NT - 07.06.1984, Blaðsíða 2
Fimmtudagur 7. júní 1984 2
■ Steingrímur Hermannsson og Joseph Luns ræddust við í gær.
■ Á fundinum með blaðamönnum voru rædd bæði alvarlcg mál og....
Aðalritari NATO á fundi með íslenskum blaðamönnum:
))
Góð framtíð að baki
U
■ „Ég á góða framtíð að
baki,“ sagði Joseph Luns, aðal-
ritari NATO, þegar hann var
spurður hvað hann tæki sér næst
fyrir höndum. Luns lætur af
starfi hjá NATO nú í júní og
tekur Lord Carrington við starfi
hans.
„Munurinn á ykkur og mér,“
sagði Luns við fréttamenn í
gær, „er sá að þið vitið að
einhvern tíma hverfið þið af
þessari plánetu, en fyrir mig er
þetta mun nær.“
Joseph Luns og Geir Hall-
grímsson, utanríkisráðherra
sátu fyrir svörum á blaðamanna-
fundi í gær. Luns sagðist hafa
haft ánægju af heimsókn sinni,
en í gær þáði hann hádegisverð-
arboð forseta íslands og ræddi
við Steingrím Hermannsson,
forsætisráðherra. Um kvöldið
sat hann kvöldverðarboð
Steingríms.
Luns hélt stutt erindi á blaða-
mannafundinum. Sagði hann að
Nýr bókhaldslykill
hjá ríkisstofnunum
■ Nú er verið að leggja
síðustu hönd á gerð nýs bók-
haldslykils hjá Fjárlaga- og
hagsýslustofnun. Lykilinn á
að nota í öllum ríkisfyrir-
tækjum frá og með næstu
áramótum, en þá verður eins
og kunnugt er tekið í notkun
nýtt tölvustýrt bókhalds- og
áætlanakerfi hjá ríkinu.
„Það má segja að þetta sé
gamli lykillinn endurbættur
með nýjum liðum þannig að
hann ætti að geta þjónað
öllum ríkisaðilum,“ sagði
Kári Sigfússon, deildarstjóri
í ríkisbókhaldinu, í samtali
við NT.
Kári kvaðst ekki búast við
að það kostaði mikil vanda-
mái fyrir ríkisstofnanir að
tileinka sér notkun nýja lyk-
ilsins. Hann væri byggður á
þeim gamla, sem langflestir
ríkisaðilar hefðu notað.
Eiga kennarar
ekki afa
og ömmu?
■ Dropateljari veltir því
fyrir sér þessa dagana hvort
hann sé orðinn ofsalega gam-
aldags og „sveitó“ að eiga
bara afa og ömmu í stað t.d.
föðurmóður og móðurföður.
í skýrslu Jafnréttisráðs segir
nefnilega frá kærum 15
kennara sem töldu eyðublað
fyrir Kennaratal á íslandi
brjóta í bága við Jafnréttis-
lögin, þar sem aðeins væri
þar beðið um upplýsingar
um „föðurföður og móður-
föður, en ekki eftir föður- og
móðurmóður". Jafnréttisráð
var sammála kennurunum og
beindi þeim sjálfsögðu til-
mælum til ritstjóra kennara-
talsins að „upplýsingum yrði
bætt við um föðurmóður og
móðurmóður".
Líklega er það þó lán í
óláni að kennarar skyldu
ekki beðnir að upplýsa um
þá áa sína sem á gamal-
íslensku nefnast langafar. A
nýíslensku hefði þá verið
óskað upplýsinga um;
móðurmóðurmóður, móð-
urföðurmóður, föðurföður-
föður og föðurmóðurmóður.
Þótt kennarar séu eflaust
skírleiksfólk grunar Dropa-
teljara að eitthvað hefðu þess-
ar upplýsingar vafist fyrir
sumum þcirra, til að byrja
með að minnsta kosti.
Dropateljari hefur komist
að því að móðurföðurmóðir
hans muni hafa heitið
Guðrún.
Ráð til bjarg-
ar útgerðinni
■ Þótt vafist hafi fyrir
sjávarútvegsráðherrum þessa
lands - svo lengi sem Dropi
man eftir sér - að finna ráð
til að útgerðin beri sig vafðist
það hins vegar ekki fyrir
útgerðarmanni sem hann
hafði tal af um daginn (þótt
sá væri raunar búinn að reka
útgerðsínameð tapi f 20 ár).
„Ef fjármálaráðherra gæfi
núna út bráðabirgðalög um
að þeir útgerðarmenn sem
græddu eitthvað mættu eiga
þann gróða skattfrjálsan
þá er ég handviss um að
a.m.k. 80% af útgerðinni í
landinu kæmi út með gróða
um næstu áramót", sagði
þessi frækni útgerðarmaður.
Og þar sem Dropi er þjóð-
hollur (eins og allir vita)
finnst honum sjálfsagt að
koma ábendingunni til skila
til þeirra sem einhverju gætu
um ráðið, enda líklega mesta
efnahagsundur á þessari öld
ef útgerðin tæki allt í einu
upp á því að græða.
Sjaldan launar
kálfur ofeldi
■ Sjaldan launar kálfur of-
eldi. Þetta kom í ljós á
dögunum þegar vinstri menn
í kennarasambandinu felldu
Gísla Baldvinsson í stjórnar-
kjöri. Gísli hcfur verið mjög
þægur við vinstri menn í
vetur, í starfi sínu fyrir kenn-
arafélag Reykjavíkur, þótt
sjálfstæðismaður sé. En í
kosningunum sneru vinstri
menn sem sagt baki við Gísla
hann hefði fyrst komið til ís-
lands 1963, þá sem ráðherra í
hollensku stjórninni. Síðan
hefði hann komið oft hingað til
lands.
Luns erfæddurl911 ogþví73
ára gamall. Hann ber þó aldur-
inn vel og var hress í máli á
blaðamannafundinum. Luns
var spurður um ýmis atriði
varðandi stefnu NATO og upp-
setningu eldflauga í Evrópu.
Fram kont í máli hans að
hann teldi NATO mikilvæg
samtök til að viðhalda friði.
Hann sagði uppsetningu eld-
flauga í Evrópu nauðsynlega til
að viðhalda valdajafnvægi og
sagði að Sovétríkin hefðu sett
úr skorðunt yfirburði NATO
ríkja með uppsetningu lang-
drægra eldflauga í Vestur-
Sovétríkjunum.
Hann sagðist ekki álíta að
leiðtogar Sovétríkjanria væru
reiðubúnir til alvarlegra við-
ræðna um afvopnunarmál fyrr
en ljóst væri hver yrði næsti
forseti Bandaríkjanna.
Þá sagði Luns að ekki kæmi
og er hann því laus úr gísl-
ingu.
Vér viljum
sameinast
■ Hevrst hefur að allmargir
meðlimir Hins íslenska
kennarafélags séu lítt hrifnir
af sameiningarhugmyndum
Kennarasambands íslands.
Finnst sumum þeirra það
koma undarlega fyrir sjónir
að meðlimir KI séu aó álykta
um sameiningu félaganna
svona upp á sitt einsdæmi.
Velta menn nú fyrir sér hvaða
félagi KI vilji sameinast næst.
Hefur verið minnst á Blaða-
mannafélag íslands - já eða
Félag íslenskra atvinnu-
flugmanna.
til mála að NATO ríkin drægj-
ust inn í deilurnar við Persaflóa.
Hann sagði að ef til aðildar
Bandaríkjamanna í því stríði
kæmi, þá gæti farið svo að þeir
þyrftu að nota herafla sem nú er
staðsettur í Evrópu. Væri þá
ætlast til að Evrópuþjóðirnar
hlypu í skarðið á meðan.
Geir Hallgrímsson tók til
máls í enda blaðamannafundar-
ins og þakkaði Joseph Luns
velvild sem hann hefði sýnt
íslandi. Sagði Geir að Luns
hefði lagt sig fram við lausn
þorskastríðanna og við að
vernda sérstöðu íslands innan
NATO.
Luns sagðist ekki vera búinn
að gera upp við sig hvort hann
skrifaði endurminningar sínar
en sagði að þegar hann liti á
hlaða skjala, símskeyta, ræða og
blaðagreina í safni sínu efaðist
hann um að honum ynnist tími
til þess.
Luns mun skoða sig um í dag.
Þetta er síðasta opinbera heim-
sókn hans til íslands, en 25.
júní tekur Lord Carrington við
sem aðalritari Atlantshafs-
bandalagsins.
Þrír af meðlimum Imperiet
NT-mynd Ari
Imperiet í Saf ari í kvöld
■ Sænska hljómsveitin Imperiet, sem kom fram á Norrokki í
Laugardalshöll um síðustu helgi mun koma fram í Safari í kvöld,
fimmtudagskvöld. Þetta verða síðustu hljómleikar hljómsveitarinn-
ar hér á landi í þetta skipti, en þeir munu hefjast um hálf tólf leytið.
Kirkjan í
framsókn
■ Skálholt, útgáfufélag
kirkjunnar hefur sett prent-
stofu á laggirnar sem gerir
útgáfunni mögulegt að
standa að margháttaðri út-
gáfustarfssemi á ódýran hátt.
Tæp 200 ár er nú síðan
kirkjan hætti prentstarfssemi
og 400 ár liðin frá útgáfu
fyrstu íslensku Biblíunnar.
Hingað til hefur útgáfan gef-
ið út hjálparefni vegna
kirkjulegs starfs, 6 bækur, 2
hljómplötur og 2 snældur.
>á er unnið að gerð barna-
plötu. Einnig hefur Skálholt
gefið út málgagn kirkjunnar,
Víförla, sem kemur út 10
sinnum á ári. Þá er unnið að
gerð myndbanda með kristi-
legu efni og verður fyrsta
myndbandið gefið út í
sumar. Þessi nýja prentstofa
er til húsa að Klapparstíg 27.
Fyrsti framkvæmdastjóri
Skálholts var frú Jóhanna S.
Sigþórsdóttir en núverandi
framkvæmdastjóri er sr.
Kristinn Ágúst Friðfinnsson.