NT


NT - 05.06.1984, Síða 1

NT - 05.06.1984, Síða 1
Þriðjudagur 5. júní 1984 -135. tbl. 68. árg. Vestfirðingur í samkeppni við vegagerðina: Lagði einn 15-20 kílómetra akveg! ■ Þegar vegurinn kemur ekki til Lokinhamrabúa í Arnarfirði, leggja þeirhann bara sjálfir. Það gerðist í síðustu viku, þegar Elís Kjaran ýtu- stjóri frá Þingeyri lagði al- einn á nokkrum dögum 15- 20 km vegarspotta frá Lok- inhömrum inn að Stapadal í Amarfirði, þaðan sem fyrir Var vegarslóði að Hrafnseyri og aðalþjóðveg- inum. Nýi vegurinn styttir tölu- vert leið Lokinhamrabúa að þjóðveginum. Áður þurftu þeir að aka um Sval- voga að Þingeyri til að kom- ast í þjóðbraut. Sá vegur var lagður af vegagerðinni 1974-75 og er hann lokaður fyrir aðra en kunnuga, þar sem hann þykir með ein- dæmum hættulegur. Elís lagði veginn að undirlagi íbúa Lokinhamra og hreppsnefndarinnar. Kostnaðurinn við fram- kvæmdirnar var 130 þúsund krónur. Hreppsnefndin lagði til 50 þúsund kr. og Sigríður Ragnarsdóttir á Hrafnabjörgum 30 þúsund: Eftir standa 50 þúsund og ætlar ýtustjórinn að gefa vinnu sína. Við vegagerðina þurfti Elís að fara um miklar skriður, en hann er þaul- vanur vegagerðarmaður og getur komið ýtu sinni hvar sem er. Heimamenn eru mjög hrifnir af framtakinu. Eiga tækni- frjovganir rétt á sér? . I ■ Á meðan læknavísind- in finna æ fleiri og flóknari leiðir til að hjálpa þeim sem ekki geta eignast börn með eðlilegum hætti hafa ýmsar spumingar komið upp um réttarfarslega stöðu barna sem verða til með aðstoð tækninnar og einnig um það hvort aðgerðir af þessu tagi eigi siðferðislegan rétt á sér. Hér á landi hefur skipu- lagt tæknifrjóvgunarstarf verið stundað um tæplega fjögurra ára skeið. í úttekt í opnu NT í dag er fjallað um nokkur þeirra álita- mála sem komið hafa upp varðandi tæknifrjóvganir hér á landi og erlendis. NT-úttekt í opnunni Bláa lónið: Óaldar- lýður herjar á baðhús exem- sjúklinga - gífurleg skemmdarverk verið unnin ■ Gífurleg spjöll hafa verið unnin á baðhúsi psoriasissjúk- linga við Bláa lónið í Svartsengi. Oboðnir gestir hafa heimsótt húsið að næturlagi nánast hverja einustu helgi um nokk- urra mánaða skeið og fengið útrás fyrir eyðileggingarfýsn auk þess að skilja eftir sig alls kyns óþrif, meðal annars manna- saur á miðju gólfi baðherbergis- ins. — Sjá nánar síðu þrjú. Hreppsnefnd Eyjahrepps ekki sammála Thorssystkinum Samþykkir ekki að dótt- ir eiganda fái jörðina - hafnar nýju byggingarbréfi og að jörðin verði rýmd ■ Hreppsnefnd Eyja- hrepps hafnaði á fundi sínum um helgina byggingarbréfi jarðarinnar Gerðubergs sem hljóðaði upp á að eigandinn Þórður Thors byggði hana dóttur sinni og tengdasyni en núverandi ábúandi Lárus Gestsson færi af henni. For- sendur hreppsnefndarinnar voru fyrst og fremst þær að Þórður hefði iosað aðra jörð í hreppnum, Akurholt úr ábúð fyrir þessa sömu dóttur sína og þar hefðu þau hjónin nú þegar byrjað að koma sér fyrir. Þórður Thors sagðist í samtaii við NT í gær álíta þessa ákvörðun sveitarfé- lagsins út í hött og að hann myndi eftir sem áður halda til streitu kröfu sinni á hend- ur Lárusi um að hann færi af jörðinni. Hann kvað hrepps- nefndina ekki hafa neinn urn- sagnarrétt um byggingarbréf þegar um svo náinn skyldleika eiganda og væntanlegs ábú- anda væri að ræða. Þá sagði Þórður að dóttir sín og tengdasonur færu að Gerðu- bergi þegar Lárus færi þaðan burt. Svanur Guðmundsson oddviti Eyjahrepps kvaðst í samtali við NT þess fullviss að ákvörðun hreppsnefndar- innar væri réttlætanleg og að henni yrði ekki hnekkt. „Ég vil bara bjóða þessa nýju sveitunga að Akurholti vel- komna og er þess fullviss að Eyhreppingar munu styðja við bakið á þeim eftir föngum á meðan þau eru að koma undir sig fótunum", sagði oddvitinn að lokum. Sjá nánar í blaðinu á morgun. Eldur í tveimur strætis- vögnum! - allt á huldu með orsök brunans ■ Um áttaleytið í gærkveldi kom upp eldur í tveimur strætis- vögnum við þvottastöð SVR. Upptök eldsins erú óþekkt en báðir bílarnir voru nýkomnir inn. Höfðu vagnstjórarnir yfir- gefið bílana fyrir utan, en fundu þá skömmu seinna lofandi. Slökkvistarf gekk allgreiðlega, en alls notuðu starfsmennirnir um 15 slökkvitæki, áður en slökkviliðið bar að. Nokkur slökkvitækjanna reyndust vera því sem næst tóm. Eldurinn logaði mest aftan til og undir vögnunum, og gæti verið að kviknað hafi í út frá kælinum í öðrum bílnum en síðan eldurinn breiðst út með olíu. NT-mynd: Árni Bjarna. Vestfirðir: Verður sjómanna- verkfall í júlí? ■ Samninganefnd Alþýðii- sambands Vestfjarða hefur beint því til sjómannafélaganna á Vestfjörðum að þau afli sér verkfallsheimildar með það fyr- ir augum að verkfall geti hafist 1. júlí. Samninganefndir Alþýðu- sambands Vestfjarða og Út- vegsmannafélags Vestfjarða kontu saman til þess að reyna að ná samningum á föstudaginn var og það tókst ekki. í gær voru svo tilmælin um verkfallsheim- ild til þeirra félaga sem fara með sjómannasamninga, alls 10 félög, samþykkt. Samningar hafa verið lausir frá því að lögin frægu um fryst- ingu kjarasamninga voru sett.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.