NT - 05.06.1984, Page 18
Þriðjudagur 5. júní 1984 18
Rás2kl. 10.
Morgunmennirnir á Rás 2
með „Músíkgetraun“
■ Þennan þriðjudagsmorgun
ætla morgunmennirnir Páll
Þorsteinsson. Ásgeir Tómas-
son og Jón Ólafsson að spjalla
við hlustendur um ýntis mál
líðandi stundar. Einnig verða
þeir með músíkgetraun, og
svo er líka símatími, sem gefur
okkur öllum tækifæri til að
heilsa upp á þessa vinsælu
menn.
Sjónvarp kl. 20.40:
Gullgrafaralestin
■ Nú hefst nýrmyndaflokkur
í sjö þáttum unr járnbrautir.
Hann heitir „Á járnbrauta-
leiðum" (Great Little Railw-
ays) og er heimildamynda-
flokkur frá breska sjónvarpinu
BBC, uin gamlar járnbrautir og
lestarferðir á fögrum og oft
fáförnum slóðum í Norður- og
Suður-Ameríku, Evrópu og
Asíu. Þessi fyrsti þáttur heitir
Gullgrafaralestin, er um leiðina
til Yukon, þarsem járnbrautin
fer um erfiðasta land sem hægt
er að hugsa sér fyrir járnbraut-
ir. En þarna var á gullgrafara-
árunum mikil umferð, og er
reynt að gefa fólki innsýn í
þann tíma.
Margar af þeim járnbrautar-
leiðum, sem áhorfendur kynn-
ast í þessum þáttum, eru ein-
ungis fyrir áhugafólk og ferða-
menn, sem hafa gaman af að
kynnast gömlum ferðamáta á
fáförnum slóðum, en sumar
járnbrautirnar eru reknar enn
í dag sem starfandi og mikið
notuð samgöngutæki.
■ Hrikaleg gljúfur blasa við fyrir neðan járnbrautina, sem
rennur eftir teinunum á mjórri bergsillu utan í háu fjalli.
■ Ragnar Kjartansson myndhöggvari hjá verki sínu „Lcirkera-
smiðnum“.
Útvarp kl. 21.10:
Nú fá hlustendur
að kynnast Islandi
af frásögn Þorvaldar Thoroddsen
og í leiðsögn Tómasar Einarssonar
■ Á dagskrá útvarpsins í
kvöld hefjast þættir um ferðir
Þorvaldar Thoroddsen um
ísland. í kvöld er 1. þáttur:
Austurland sumarið 1882.
Umsjón með þessum þáttum
hefur Tómas Einarsson kenn-
ari. en hann hefur lesara með
sér. í kvöld verður Snorri Jóns-
son lesari með Tómasi.
Er við töluðum við Tómas til
að fræðast af honum um ferðir
Þorvaldar og útvarpsþætti
þessa, sagðist honum frá á
þessa leið:
„Þetta verða alls 12 þættir í
útvarpinu í sumar, þar sem
sagt verður frá rannsóknar-
ferðum Þorvaldar árunum
1882-’98. Hann ferðaðist um
landið í 14 sumur og rannsak-
aði það á allan hátt. Aðal-
fylgdarmaður hans var Ög-
mundur Sigurðsson, sem síðar
varð skólastjóri í Hafnarfirði.
Við Ögmund er kennt fjallið Ög-
mundur í Kerlingarfjöllum og
við Þorvald er kennt fjall í
Dyngjufjöllum, en hann skírði
það þó ekki sjálfur, heldur
voru aðrir síðar sem kölluðu
fjallið eftir honum.
Það hafði lítið sem ekkert
verið ferðast um óbyggðir ís-
lands á þessum tíma. Þorvald-
ur er t.d. fyrstur til að fara um
óbyggðir vestan Vatnajökuls
milli Veiðivatna og Vatnajök-
uls. Hann rannsakaði þetta
svæði og ferðaðist þarna um
fyrstur manna, eftir því sem
best er vitað.
Þorvaldur Thoroddsen fór
bæði um byggðir og óbyggðir
og skrifaði ferðaþætti jafnóð-
um. Þeir voru svo gefnir út í
Andvara, en seinna safnað í
eitt rit sem heitir Ferðabók
Þorvaldar Thoroddsen. Fyrsta
útgáfa hennar kom út 1913-
1915. Hún var svo prentuð
aftur 1958 og sá
Jón Eyþórsson veðurfræðing-
ur um þá útgáfu“. -í þessum
útvarpsþáttum verða með mér
5 lesarar, sagði Tómas Einars-
son, en Snorri Jónsson er sá
fyrsti og les með mér um
Áusturland. Seinna lesa með
mér Valtýr Óskarsson og Bald-
ur Sveinsson, en í seinni þátt-
unum þegar fer að líða á þá
ræði ég við Svein Jakobsson
jarðfræðing um störf Þorvaldar
og hver staða hans er núna
meðal jarðfræðinga.
Það skaðar ekki að hlustend-
Sjónvarp kl. 20.35:
Myndlistarmenn
Ragnar Kjartansson, mynd-
höggvari og leirkerasmiður
■ í tilefni af Listahátíð 1984,
hefur Félag íslenskra myndlist-
armanna leitað til Sjónvarpsins
um gerð stuttra kynningar-
þátta á nokkrum meðlimum
félagsins. Eru þessir þættir
framlag FÍM til Listahátíðar.
Val listamanna hafði stjórn
félagsins með höndum, en um-
sjón Halldór Björn Runólfsson
listfræðingur. Stjórn upptöku
hefur Valdimar Leifsson kvik-
myndagerðarmaður annast.
Þar sem hver þáttur er
þriggja til fimm mínútna
langur, hafa stjórnendur bund-
ið sig við afmarkað svið hvers
listamanns. Er reynt að bregða
ljósi á vinnu hans hér og nú, en
þróunarferli og æviágrip látin
liggja milli hluta. Markmið er
að draga fram í dagsljósið þá
fjölbreytni lista og listamanna,
sem rúmast innan vébanda
Félags íslenskra myndlistar-
manna.
Þættirnir verða sýndir í Sjón-
varpinu meðan á Listahátíð
stendur og verða kynntar nán-
ar í dagskrá, svo og tímasetn-
ing þeirra.
Fyrsti kynningarþátturinn á
íslenskum myndlistarmönnum
var um Einar Hákonarson list-
málara, en annar þátturinn er
á dagskrá sjónvarpsins í kvöld
kl. 20.35 og fjallar hann um
Ragnar Kjartansson, mynd-
höggvara og leirkerasmið.
■ Tómas Einarsson, kcnnari og leiðsögumaður. „Ég hef mest
ferðast um miðhálendi landsins, kringum Tur.gnafcllsjökul um
Vonarskarð og svæðið þar um kring“, sagði Tómas, þegar við
spurðum hann um hvaða svæði Islands hann hefði helst ferðast.
ur hefðu kort við hendina, ef
þau eru til á heimilinu. Nú í 1.
þætti yrði það þá Austurlands-
kort, en síðan í næsta þætti
Reykjanes-kort, því að þar var
Þorvaldur árið eftir. í kynn-
ingu útvarpsins eða dagskrá
segir til um hvaða landshluta
verður sagt frá hverju sinni.
-Harðasta og erfiðasta ferð
Þorvaldar var er hann fór um
Hornstrandir en hann komst
með hesta alla leið að Horni í
Hornvík. Það var glæfraferð
og þó þetta væri farið um
sumar þá má segja að það hafi
verið vetrarveður, því að það
árið kom aldrei sumar. Það
snjóaði, svo hann þurfti að
vaða snjó í hné á Hornbjargi.
Þorvaldur var óskaplega dug-
legur og áræðinn ferðamaður,
sagði Tómas Einarsson.
Sjálfur er Tómas mikill
ferðamaður og hefur verið
leiðsögumaður í mörgum ferð-
um Ferðafélags íslands um
landið.
útvarp
Þriðjudagur
5. maí
7.00 Veöurfregnir. Fréttir. Bæn. Á
virkum degi. 7.25 Leikfimi. 7.55
Daglegt mál. Endurt. Þáttur Maröar
Árnasonar frá kvöldinu áður.
8.00 Fréttir. 8.15 Veöurfregnir.
Morgunorö - Oddur Albertsson
talar,
9.00 Frettir.
9.05 Morgunstund barnanna.
„Hindin góða“ eftir Kristján Jó-
hannsson Viöar Eggertsson les
(2).
9.20 Leikfimi. 9.30 Tilkyningar.
Tónleikar. Þulur velur og kynnir.
10.00 Fréttir. 10.10 Veöurfregnir. For-
ustugr. dagbl. (útdr.)
10.45 „Man ég það sem löngu leið“
Ragnheiður Viggósdóttir sér um
þáttinn.
11.15Tónleikar Ólafur Þóröarson
kynnir.
12.00 Dagskrá. Tónleikar. Tilkynn-
ingar.
12.20 Fréttir. 12.45 Veðurfregnir. Til-
kynningar. Tónleikar.
13.30 Sven Bertil Taube syngur
lög eftir Theodorakis Art Blakel-
ey, Count Basie o.fl. leika jasslög.
14.00 „Endurfaeðingin“ eftir Max
Ehrlich Þorsteinn Antonsson les
þýðingu sina (4).
14.30 Miðdegistónleikar
14.45 Upptaktur - Guðmundur
Benediktsson.
15.30 Tilkynningar. Tónleikar.
16.00 Freftir. Dagskrá. 16.15 Veöur-
fregnir.
16.20 Síðdegistónleikar
17.00 Fréttir á ensku.
17.10 Síðdegisútvarp.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veöurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Kvöldfréttir. Tilkynningar.
19.50 Við stokkinn Stjórnandi:
Gunnvör Braga.
20.00 Sagan: Flambardssetrið II.
hluti, „Flugið heillar" eftir K.M.
Peyton Silja Aöalsteinsdóttir les
þýöingu sína (4).
20.30 Ensk þjóðlög.
20.40 Kvöldvaka a. Hafnfirski
söðlasmiðurinn í Klattau Gunnar
Stefánsson les frásögu þátt eftir
Jón Helgason ritstjóra. b. Úr Ijoð-
um Fornólfs Þorsteinn frá Hamri
les.
21.10 Frá ferðum Þorvaldar Thor-
oddsen um ísland 1. þáttur:
Austurland sumarið 1882.
Umsjón:Tómas Einarsson. Lesari
með honum:Snorri Jónsson.
21.45 Utvarpssagan: „Þúsund og
ein nótt“ Steinunn Jóhannesdóttir
les valdar sögur úr safninu í
þýöingu Steingrims Thorsteins-
sonar (22).
22.15 Veöurfregnir. Fréttir. Dagskrá
morgundagsins. Orð kvöldsins.
22.35 Listahátíð 1984: Toiileikar í
Bústaðakirkju 3. þ.m. Gunnar
Kvaran og átta aörir sellóleikarar
flytja ásamt Elísabetu Erlingsdótt-
ur söngkonu tónlist eftir Johann
Sebastian Bach og Villa-Lobos. -
Kynnir: Ásgeir Sigurgestsson.
23.45 Fréttir. Dagskrárlok.
Þriðjudagur 5. júní
10.00-12.00 Morgunþáttur. Síma-
timi. Spjallaö 'viö hlustendur um
ýmis mál liöandi stundar. Músik-
getraun. Stiórnendur: Páll Þor-
steinsson, Ásgeir Tómasson og
Jón Ólafsson.
14.00-16.00 Vagg og velta. Létt lög
af hljómplötum. Stjórnandi Gísli
Sveinn Loftsson.
16.00-17.00 Þjóðlagaþáttur. Kom-
ið viö vítt og breitt í heimi þjóölaga-
tónlistarinnar. Stjórnandi: Kristján
Sigurjónsson
17.00-18.00Frístund. Unglingaþátt-
ur. Stjórnandi: Eðvarö Ingólfsson.
Þriðjudagur
5. júní
19.35 Hnáturnar Lokaþáttur Þýöandi
Þrándur Thoroddsen. Sögumaöur
Edda Björgvinsdóttir.
19.45 Fréttaágrip á táknmáli
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.35 Myndlistarmenn 2. Ragnar
Kjartansson, myndhöggvari og
leirkerasmiöur.
20.40 Á járnbrautaleiðum (Great
Little Railways) Nýr flokkur - 1.
Gullgrafaralestin heimildamyndafl-
okkur í sjö þáttum frá breska
sjónvarpiriu, BBC, um gamlar
jarnbrautir og lestarferöir á fögrum
og oft fáförnum slóðum i Norður-
og Suöur-Ameriku, Evrópu og
Asiu. Þýöandi og þulur: Ingi Karl
Jóhannesson.
21.25 Verðir laganna 3. Pólitíkin er
söm við sig Bandarískur fram-
haldsmyndaflokkur um lögreglu-
störf i stórborg. Þýðandi Bogi Arn-
ar Finnbogason.
22.15 Einkarekstur - opinber
rekstur? Pallborösumræöur á
ráöstefnu sem Stjórnunarfélag is-
lands gekkst fyrir á Hótel Sögu, 9.
mai siðastliðinn og sjónvarpiö lét
þá taka upp. Þátttakendur eru:
Árni Gunnarsson, Ingi R. Helga-
son, Jón Magnússon, Valur
Valsson, Vilhjálmur Egilsson og
Þröstur Ölafsson. Umræöum stýrir
Þóröur Friðjónsson.
23.20 Fréttir í dagskrárlok