NT - 28.05.1984, Blaðsíða 30

NT - 28.05.1984, Blaðsíða 30
Myndsjá frá Stuttgart: Fagnaðarlæti meiri en dæmi eru til áður: 300 þúsund fylgdust með fagnaðarlátunum ■ Áfram Stuttgart. Uppsclt var á leik Stuttgart og HSV á Necker Stadion, 72 þúsund manns voru í þessum áhorfendastúkum. Að auki sáu 10 þúsund manns leikinn í beinni sjónvarpssendingu á risaskermi í íþróttahöll viö hliöina. íslendingar sáu leikinn beint í sjónvarpi, en ekki V-Þjóöverjar. NT-myndir CuAmundur Sigfússon ■ Þýskum fréttamönnum ber saman um að sjaldan eða aldrei hafi þýska mcistaratitlinum verið fagnað jafn hjartanlega og í Stuttgart í gær og í gær- kvöldi. ■ Nágranni Ásgeirs Sigurvinssonar, maður sem Ásgeir þekkti ekki og hafði ekki talað við, var búinn að hengja stóran Stuttgartfána utan við hús Asgeirs, og að auki íslenskan fána sem hann hafði látið sauma, utan á húsið. Fáninn íslenski var að vísu ekki mjög vel hcppnaður, en söm var gerðin. Klukkutíma eftir að, leiknum lauk höfðu fáir hinna 70 þúsund áhorfenda yfirgefið leikvang Stuttgart liðsins. Eftir leikinn er talið að um 300 þúsund manns hafi fylgst með skrúðakstri leikmanna og for- ráðamanna Stuttgart um borg- ina,en farið var í opnum Mer- cedes Benz bílum af öllum stærðum og gerðum og aldri frá heimavelli Stuttgart til ráð- húss borgarinnar. Þar var samankomið tvö til þrjú hundr- uð manns, eða um annar hver íbúi borgarinnar. Vestur-þýska sjónvarpsstöðin SW sýndi beint frá fagnaðarlátunum og þess á milli var skotið inní sýningum frá leiknum í bær. Gat sjónvarpsþulurinn þess að íslendingar hefðu einir þjóða getað fylgst með sjón- varpsútsendingunni í beinni út- sendingu. Á tröppum ráðhússins tók borgarstjórn Stuttgart við lið- inu og ræður voru haldnar, leikmenn liðsins heiðraðir og var þeim ákaft fagnað. Fagnað- arlætin voru slík að borgar- stjórinn ætlaði aldrei að komast að til að flytja ávarp sitt. Eftir afhöfnina á tröppunum var leikmönnum og forráða- mönnum liðsins boðið til veislu borgarstjórnar í ráðhúsinu. V- þýska sjónvarpsstöðin ZDF var í beinu sambandi í tengslum við íþróttaþáttinn í gærkvöldi. Meðal þeirra sem talað var við var ÁSGEIR Sigurvinsson. Leikmenn Stuttgart gengu síð- an einn og einn fram á ráðhús- svalirnar, með „salatskálina" eftirsóttu, en svo er silfur- skjöldurinn sem leikmenn fá í sigurlaun í deildarkeppninni, uppnefndur. Rætt var við leikmenn af svölunum og þeim var fagnað mjög afþeim miklafjölda borg- arbúa sem á svölunum stóðu. Opnunartími bjórkráa var framlengdur til kl. 3 og er fullvíst að flestir borgarbúa hafa gengið seint til náða, enda ekki á hverjum degi sem liðið þeirra verður meistari. Það átti sér síðast stað árið 1952, fyrir 32 árum, en alls hefur Stuttgart liðið unnið meistaratitilinn þrisvarsinnum, 1950, 1952 og 1984. ■ Víða mátti sjá íslenska fána á vellinuni, fyrir og eftir leik. Fimmtíu Islendingar fóru í sér- staka hópferð og sáu leikinn, og fleiri mættu sem búsettir eru í V-Þýskalandi. ■ Það sem allt snerist um. Karlheinz Förster og Ásgeir Sigurvinsson með skálina eftir- sóttu. ■ Fjölmargir Islendingar voru á leiknum. Hér má sjá tvö eintök. Maðurinn til vinstri cr Steinn Sveinsson, fyrrum lormaður Körfu- knattleikssambands Islands. ■ Mercedes Benz bílar af öllum stærðum, aldri og gerðum tóku þátt í skrúðgöngunni eftir afhendingu Þýskalandsskjaldarins. Hér má sjá einn af eldri gerðinni á hringferð á leikvanginum. Lewis gaf forsmekkinn ■ Carl Lcwis gaf inönnum forsmekk af því, hvers megi vænta frá hon- um á Olympíuleikunum i L.A. á móti sem fram fór í San Jose um helgina. Carl sigraði í bæði 100 m og 200 m hlaupi. Hann hljóp 100 m á 10 sek. sléttum og 200 m á 20,01. Meðal annarra úrslita á mótinu má nefna að fjórir kúluvarparar köstuðu yfir 21 m og var sigurvegari Brian Oldfield sem varpaði kúlunni 22,19 m Mary Decker, heimsmethafi í 5 og 10 þúsund metra hlaupi á 4:50,0 sem er besti tími bandarískrar konu í ár. Steve Scott sigraði í 1500 m hlaupi karla á 3:55, 71. Alberto Guimarres frá Brasilíu kom fyrstur í mark í 800 m hlaupi á 1:46,54 og Andre Phillips vann 400 m hlaup á 48,23. ■ Stjarnan sjálf á fullri ferð í leiknum. Ásgeir fór víða um völlinn í þessum leik og takmarkið, Þýskalandsmeistaratitillinn náðist. ■ Verðlaunaafhendingin afstaðin. Karlheinz Förster sýnir áhorf- endum gripinn, lyftir honum hátt.Gleðin í kring er mikil, enda sést varla í fyrirliðann. Síðasta umferð Búndslígunnar: Karl-Heinz kvaddi með marki ■ Síöasta umferð v-þýsku Bundesligunnar í knattspyrnu fór fram á laugardaginn var. Fyrir þessa umferð var Ijóst að Stuttgart var nánast orðið v- þýskur mcistari, í knattspyrnu, liðið gat tapað fyrir HSV með allt að fimm marka mun, án þess að sigur liðsins í deildinni væri í hættu. 1-0 tap Stuttgart fyrir Ham- burger á heimavelli þýddi það að þrjú lið voru efst og jöfn í deildarkeppninni að stigum, Stuttgart, Hamburger SV og Borussia Mönchengladbach fengu öll 48 stig í 34 leikjum, en markatala Stuttgart var mun betri, liðið hafði 46 mörk í plús eftir keppnistímabilið, Ham- burger SV 39 og Borussia Mönchengladbach 33. Sigur Stuttgart í keppninni þykir mjög sanngjarn, blaða- mönnum, leikmönnum, þjálf- urum, öllum, sem við hefur verið rætt í fjölmiðlum, ber saman um það. Úrslit helgarinnar urðu ann- ars þessi. Stuttgart-Hamburger 0-1 Mannheim-Offenbach . . 6-1 Köln-Leverkusen .........2-0 Nurnberg-Dortmund ... 0-2 Bochum-Dusseldorf .... 6-1 Gladbach-Bielefeld .... 3-0 Frankfurt-Kaiserslautem . . 3-0 Braunschweig-Bremen 1-2 Bayern-Úrdingen .........3-2 Leikur Kölnar og Leverkus- en þótti ekki góður. Staðan í hálfleik var 0-0 samkvæmt gangi leiksins. í síðari hálfleik voru Kölnarmenn heldur sprækari. í síðari hálfleik gerði Klaus Allofs, sem nú í allmarg- ar vikur hefur leikið frábær- lega, tvö mörk og varð þar með annar markahæsti leikmaður deildarinnar með 20 mörk, og Köln fékk UEFA-sæti. í Munchen lék Bayern gegn Úrdingen. Fyrirfram var búist við að Bayern mundi vinna stórsigur. Þetta var kveðju- leikur Karl-Heinz Rummen- igge. Karl-Heinz Rummenigge kvaddi eins og hann hafði lofað. Þegar á 17. mín. leiksins skoraði hann. En Bayern náði ekki að sýna neitt sérstakt. Feilzer jafnaði með góðu skoti af 16 metra færi á 25. mín. og mjög á óvænt komst Úrdingen yfir 2-1 á 75. mín. leiksins þegar Sackewitz skoraði gott mark. Á 83. mín. náði vara- maðurinn Mathy að jafna leik- inn og rétt fyrir leikslok eða á 88. mínútu tryggði Michael Rummenigge Bayern sigur. Með þessum sigri varð Bayern í fjórða sæti í deildinni, einu stigi á eftir topptríóinu. Bochum lék heima gegn Dússeldorf, en eins og flestum er kunnugt þá hefur Dússeldorf liðið hrunið á undanförnum mánuðum. Staðan í háífleik var 1-0 Bochum í vil og leikur- inn hafði verið fremur jafn. í síðari hálfleik tók Bochum öll völd á vellinum og lokastaðan varð 6-1 þeim í hag. Bommer skoraði mark Dússeldorf þegar staðan var 3-0 fyrir Bochum. Hvorki Atli Eðvaldsson né Pétur Ormslev léku með Dúss- eldorf í þessum leik. Þeir eru báðir meiddir, Atli snéri sig á hné á æfingu í vikunni og meiðsli Péturs Ormslevs tóku sig upp fyrir tveimur vikum. Þrátt fyrir að Gladbach Iéki fremur illa komst Bielefeld aldr- ei inní myndina og 3-0 sigur Gladbach var nokkuð öruggur. Mörkin skoruðu Mill, Bruns og Criefs. Frankfurt hafnaði í 16. sæti deildarinnar þráft fyrir 3-0 sigur á Keiserslautern. Werder Bremen vánn örugg- an sigur á Braunscw'eig. 2-1, með mörkum þeirra Böhnke og Möhlmann. en Ellmerich hafði jafnað fyrir Braunschveig á 15. mínútu leiksins. Lokastaðan: Stuttgart 34 19 10 5 79-33 48 Hamborg 34 21 6 7 75-36 48 Gladbach 34 21 6 7 81-48 48 Bayern 34 20 7 7 84-41 47 Bremen 34 19 7 8 79-46 45 Köln 34 16 6 12 70-57 38 Leverkusen 34 13 8 13 50-50 34 Bielefeld 34 12 9 13 40-49 33 Brunschweig 34 13 6 16 54-69 32 Urdingen 34 12 7 15 66-79 31 Mannheim 34 10 11 13 45-58 31 Kaiserslautern 34 12 6 16 68-69 30 Dortmund 34 11 8 15 54-65 30 Dusseldorf 34 11 7 16 63-75 29 Bochum 34 10 8 16 68-70 28 Frankfurt 34 7 13 14 45-61 27 Offenbach 34 7 5 22 48-106 19 Numberg 34 6 2 26 38-85 14

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.