NT - 28.05.1984, Blaðsíða 18
Rás 2 kl.
Sjónvarp kl. 20.40:
•n
•i«j
Sjónvarp kl. 21.05:
Andófsmaður í alræðisríki:
Collin
- síðari hluti
■ í gærkvöld var sýndur í
sjónvarpi fyrir hluti myndarinn-
ar Collin, gerð eftir bók austur-
þýska andófsrithöfundarins
Stefans Héym. Par sagði frá
óvæginni baráttu tvéggja
hjartasjúklinga, virts rit-
höfundár og háttsetts em-.
bættismanns í öryggisþjónustu
Austur-Þýskalands.
í kvöld kl. 21.05 hefst svo
sýning síðari hlutans og þá er
eftir að sjá hver endalok bar-
áttunnar verða.
Söguþráðurinn í myndinni
fjallar um banvænar- í orðsins
fyllstu merkingu - deilur hátt-
setts embættismanns í öryggis-
þjónustu Austur-Þýskalands
og virts aldins rithöfundar.
Báðir þjást þeir af alvarlegum
hjartsjúkdómi og báðir eru
þeir til læknismeðferðar á
sarna sjúkrahúsinu. Það
sjúkrahús er eingöngu ætlað
æðstu mönnum flokksins.
Ekki líður á löngu uns
sjúkrahúsið er orðið að eins
konar-vígvelli, þar sem þessir
tveir svörnu andstæðingar
grípa til hinna furðulegustu
uppátækja í því augnamiði að
ná sér æriega niðri hvor á
öðrum og eina markmið hvors
þeirra um sig er að lifa það áð
sjá erkióvininn falla í valinn.
Brátt verður augljóst að bar-
áttah beinist ekki einungis að
því að ganga hvor af öðrum
dauðum. Rithöfundurinn er að
skrifa endurminningar sínar og
þar vílar hann ekki fyrir sér að
fletta ofan af ýmsu vafasömu
athæfi ráðherra þess, sem fer
með öryggismál landsins.
Reyndar vill hvorki betur né
verr til en svo, að hann hefur
aðsetur í herbergi á sama gangi
og hinir tveir.
Sjónvarpsmyndin Collin
hefur hlotið mikið lof og viður-
kenningu gagnrýnenda. 1982
var Curd Jurgens, sem fer með
hlutverk rithöfundarins.
sæmdur verðlaunum þýska
sjónvarpssritsins HÖRZU,
„Goldane Kamera“, fyrir
frammistöðu sína. Hans-
Christian Blech. sem fer með
hlutverk andstæðingsins
Urack, var sæmdursömu verð-
launum við sama tækifæri.
Sama ár voru rithöfundinum
Stefan Heyrn veitt Bambi verð-
launin, virtustu verðlaun kvik-
mynda- og sjónvarpsheimsins
þýska, fyrir bók sína, sem
myndin var gerð eftir.
Stefan Heym býr enn og
starfar i Austur-Þýskalandi, en
er ekki lengur í náðinni hjá
yfirvöldum, sem líta hornauga
gagnrýni hans á þjóðfélags-
hætti þar í landi. En hann
hefur alltaf haldið uppi háværri
gagnrýni á það, sem hann hef-
ur álitið athugavert þar sem
hann hefur búið hverju sinni.
Stefan Heym er gyðingur,
fæddur í Þýskalandi 1913.
Augljóslega átti hann lítið
sameiginlegt-með valdhöfum
þar eftir að Hitler kómst til
valda. Stefan flýði til Banda-
ríkjanna 1933, en þegar
McCarthy-tímabilið gekk í
garð, fór enn svo að hann átti
■ AsatímierádagskráRásar
2 kl. 17 í dag. Stjórnendur cru
Ragnheiður Davíðsdóttir og
Júlíus Einarsson.
Asatími er umferðarþáttur
og sagði Júlíus Einarsson okk-
ur að aö venju yrðu að sjálfsögðu
rædd umferðarmál í 9. þætt-
inum. Þar að auki ætti að i'jalla
um sumaráætlanir ferðaskrif-
stofanna hcr innanlands og
væri nú röðin komin að Guð-
mundi Jónassyni og Úlfari Jac-
obsen. í síðasta þætti hefði
verið fjallað um sumaráætlanir
Ferðafélags Islands og Útivist-
ar.
Þá koma „Lilla og Harald-
ur" í heimsókn, cn það eru
Gísli Rúnar og Edda Björg-
vinsdóttir, sem hafa gefið
þeim raddirnar. J3au hafa út-
buið 4 umferðarþætti í gaman-
sömum tón fyrir Umferðarráð
og er þegar búið að útvarpa 2'
þeirra í Asatíma.
Útvarp kl. 20.
Lög unga
fólksins
■ í útvarpi í kvöld kl. 20.00
hefst þátturinn Lög unga
fólksins. Kynnir er Þorsteinn
.1. Vilhjálmsson.
Lög unga fólksins eiga sér
laga sögu í útvarpinu og eru
þær orðnar allmargar kynslóð-
irnar, sem hafa sent vinum og
kunningjum, auk náttúrlega
stóru ástarinnar hverju sinni,
kveöjur með vinsælustu löguni
hvers tíma. Þetta hlutverk
þáttarins hefur ekkert breyst,
hunn er enn vettvangur „dúnd-
urkveðja til æðislega klístraða
þáttarins"!
Þorsteinn Vilhjálmsson ann-
ast kynningar laganna á mánu-
dagskvöldum og hefur gert frá
áramótum, en Þóra Björg
Thoroddsen á föstudagskvöld-
um. Þorsteinn segir okkur að
þættirnir séu því sem næst
eins, a.m.k. merki hann sjálfur
’engan rnun. Bréfin berast jafnt
og þétt, 30-40 á viku núna, en
voru fleiri fyrr á árinu.
Mánudagur 28. maí 1984 18
Sumar-
Villta kanínan
áætlanir í
Asatíma
á sér marga óvini
- mynd um villtar kanínur á Bretlandseyjum
ið getur verið í hópi óvina kan-
ínanna, það veldur oft flóðum
í kanínuhoiunum og gerir íbú-
um þeirra lífið mun erfiðara.
En kanínur eru þrautseigar.
Þær verða að sýna skynsemi og
treysta afburða næmum skyn-
færum heyrn, sjón og lyktar-
skyni, enda lifa þær flestar
næsta dag, þrátt fyrir allar
aðsteðjandi hættur. Kanínur
eru líka afburða duglegar að
auka kyn sitt og óragar að
nema nýtt land. Allir þessir
eiginleikar eru til þess, að
kanínustofninn er ekki í hættu,
þrátt fyrir allt.
Stór hluti myndarinnar,
sem sýnd verður í kvöld, fjall-
ar um líf kanínanna í holum
þeirra, en þar er líka ýmsar
hættur að finna, ekki síður en
utan holanna. Þar standa kan-
ínurnar í ströngu við aðverja
unga sína fyrir öðrum kanínum
og ung karldýr eyða mestum
tíma sínum í stríð og byltingar,
þar sem þeir leitast við að.
steypa ríkjandi foringjum af
stóli og berjast unt hylli kven-
dýranna ungu.
Myndina tók Maurice
Tibbles. en hann er verðlauna-
maður á sínu sviði. Sögumað-
ur er David Attenborough.
Þýðandi og þulur er Jón O.
Edvvald.
■ Erich Honecker, æðsti ráðamaður í Austu-Þýskalandi, hefur
litla samúð með þeim, sem sýna einhver frávik frá opinberri
stefnu Flokksins.Það hefur Stefan Heym, höfundur bókarinnar
um Collin, fengið að reyna.
ekki samleið með valdhöfum.
Hann lagði því enn land undir
fót og settist að í Austur-
Berlín, þar sem honum var
tekið með kostum og kynjum.
Svo fór þó smám saman, að
Stefan sá hina og þessa van-
kanta við stjórnarfarið þar og
var þá ekki að fara dult með
gagnrýni sína frekar en fyrri
daginn.
Stefan Heym gerðist ungur
kommúnisti og segist vera það
enn, þrátt fyrir allt.
■ Vesalings kaninan á sér hvegi griðland. M.a.s. getur
hún ekki verið óhult í holunni sinni, þar sem ýmsar hættur
steðja að, m.a. frá öðrum kunínum.
■ Isjónvarpi íkvöldermynd
frá BBC um villtu kanínuna á
Bretlandseyjum, sem á í ákaf-
lega harðri lífsbaráttu og óvini
á hverju strái, en sýnir ótrúlega
þrautseigju og lífsseiglu.
Kanínurnar eiga sér marga
óvini, þ.á.m. manninn. f aug-
um bóndans eru þær meindýr,
sem sjálfsagt er að hundclta og
drepa. Rándýr, s.s. refir og
músafálkar sitja stöðugt um
þær. Á strandsvæðum sýna
lundar þeim oft yfirgang og
reka þær úr holum sínum til að
setja upp eigin bú. og ungar og
veikburða kanínur á öllum
aldri eiga stöðugt á hættu að
vcrða bráð máva. Jafnvel veðr-
Mánudagur 28. maí
7.00 Veðurfregnir. Fréttir. Bæn.
Siguröur Ægisson flytur (a.v.d.v.).
Á virkum degi. Stefán Jökulsson,
Kolbrún Halldórsdóttir, Kristin
Jónsdóttir. 7.25 Leikfimi. Jónína
Benediktsdótlir (a.v.d.v.).
8.00 Fréttir. 8.15 Veðurfregnir.
Morgunorð. Baldvin Þ. Kristjáns-
son talar.
9.00 Fréttir
9.05 Morgunstund barnanna:
„Afastrákur“ eftir Ármann Kr.
Einarsson Höfundur les (6)
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkynningar.
Tónleikar. Þulur velur og kynnir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veðurfregnir.
Forustugr. landsmálabl. (útdr.)
Tónleikar.
11.00 „Ég man þá tíð“ Lög frá
liðnum árum. Umsjón: Hermann
Ragnar Stefánsson.
11.30 Kotra Endurtekinn þáttur
Signýjar Pálsdóttur frá sunnudags-
kvöldi (RÚVAK).
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir.
Tilkynningar. Tónleikar.
13.30 Savannah-tríóið, Þrju á palli
o.fl. leika og syngja
14.00 Ferðaminningar Sveinbjarn-
ar Egilssonar; seinni hluti Þor-
steinn Hannesson les (33)
14.30 Miðdegistónleikar Drengja-
kórinn í Regensburg syngur þýsk
þjóðlög með undirleik hljóðfæra;
Theobald Schrems stj.
14.45 Popphólfið Sigurður Kristins-
son.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Fréttir. Dagskrá. 16.15 Veður-
fregnir.
16.20 Síðdegistónleikar Hljóm-
sveitin Fílharmónía leikur forleik-
inn að óperunni „Oberon'1 eftir
Carl Maria von Weber; Wolfgang
Sawallisch stj. Joan Sutherland,
Luciano Pavarotti og Spiro Malas
flytja með kórog hljómsveit Covent
Garden-óperunnar í Lundúnum
atriði úr öðrum þætti óperunnar
„Dóttur herdeildarinnar" eftir Gaet-
ano Donizetti; Richard Bonynge
stj. Fílharmóníusveitin í Vínarborg
leikur balletttónlist úr „Spartacus“
eftir Aram Katsjatúrían; höfundur-
inn stj.
17.00 Fréttir á ensku
17.10 Síðdegisvakan Umsjón: Páll
Heiðar Jónsson og Borgþór S.
Kjærnested.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynninaar.
19.35 Daglegt mál. Mörður Arnason
talar.
19.40 Um daginn og veginn. Dr.
Magni Guðmundsson hagfræð -
ingur talar.
20.00 Lög unga fólksins. Þorsteinn
J. Vilhjálmsson kynnir.
20.40 Kvöldvaka a. Sagnir af Stef-
áni Þorleifssyni, prófasti að
Presthólum Björn Dúason tekur
saman og flytur. b. Karlakór
Reykdæla syngur. Stjórnandi:
Þóroddur Jónasson. c. Gaman-
mál eftir Stefán Vagnsson frá
Hjaltastöðum Elín Guðjónsdóttir
les. Umsjón: Helga Ágústsdóttir
21.10 Nútímatónlist Þorkell Sigur-
björnsson kynnir.
21.40 Útvarpssagan: „Þusund og
ein nótt“ Steinunn Jóhannesdóttir
les valdar sögur úr safninu i
þýðingu Steingríms Thorsteins-
sonar (18).
22.15 Veðurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins
22.35 Skyggnst um á skóiahlaði
Umsjón: Kristín H. Tryggvadóttir.
23.00 Kammertónlist Guðmundur
Vilhjálmsson kynnir.
23.45 Fréttir. Dagskrálok.
Mánudagur
28. mái
10.00-12.00 Morgunþáttur Stjórn-
endur: Páll Þorsteinsson, Ásgeir
Tómasson og Jón Ólafsson.
14.00-15.00 Dægurflugur Stjórn-
andi: Leópold Sveinsson
15.00-16.00 Á rólegu nótunum
Stjórnandi: Arnþrúður Karlsdóttir.
16.00-17.00 Laus í rásinni Stjórn-
andi: Andrés Magnússon.
17.00-18.00 Asatimi (umferðarþátt-
ur) Stjórnendur: Ragnheiður
Davíðsdóttir og Júlíus Einarsson.
Mánudagur
28. mai
19.35 Tommi og Jenni Bandarísk
teiknimynd.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Kanínan Dýralífsmynd um
villtu kanínuna á Bretlandseyjum
sem á sér marga tjendur en heldur
þó velli. Þýðandi og þulur Jón O.
Edwald.
21.05 Collin - síðari hluti. Þýsk
sjónvarpsmynd gerð eftir sögu
Stefáns Heyms. Leikstjóri: Peter
Schulze-Rohr. Aðalhlutverk: Curd
Jurgens, Hans Christian Blech og
Thekla Carola Wied. Þýðandi Jó-
hanna Þráinsdóttir.
22.35 íþróttir Umsjónarmaður Bjarni
Felixson.
23.05 Fréttir í dagskrárlok