Ingemar Erlandsson
eitt hvor.
Bandaríski Körfuboltinn:
Lakers gegn Celtic
■ Það er nú ljóst að það verða Los Angcles
Lakers og Boston Celtics sem leika til úrslita í
bandarísku atvinnumannadeildinni í körfu-
knattleik. Þetta réðist á föstudagskvöldið
þegar Lakers sigruðu Phoenix Suns í sjötta
leik liðanna með 99 stigum gegn 97.
Finnar lögðu N-íra
■ Finnar komu heldur betur á óvart í gær
þcgarþcir unnu nýkrýnda Bretlandseyjameist-
ara í knattspyrnu, N-íra með einu marki gcgn
engu í Finnlandi. Leikurínn var liður í undan-
keppni HM en þessi lið eru í fimmta riðli.
Markið skoraði Ari Valvec á 54. mín. og geta
Finnar vel við unað.
Spánn vann Sviss
■ Spánverjar unnu stórstigur á Svisslending-
um er þjóðirnar maettust í vináttulandsleik í
knattspyrnu í Genf á laugardag. Spánverjar
skoruðu fjögur mörk en Sviss ekkert. Það
voru þeir Santillana, Gallego, Rincon og
Goicoechea sem skoruðu fyrir Spán. Ahorf-
endur voru aðcins um 18 þúsund.
Heimsmet í
stangarstökki
■ Sovétmaðurinn Sergci Bubka setti nýtt
heimsmet í stangarstökki á móti í Bratislava í
Tékkóslóvakíu á laugardaginn, er hann stökk
5,85 metra og bætti eldra heimsmctið sem
Frakkinn Thierry Vigneron átti um 2 cm.
■Jte( Æfingaskór
Heinkes Star, blátt rúsk. hvít rönd.
St. 3V2-9V2 Kr. 991,-
Pele Junior, svart rúsk. Góöir krakkaskór.
St. 25-35. Kr. 545,-
Easy Rider, frábærir hlaupa og gönguskór.
St. 5V2-11V2. Kr. 1347,-
Pele Brasil ,dökkbl. rúsk. meö óslítandi
botni. St. 7-11. Kr. 938,-
Basket Super, þrælsterkir uppháir skór.
St. 6-101/2. Kr. 2180,-
Stenzel Coach, blátt rúsk. hvít rönd, þægi-
legir skór. St. 31/2-91/2. Kr. 1122,-
zvMsrewm.umveasAi
Stenzel Universal, hvítt leöur. Svört rönd.
Frábærir skór.
St. 31/2-14 kr. 1285,-
Sportvöruverslun
Fitness, léttir og þægilegir skór.
St. 6-111/2. Kr. 1170,-
Póstsendum
Laugavegi 69 — simi 11783 Kiapparstig 44 — simi 10330
Maradonna æfingaskór,
rönd, þrælsterkur botn.
St. 3V2-10V2. Kr. 938.-
bláir
m/hvitri
i
4