NT - 05.06.1984, Síða 17
Þriðjudagur 5. júní 1984
RIP-RAP-RUP-
* _ - og Andrés
TÍSKAN
■ Nú á 50 ára afinæli Andrés-
ar Andar er ýmislegt gert til að
halda upp á það. Schiesser-
fyrirtækið, sem framleiðir vin-
sæl -nærföt, svo sem brjósta-
höld, nærbuxur, skyrtur, sólföt
o.fl., hefur nú vegna afmælis-
ins skreytt mikinn hluta fram-
leiðslu sinnar með myndum af
Andrési Önd og litlu frændum
hans Rip, Rap og Rup.
Þessa tísku kalla þeir líka
Rip -Rap -Rup-tískuna. Skyrt-
urnar er hægt að nota fyrir
sumarblússur við pils eða
buxur.
Schiesser tekur ábyrgð á
þessari vöru, og þeir tilkynna í
auglýsinguin sínum, að þegar
Andrés Önd verði 52 ára þá
geti viðskiptavinirnir skipt
undirfötunum sem þeir keyptu
á afmælisárinu, ef þeir séu
ekki ánægðir með sendingu
þeirra. Framleiðendur segjast
ekki búast við að ntargir noti
sér þetta tækifæri. Hvort þeir
hugsa sem svo, að neytendur
kunni ekki við að senda til
þeirra notuð nærföt sín, eða
þá að þeir kunni svo vel að
meta nærfötin og endingu
þeirra, er ekki gott að segja. c
Rip-Rap -nærfötin eru úr
bómullarefni, en í brjóstahöld-
unum er líka 5 % teygjuefni.
Búist er við mikilli sölu á
nærfötunum nieð hinum vin-
sæla Andrési Önd sem skrauti
á viðeigandi stöðum.
» Litlu endurnar hoppa um
á brjóstahöldum og nærbux-
um fyrirsætunnar.
» Þaðereinsgottað halda
íhúfuna, þegar iþróttastúlk-
an á í hlut, hún gæti átt það
til að fara að hamast i fót-
bolta i Andrésar Andarskyrt-
unni.
» I teiknimyndunum má
aldrei sjást neitt dónalegt
eða tvírætt, því flautar
Andrés vandræðalegur, í
þessu nýja hlutverki sínu.
wmm
WtMmm
Wmmm
Wmm
wmm
■ '':■■//'■■.■
'éiSSÍk
'W?'":-,
wm
'/////},
Allir skreyta sig, -
en hver á sinn nátt!
Söngkonan Grace Jones setur sig í munnsvipinn á „Ijónamanninum", en
stellingar fyrir lj ósmyndarann sem þar er á ferð Larry (JR) Hagmán á
nálgast hana. Hún er í svörtum jakka einhvers konar „furðufataballi".
með silkikraga, og hvítum víðum jakka
utan yfir. Síðan kórónar hún þennan En fína konan með andlitsskrautið,
hátíðabúning nteð barðastórum sem herrarnir standa upp fyrir og snúast
svörtum hatti, - en „punkturinn yfir í kringum, þekkið þið hana? Þetta er
i-ið“ er þó hinn frægi munnsvipur Grace! Margrét prinsessa í Bretlandi sem kem-
Líklega þekkir sjónvarpsáhugafólk ur svona skreytt í samkvæmi.
» Larry(JR)Hagman
■ Allir reyna aö líta vel út, hvort sem
þaö eru afskckktir frumbyggjar við
Amazonfljót í Suður-Ameríku eða
svörtustu Afríku, eða þá þekkt tískufólk
í stórborgum.
Við sjáum hér þrjár myndir af frægu
fólki, sem allt puntar sig - hvert á sinn
hátt.
Þeir eru stærstu ein-
eggja tvíburar í heimi
■ Mike og Jim Lanier eru stærstu eineggja
tvíburar í heimi. Þeir eru nú þegar orðnir 2.10
m á hæð og 106 kg. og halda enn áfram að
vaxa, enda eru þeir ekki nema 14 ára. Þar með
hafa þeir skotið ref fyrir rass þeim eineggja
tvíburum, sem skráðir eru sem þeir hávöxnustu
í Heimsmetabók Guinness, Dan og Doug
Busch í Flagstaff, Arizona, sem eru ekki nema
2.02 m á hæð !
-Þeir voru svo litlir, þegar
þeir fæddust, segir móðir
þeirra. - Þeir fæddust 8 vikum
fyrir tímann og Jint var ekki
nema 8 merkur og Mike bara
9 1/2 mörk. En nú er öldin
önnur.
Það fylgja því óneitanlega
ýrnis óþægindi að vera svona
hávaxnir. Tvíburarnir geta t.d.
ekki bara gengið inn í fatabúð
og keypt sér föt. Móðir þeirra
verður að sauma allt á þá. Og
skóna þeirra verður að sér-
smíða. enda nota þcir hvorki
meira né minna en nr. 56!
Rúmin þeirra smíðaði pabbi
þeirra og þurfti að láta gera
rúmdýnur alveg sérstaklega..
Og samskipti tvíburanna við
reiðhjól eru alveg sérstakur
kapítuli.
Enn hafa þeir ekki fundið
rciðhjól, sem getur borið þá,
þau leggjast hreinlega saman
undir þeim ! Það er alveg
sérstaklega bagalegt fyrir þá,
því að þeir vinna sér inn vasa-
peninga með blaðaútburði og
þá getur heldur betur flýtt fyrir
að geta notast við hjól.
í skólanum, þar sem þeir
ganga í 8.bekk, þurfa þeir að
hafa sérsmíðaða stóla og borð.
Og tvíburunum finnst óþægi-
legt að þurfa alltaf að beygja
sig til að ganga um dyr. Þar við
bætist, að jafnaldrar þeirra eru
ekki alltaf of fúsir til að vera
með þeim, þar sem þeim finnst
heldur lítillækkandi að þurfa
alltaf að horfa upp til þeirra.
-En ég er ánægður með að
vera svona stór, segir Mike.
-Þá sér maður yfir allt og
okkur er líka sýnd meiri virð-
ing en hinunt krökkunum.
Stærðin er þeim ekki ein-
göngu til vandræða. Nú þegar
berast þeim tilboð hvaðanæva
að frá hinunt og þessum há-
skólum, sem sjá í þessuni há-
vöxnu piltum efni í afbragðs
körfuboltaleikara.
Og foreldrar þeirra eru stolt-
ir yfir sonum sínum, sem
standa sig vel í skólanum og
eru foreldrum sínum ljúfir og
góðir synir.
Þriðjudagur 5. júní 1984
» Þeir Mike og Jim Lanier eru þegar
orðnir vel yfir 2 m á hæð og halda
ehn áfram að stækka. Milli þeirra
stendur 15 ára systir þeirra, sem er
ekki nema 1.55 m á hæð. 12 ára
bróðir er líka í fjölskyldunni og er
hann i meðallagi hár.