NT - 28.05.1984, Qupperneq 24
Útlönd
Egyptaland:
Róstusamar
kosningar
Kairo-Rtuier sömuleiðis í stjórnarandstöðu
■ Hermdarverk voru unnin í var særð alvarlega.
þingkosningum sem fram fóru í yfða kom til uppþota og
Egyptalandi í gær. Kona sem margir særðust.
var í framboði fyrir einn af Lýðræðisflokknum, sem farið
stjórnarandstöðuflokkunum hefur með völd síðan byltingin
var skotin til bana og önnur. var gerð og Faruk kóngi var
kona,semgifterframbjóðanda, steypt af stóii.er spáð miklum
Mánudagur 28. maí 1984 24
■ Þingkosningarnar í Egyptalandi sem fram fóru í gær, voru víða róstusamar. Hér er kona að greiða
atkvæði í borginni Heliopolis. Búist er við að stjórnarflokkurinn sigri með miklum meirihluta atkvæða.
Símumynd POLFOTO
meirihluta atkvæða. Mubarak
forseti segir að þetta séu fyrstu
raunverulegu kosningarnar í
Egyptalandi í hálfa öld, enda
séu engar hömlur lagðar á fram-
boð stjórnarandstöðuflokka.
Leiðtogar stjórnarandstöð-
unnar eru ekki á sama máli og
telja að þeim sé gert erfitt fyrir
með því að til að flokkur komi
manni inn á þing þarf hann að
fá að minnsta kösti 8% atkvæða.
Reiknað er með að stjórnar-
andstaðan fái um 100 þingsæti
af 448.
Af fréttaskeytum að dæma
virðast það einkum frambjóð-
endur stjórnarandstöðuflokk-
anna sem verða fyrir árásum.
Ert bú að leita að hillum í stofuna,
barnaherbergið, geymsluna, iagerinn
eða verslunina? Þetta er lausnin.
FURUHILLUR
lltsölustaðir: REYKJAVlK: Liturinn, KÓPAVOGUR: BYKO, Nýbýla-
vegi 15, HAFNARFJORÐUR: Málmur, Reykjavikurvegi, AKRANES: Verslunin
Bjarg, BORGARNES: Kaupfélag Borgfirðinga, STYKKISHÖLMUR: Húsið,
PATREKSFJÖRÐUR: Rafbúð Jðnasar, BOLUNGARVlK: Jón Fr. Einarsson, ISA-
FJÖRÐUR: Húsgagnaverslun Isafjarðar, BLÖNDUÓS: Kaupfélag Húnvetninga,
EGILSSTAÐIR: Verslunarfélag Austurlands, SEYÐISFJÖRÐUR: Verslunin
Dröfn, REYÐARFJÖRÐUR: Verslunin Lykill, FÁSKRÚÐSFJÖRÐUR: Verslunin
Pór, VlK I MÝRDAL: Kaupfélag Skaftfellinga, VESTMANNAEYJAR: Þorvaldurog
Einar, SELFOSS: Vöruhús K.Á.
^SG SHItlVÍHUH
ILUBOÐ
***** s Jarðaber 822 gr
Í£ Tekex 200 gr
0 Holtabót 6tegundirkex
EPL | Rauð 4 #
RYVIl ■■ Hrökkbrauð H 200 gr
SÍÍíL 'V||Hr Udi Sykur 2 kg
i<i Bonner rúsínur 425 gr
...vöruverö í lágmarki
Kína:
Árangursrík
herferð gegn
glæpamönnum
- en ekki alltaf farið
eftir réttarfarsreglum
Pcking-Reutcr
■ Forseti hæstaréttar Kína
sagði í gær að baráttan gegn
glæpum hefði gengið framar
öllum vonum, en viður-
kenndi að dómstólar hefðu
gert mistök.
Zehng Tianxiang skýrði
ekki frá neinum dæmum um
mistökin né nefndi að ein-
hverjir hafi verið dæmdir til
dauða og líflátnir án ful'-
nægjandi sannana fyrir sekt.
En hann sagði að dómstólar
mundu hér eftir vanda sig betur
við réttarhöldin, og mál sem
ranglega hefðu verið dæmd
yrðu tekin upp aftur.
Zheng sagði að glæpum
hafi fækkað um þriðjung síð-
an farið var að taka á glæpa-
mönnum á einarðan og
áhrifaríkan hátt.
Baráttan gegn glæpa-
mönnum hófst í ágúst s.l. ár
og í september var lögunum
um dauðarefsingu breytt á
þann veg að líflátsdómur nær
til fleiri tegunda glæpa en
áður var, svo sem nauðgana
og þjófnaðar. Tugþúsundir
manna hafa verið handteknir
og talið er að minnsta kosti
10 þúsund hafi verið líflátnir
á s.l. átta mánuðum.
Zheng gaf skýrslu um bar-
áttuna gegn glæpum í al-
þýðuþinginu og Dagblað al-
þýðunnar birti útdrátt úr
henni og sagði að alþýðan
hafi stutt hana með ráðum
og dáð.
Ekki var um það getið að
herförinni væri lokið en for-
seti hæstaréttar sagði að sum-
ir dómanna væru ekki í
samræmi við afbrotin sem
kært var yfir og ekki hafi
ávallt verið farið að ströng-
ustu réttarfarsreglum í upp-
kvaðningu dóma.
Eiga myndir af mannáti
erindi til almennings?
Paris-Rsuter.
■ Franskur blaðamaður
var handtekinn sl. laugar-
dag í sambandi við mynd-
birtingu á sundurlimuðu
og hálfétnu líki hollenskr-
ar stúlku. Er hann annar
blaðamaðurinn sem hand-
tekinn er vegna þess máls.
Blaðamaðurinn sem
vinnur hjá tímaritinu Paris-
Match var úrskurðaður í
varðhald og gefið að sök
að hafa tekið við stolnum
myndum og hafa brotið
lögregluleynd.
Rannsóknarlögreglan í
París segir að blaðamað-
urinn hafi tekið við mynd-
um úr hendi lögreglu-
manns, sem hafi stolið
þeim úr rannsóknar-
gögnum lögreglunnar. Hér
er um að ræða myndir af
hryllilega leiknu líki hol-
lenskrar stúdínu, Renee
Hartvelt, sem myrt var
1981. Japanskur maður
játaði á sig verknaðinn og
að hafa ástundað mannát.
Myndirnar voru birtar í
deserrtber sl. í tímaritinu
Photo, sem ritstýrt er af
ritstjórn Paris-Match.
Fjölskylda myrtu stúlk-
unnar reyndi að fá lög-
bann á útgáfu tölublaðs-
ins, sem myndirnar birt-
ust í, en varð að sætta sig
við tæpra tveggja millj.
kr. skaðabætur.
Aðstoðarritstjóri blað-
sins var handtekinn í
janúar sl. og var gefið að
sök að notfæra sér stolna
muni. Honum var sleppt
eftir stutt varðhald og hef-
ur mál hans ekki enn verið
tekið fyrir.
Mál þetta hefur vakið
mikla athygli og þá spurn-
ingu hve langt blaðmenn
mega ganga í að halda
heimildum sínum
leyndum, og hvort það er
réttlætanlegt að neyta
allra bragða til að hafa
uppi á fréttum og myndum
og hvaða erindi alls kyns
viðbjóður á fyrir augu al-
mennings. -
Nicaragua:
Skæruliðar
ætia að ráð
ast á borgir
Tegucigalpa-Rcuter •
■ Talsmaður hægri sinnaðra skæruliða, sem studdir
eru af Bandaríkjastjórn, sagði í gær, að um miðjan júlí
mundi skæruhernaðurinn gegn stjórninni í Nicaragua
færast á nýtt svið, en þá mun hernaðurinn færast inn í
borgir og bæi og nefndi talsmaðurinn nokkra þeirra,
þar á meðal höfuðborgina Managua.
Frank Arana sagði að þá mundu tíu þúsund
skæruliðar ráðast inn í borgirnar. Haft var í svipuðum
hótunum í fyrra, en þá varð ekkert úr aðgerðum.
Annar talsmaður skæruliðanna sagði að það hafi
verið glæpsamlegt af bandaríska þinginu að neita
Reagan um 21 milljónar dollara framlag til að styðja
við bakiö á andstæðingum vinstri stjórnarinnar í
Nicaragua. Sagði hann þetta sýna vel tómlæti þingsins
gagnvart ríkjum í Mið-Ameríku. Hann hélt því fram
að skæruliðar hafi fengið loforð um aðstoð annars
j staðar frá en neitaði að staðfesta þann orðróm, að
ísraelar mundu veita skæruliðum í Nicaragua hernað-
araðstoð.
Tyrkir kvarta
yfir grískum
yfirgangi
Anjkara-Reuter.
■ Tyrknesk yfirvöld ásökuðu í gær Grikki fyrir
yfirgang, er grísk flugvél flaug inn í tyrkneska lögsögu
nærri hafnarborginni Kusadasi við Jónahaf, sem er
flóinn rnilli Grikklands og Tyrklands. Tyrkir segja að
flugvélin hafi flogið í þeirra lögsögu á laugardag og að
ekki hafi verið um mistök flugmannsins að ræða.
Gríski sendiherrann í Ankara var kallaður fyrir og
var tilkynnt að það gæti haft alvarlegar og hættulegar
afleiðingar ef Grikkir höguðu sér svona, að því er
tilkynnt var í tyrkneska utanríkisráðuneytinu.
Grikkir kvarta iðulega yfir að tyrkneskar flugvélar
brjóti lofthelgi þeirra yfir Jónahafi, en það er sjaldgæft
að Tyrkir taki svona þungt á máli sem þessu.
Þessi tvö ríki sem bæði eru í Atlantshafsbandalaginu
deila um yfirráð yfir Jónahafi, -Kýpur og á fíeiri
sviðum.
Banaslys í
hradabáta-
keppni
Den Boch, Hollandi-Reuter.
■ Banaslys varð í hrað-
bátakeppni í Hollandi í
gær. Italski bátsstjórinn
Luigi Valdano, 35 ára
gamall, fórst er báti hans
. hlekktist á og hvolfdi á
200 km. hraða. Þetta átti
sér stað í alþjóðlegri
Grand Prix keppni á
hraðbátum.
Valdano hálsbrotnaði
er bátur hans þeyttist
stjórnlaus á vatnsfletinum
og lést samstundis.
Aðrir keppendur, utan
einn, kusu að halda áfram
keppni þrátt fyrir slysið.