NT - 28.05.1984, Page 12

NT - 28.05.1984, Page 12
Mánudagur 28. maí 1984 12 Þeir hefðu náð kosningu: Kjartan Ólafsson. ■ Björn Dagbjartsson. Kristjana sleinsson. Milla Thor- Guömundur H. son. Garöars- Geir Hallgrímsson. ■ Jóhann Einvarðsson ■ Magnús Magnússon. Árni Gunnarsson. Hvað hefðu nýju kosningalög- in þýtt í síðustu kosningum? ■ Ef nýju kosningalögin sem voru samþykkt á Al- þingi rétt fyrir þinglok heföu verið í gildi í þing- kosningunum 1983 þá hefði Alþýðuflokkurinn fengið 7 þingmenn í stað 6. Framsóknarflokkurinn 12 í stað 14. Bandalag jafnaðarmanna hefði feng- ið 4 eins og þá. Sjálfstæðis- flokkurinn 26 í stað 23ja. Alþýðubandalagið 11 í stað 10 og Kvennalistinn hefði staðið í stað með 3 þingmenn. Þingmenn verða nú 63 í stað 60. 54 þingsætum verður skipt milli kjör- dæmanna og 8 þingsætum ráðstafað fyrir hverjar kosningar með því að skipta þeim á milli kjör- dæma eftir tölu kjósenda á kjörskrá í næstu alþing- iskosningum á undan. Þá er einu þingsæti óráðstaf- að til kjördæma og skal það gert eftir kosningar samkvæmt reglum sem eiga að tryggja sem mestan jöfnuð. Ef kosið hefði ver- ið skv. þessu frv. hefði þíngsætatala kjördæma orðið í síðustu kosningum: Reykjavík 18 (16) ísíðustukosningum Reykjanes 11 ( 9) Vesturland 5 ( 6) Jl_ Vestfirðir 5 ( 5) Norðurl.v. 5 ( 5) Norðurl.ey. 7 ( 7) Austurland 5 ( 6) Jl_ Suðurland 7 ( 6) _JÍ_ Alls 63 (60) Jl_ En hvaöa þingmenn heföu komist inn og hverjir af núver- andi þingmönnum hefðu fallið út? Alþýöuflokkurinn: Karl Steinar Guðnason væri ekki á þingi núna heldur á skrifstofu verkalýðs og sjómannafélags Suðurnesja eða þá við kennslu. Árni Gunnarsson (NE) væri ekki í auglýsingabransanum heldur á Alþingi og Magnús Magnússon (S) væri ekki sím- stöðvarstjóri í Eyjum heldur alþingismaður. Framsóknarflokkur: Jóhann Einvarðsson (RN) væri ekki aðstoðarmaður félagsmálaráð- herra heldur alþingismaður. Davíð Aðalsteinsson (V) sæti ekki á þingi. væri væntanlega í búskapnum. Ólafur Þórðarson væri við skólastjórn á Vest- fjörðum. Guðmundur Bjarna- son (NE) væri ekki á þingi heldur væntanlega hjá Kaup- félagi Þingeyinga. Bandalag jafnaðarmanna: Kolbrún Jónsdóttir (NE) væri ennþá í gagnfræðaskólanum á Húsavík en í stað hennar sæti fyrir Bandalag jafnaðarmanna Þórður Ólafsson (RN). Sjálfstæðisflokkurinn: Geir Hallgrímsson (R) og Guð- mundur H. Garðarsson (R) hefðu náð kjöri. Kristjana Milla Thorsteinsson (RN) sæti sömuleiðis á þingi. Björn Dag- bjartsson hefði náð kosningu í Norðurlandi eystra. Alþýðubandalagið: Kjartan Ólafsson hefði náð kosningu á Vestfjörðum. Kvennalistinn: Óbreytt. Þessir hefðu dottið út: ■ Guðmundur Bjarnason. ■ Óíafur Þórðarson. ■ Davíð Aðalsteinsson. ■ Karl Steinar Guðnason. ■ Kolbrún Jónsdóttir.

x

NT

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: NT
https://timarit.is/publication/305

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.