NT


NT - 05.06.1984, Side 9

NT - 05.06.1984, Side 9
Þriðjudagur 5. júní 1984 9 EP Háskólabíó: Þegar kenndirnar koma í klerkinn er fjandinn laus Footloose (Lausfættur). Bandaríkin 1983. Leikendur: Kevin Bacon, Lori Singer, John Lithgow. Leikstjóri: Her- bert Ross. ■ í upphafi var orðið og orðið var hjá guði, orðið var guð; það var í upphafi hjá guði. Þá komu prestarnir, hrifsuðu það af honum, gerðust sjálfskipaðir umboðs- menn himnaföðurins á jörðu niðri, og tóku að hrella lýðinn: þú skalt ekki gera hitt, heldur þetta, o.s.frv. Og fákunnandi almúginn gapti slefandi. Aldirnar liðu, uns komið var fram undir lok þeirrar 20. en fátt hafði breyst, a.m.k. sums staðar. Það var ekki nóg að buxnabelti og magabelti hertu að litlu syndakroppun- um, hcldur fundu menn einhvern tíma upp svokallað biblíubelti til að herða að sálartetrinu. Sem er öllu verra. Footloose gerist í síðastnefnda beltinu. Smábær einhvers staðar í USA er þjakaður af umboðsmanninum og skoðanabræðr- um hans (sem óvart er nú bara allt fullorðna fólk staðarins). Þar má ekkert gera, ekki hlusta á tónlist, ekki dansa. Unga fólkið kann því að vonum illa, en lætur þó kúga sig uns á vettvang kemur ungur stórborgarpiltur. Sá verður um- svifalaust blóraböggull samfélagsins, eins og títt er með utanaðkomandi (af þeim stafar jú ógnunin við óbreytt ástand). Piltur linnir ekki látum fyrr en honum tekst að fá leyfi til að halda dansleik fyrir efsta bekk menntaskólans á staðnum, N.B. með aðstoð sjálfrar biblíunnar. Footloose er með eindæmum heimsku- leg, leiðinleg og vond mynd. Niðurstaða hennar er sú, að rokk og ról og heilbrigð skemmtan geta farið saman, en hvílíkar krókaleiðir hún þarf að fara til að komast að þessum einföldu sannindum. Sjálfsagt má líka fílósófera lengi um hjarðarhugs- unarháttinn og trúnaðartraust í mann- legum samskiptum. Það er ekki alltaf skásti kosturinn að hafa vit fyrir öðrum, o.s.frv. (kynslóðabilið á fullu). Og til að lokka unglingana til að sjá þessa mór- ölsku tuggu, hafa aðstandendur myndar- innar hrist inn í hana ótal dægurlögum, sem njóta mikilla vinsælda um þessar mundir, og eru eina sjáanlega ástæðan fyrir því að fólk flykkist til að sjá stykkið. Besti hluti myndarinnar er undir lokin, þegar prestur hefur verið leiddur af villu síns vegar, og faðmar og kyssir konu sína úti á engjum seint að kvöldi, undir dynjandi danstónlist, og fer með hana heim, eins og þá góðu gömlu daga. Það er ekki að spyrja að því, þegar... sjá fyrirsögn. Leikur í myndinni er enginn, nema helst hjá John Lithgow í hlutverki prestsins. Hið eina, sem krakkarnir kunna er að dansa og það gera þau ágætlega. Guðlaugur Bergmundsson Með „Austur- Gyðingum" í fyrri heimsstyrjöld Sammy Gronemann: Hawdoloh und Zapfenstreich. Erinnerungen an die os- tjúdische Etappe 1916-1918. Mit Zeic- hungen von Magnus Zeller. Júdischer Verlag - Athenáum 1984. 227 bls. ■ Sammy Gronemann (1875-1952) var á sínum tíma þekktur maður í hópi þýskra Gyðinga. Hann var lögfræðingur að mennt og starfaði sem slíkur, en var jafnframt afkastamikill rithöfundur og starfaði mikið að málefnum Gyðinga, var m.a. einn af forystumönnum í Zíonista- hreyfingunni. Gronemann var hermaður í þýska hernum á austurvígstöðvunum í upphafi fyrri heimsstyrjaldarinnar, en særðist og fékk þá lausn frá venjulegri hermennsku. Þess í stað var hann sendur til Eystrasalts- landa sem túlkur herstjórnarinnar í jidd- ísku. Hafði hann m.a. það hlutverk að þýða fyrir herstjórnina eitt og annað, sem birtist í blöðum, sem gefin voru út á jiddísku og jafnframt að þýða af þýsku yfir á jiddísku tilskipanir og sitthvað fleira, sem gera átti almenningi kunnugt. Dvaldist hann í Eystrasaltslöndum, eink- um Litháen til stríðsloka 1918. Þessi bók er endurminningar Grone- manns frá dvölinni þar eystra á stríðsár- unum. Hann segir frá ýmsu, sem fyrir augun bar, en þó einkum frá kynnum sínum af skemmtilegum mönnum og skrýtnum, og frá Gyðingum og gyðing- dómi meðal „Austur-Gyðinga“, en svo kölluðu þýskir Gyðingar gjarnan trú- bræður sína þar eystra. Frásögn Gronemanns af trúarlífi Gyð- inga í Eystrasaltslöndum er einkar athygl- isverð, en þeir virðast hafa varðveitt Sanuny Gronemami Hamloloh und Zapfenstreich Jiidischerlérfag Athendum fornar hefðir bæði betur og lengur en Gyðingar í Vestur-Evrópu. Kom þetta fram í mörgu, en þó einkum í tilbeiðslu- formum ýmsum og guðsþjónustuhaldi. Þá er einnig mjög fróðleg frásögn af komu Gronemanns til Vilnu í Lettlandi árið 1916, en þá voru stríðshörmungarnar þar í landi ægilegar og fólk svalt heilu og hálfu hungri. Segir m.a. frá því er fólk datt skyndilega dautt niður á götum úti af næringarskorti. Margar fleiri frásagnir mætti nefna af dapurlegum atburðum, en það sem þó einkennir þessa bók öðru fremur er léttur stíll höfundarins og húmor, sem hann á til að bera í ríkum mæli. Þetta er vel skrifuð bók og stórfróðleg og margar ágætar teikningar eftir Magnus Zeller gera hana enn skemmtilegri aflestrar en ella. Jón Þ. Þór HAPPDR€TTI SLY9AVARNARFELAGS ISLANDS VINNINGAR UTDREGNIR l.JUNI 1984 200 REALTONE UTVARPSVIDTfKI 307 437 1695 2730 3807 4289 5388 7868 7988 8750 9062 10904 12739 16187 17401 20047 20401 21007 23367 23762 24581 25227 26056 27305 28079 28240 28710 30443 31030 31064 31160 31626 31767 31828 32319 32906 34236 35314 35904 36903 37227 37525 39937 40043 40741 40996 41446 42563 43168 43410 43889 44739 45177 45669 45734 45744 46182 46698 47044 47500 47781 48855 48872 49771 49837 50908 51903 52631 53336 54338 54574 56233 57747 58162 58683 58815 58960 59691 60109 61015 61576 61690 62357 62438 65014 67648 67899 68000 69769 73425 73649 74096 75185 75342 76743 77272 77741 78409 79000 79166 79975 79976 80251 80819 83789 84315 84482 85397 85918 85955 88439 89367 89661 90275 91214 91439 91569 93552 93636 93858 93982 95502 96161 97147 97953 99496 100185 100235 101757 102833 103461 104867 105892 106041 106090 106854 107041 107332 107390 108038 108531 109464 109603 110324 111628 112077 112125 112554 113097 116084 116474 116592 117102 117829 119587 122455 122575 123568 124855 125392 125714 127228 127912 128136 130243 131116 131447 131795 131876 132283 133935 134543 134561 134950 135716 135962 137829 138515 139070 141357 144513 145716 146886 147702 149531 150293 150825 152324 154366 154610 154634 155761 155956 156479 156512 156546 159035 159443 159643 159982 200 PIRATRON TOLUUUR 5 336 849 4029 4838 5611 5886 6041 6138 6565 7555 8809 10099 10280 10882 12950 13257 13283 13675 14960 15247 16561 16705 17658 18009 19885 19970 22582 22745 23640 24232 25552 25781 26287 26298 27258 27799 28531 29103 29641 30104 30352 31149 31280 33138 34054 34867 35305 36666 37850 37889 39621 39999 40200 40314 40376 41152 42498 42873 43312 43653 44204 44215 44251 44351 44605 45385 46425 48325 48981 49299 50157 51063 51253 53653 53982 54430 55048 55277 57176 57305 57498 57869 57913 58306 58820 59264 59588 59594 60476 61583 64827 65429 65872 66040 66043 67348 70688 74624 75148 75279 75918 76829 77201 77940 78186 79702 80324 80502 80563 81034 81365 82301 82389 82904 83624 83770 85185 85437 87162 87606 87863 88118 88165 88358 88913 89679 89683 90721 91723 92644 93315 93418 94926 96044 96400 96836 99823 99840 100978 101299 102132 104144 105073 105517 106228 107369 108466 108900 109341 110157 110163 111779 111986 113661 117298 117825 119533 120854 122110 122604 122669 123075 123231 124904 126131 126537 128219 128860 129671 130608 131430 131881 133316 133415 134120 138523 139079 139543 139671 140700 141148 143583 144669 145327 146041 148304 148595 150682 151510 153002 153525 154865 155633 155933 156131 156926 158299 158796 159634 100 POLAROID VIVA 1 IOSHYNDAVELAR 106 13235 24987 41656 59703 71714 88992 108100 2475 13604 28404 41715 60641 74490 90182 111080 3525 14965 2B603 44676 61741 77735 92123 121320 5904 15769 30331 45427 63812 79060 92447 122359 6020 17473 34180 46297 64230 79513 96310 126520 9698 177B5 34516 46992 67141 84912 102996 126719 10142 19653 38058 53376 67887 85097 104287 127496 11075 21142 38119 54472 68816 86402 104539 129352 11312 21630 38865 54943 69499 88385 105485 131328 11873 23103 39205 57363 69611 88936 106377 133002 133707 134111 136789 137243 137765 138168 138182 139226 139397 140467 140608 140830 142682 147718 147736 150711 151207 154244 158647 159673 VINNINGAR VERÐA AFHENTIR EFTIR 17. JClNl GEGN FRAMVlSUN VINNINGSMIÐA. SLYSAVARNAFELAG ISLANDS. AFAKAFFIÐ & ÖMMUKAFFIÐ dSili Kfe ÍVAR - SKIPHOLTI 21 - SÍMI(91) 23188 og (91) 27799

x

NT

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.