NT - 07.06.1984, Side 10
Fimmtudagur 7. júní 1984 10
Myndlist
10 gestir á Kjarvalsstöðum, fyrri grein:
Græna Ijósið
Er;ó
Hrcinn rViðfinnsson
Jóiuuu Eyfclls
Kristin F.yfclls
Kristján Ouðuutndsson
JLouisa MattiiiasdóiTir
Sijiurður Guðmuadsson
Stcinunn Biatnadóttir
Tryr^vi Oiafsson
Þórður Bcn Sveinsson
■ „10 gestir“ frá útlöndum. Myndir af listamönnunum en ekki
verkum þeirra. Efnismeðferö, hugsun og fordæmi þeirra hefur
aukið sjálfstraust íslenskrar menningar og gefíö ungu íslensku
myndlistarfólki grænt Ijós í ýmsar áttir; hvar verður hvort tveggja
niður komið um næstu aldamót?
■ Samtíminn sér spegilmynd
sína í listaverkinu, en verkið
endurspeglar skapara sinn og
álit hans á því hvernig honum
liafi fundist að vera til við gefin
skilyrði. Tók hann því með
æðruleysi, var hann löngum
með hundshaus, undirlagður
ranghugmyndum vímunnar,
væmni og keílingalegheitum,
féll hann fyrir einni dellu af
annarri, stóð hann staðfastur
útí gegn, og svo frv.?
Hvað býður þessi samtími
(+/- 10 - 20 ár) listamannin-
um uppá? Sama og ávallt áður.
Pað, að halda sögu sinnar eigin
starfsgreinar við, og reyna þar
fyrir utan að hnýta reynslusögu
sinnar eigin tilveru aftanvið.
Eru allar „reynslusögur" jafn
listrænar? Uppbygging þjóð-
félagsins er hið sjálfvirka sigti;
dreifing auðmagns (stéttar-
skipting), stærð (fólksfjöldi),
trúarhugmyndir, skólakerfið
(almenn menntun) eru meðal
eininga þessa menningarsigtis.
Hvernig það er sjálfvirkt vitum
við ekki kannski er það fremur
„tiltölulegasjálfvirkt". Segjum
að sannleikur + fegurð = list.
Hlutur getur verið fullkomlega
sannur miðað við forsendur og
vel innan lágmarkskröfu tímans
um fegurð, án þess að þjóðfé-
lagsmynd þess tíma hafi not
fyrir að lýsa hann „list“. Slíkir
hlutir lenda oftast á haugun-
um. Ein listasaga er skráð á
haugunum, hin í sýningar-
sölum ríkjandi stéttar
(menningar).
Eins og í flestum starfsgrein-
um hefur meiri hlutinn sem
stundar þær; „Bara lent þar af
því ég vissi ekki hvað mig
langaði til að gera“. Þeir lista-
menn sem þannig hafa orðið til
af tilviljun fást sjaldnast við
neitt annað alla æfi en að lepja
upp það sem „hinir“ hafa gert
áður á mismunandi fágaðan
hátt, og þar með gersamlega
sneytt persónulegum vitnis-
burði. Auðvelt er að kalla þá
falsara, lygara „kitschara", en
þrátt fyrir allt eru það einmitt
þessir listamenn sem eru í
miklunr meirihluta í starfs-
greininni og viðhalda henni
sem slíkri, og stórum hluta af
kunnáttu hennar. Þó að í
höndum þeirra einna þornaði
listin auðvitað upp og dæi, þá
skapa þeir forsendur fyrir
framþróun og nýkveikju og
halda á vissan hátt vörð um
„fegurð“ + sannleikur = list.
A skrítinn hátt vill meirihluti
listamanna drepa hana undir
yfirskyni fegurðar, en skapa
um leið hvatningu fyrir útrás
„sannleikans“. I allri sköpun
er sannfæringin göfugust og
næst ncistanum mikilvæga.
Þannig er starf listamannsins
ögrun við tortíminguna; ekki
bara tortímingu listarinnar held-
ur líka mannanna og menning-
arinnar sem búa hana til. Ögri
listin ekki neytandanum, þá er
annaðhvort dauðvona.
Nútíminn býður okkur öðru
fremur uppá mótsagnir, meira
nú en nokkru sinni fyrr: Fram-
farir en þó afturför. Við lifum
lengur, en lífverum fækkar og
bomban stækkar. Við ferð-
umst víðar, en náttúran
minnkar. Fleiri bækur koma
út, en við lesum minna. Við
lifum hraðar, en tíminn líður á
sama hraða og fyrr, og svo
frv. Finnst okkur þetta góðir
eða slæmir tímar? Hvaða hlut-
verk finnst okkur að listin eigi
að hafa um þessar mundir? Á
hún að vera friðsæl vin í
óreiðunni, ljóðræn, faltegeins
og ósnortin náttúra, framhald
af draumi urn það sem hefði
getað verið, eins konar hvít
lygi? Eða á hún að vera hluti
af óreiðunni og rangsleitninni,
klípa okkur í nefið til að vekja
okkur upp með slitróttum frá-
sögnum, hálfkveðnum vísum,
óvæntri fegurð, furðulegheit-
um, öfgum, möguleikum,
hjálpa okkur í gegnum það að
vera til, sjá það sem er frá
óvæntu og þolanlegra sjónar-
horni, gæða lífið hér og nú
bjartsýni, gefa manninum
fyrirheit?
Kjarvalsstaðir júní 1984.
Línur í bakgrunni
1960; þá hafði talsverður
hópur íslenskra myndlistar-
manna flakkað og/eða dvalið
um lengri eða skemmri tíma
í útlöndum, flestir velt sér
uppúr akademískri forpokun,
aðrir skoðað og dáðst að list-
kvikunni í kringum þá í þeim
borgum sem þeir stoppuðu í,
einn eða tveir orðið meðmót-
endur í stefnum tímans. Heim-
komnum dugði þroski þeirra
margra til að þýða klakabönd
aldalangrar stöðnunar mynd-
listarinnar, og gefa lista-
mennsku höfuðborgarinnar
módernískan andlitssvip.
Stöðnun þessi í myndlistinni
átti öðru fremur rætur sínar að
rekja til skorts á nauðsynlegu
efni. íslendinga skorti, kynslóð
fram af kynslóð, jafn sjálfsagt
efni til myndgerðar og t.d.
nothæfa liti. Allt fram á okkar
tíma fékk sköpunarþörf þjóð-
arinnar útrás, ef ekki í
kveðskap, hinni háþróuðu
lausavísu, þá í ýmissi meira og
minna nytsamari handavinnu,
einkum útskurði og útsaumi.
íslensk myndlistarsaga er
því slitrur einar, knúin af að-
stæðum til að vera ótrú bæði
heimslistinni og heimahögun-
um, varla nema saga nokkurra
klaufa, fyrr en eftir seinna
stríð. Pá verða til a.m.k. tvær
mikilvægar forsendur fyrir
uppvexti myndlistar. í fyrsta
lagi, Reykjavík er orðin vísir
að borg. Sem auk þess að
skapa ný hvetjandi vandamál í
líkingu við borgarmenningu
stórþjóðanna, skapar hún jafn-
framt vísi að nýrri aðstöðu svo
sem sýningarsali, og aðhald í
gegnum fleiri höfuð á tiltölu-
lega litlum stað. í öðru lagi;
peningar, sem leiða óbeint til
aukins innflutnings menntunar
og nauðsynlegra efna og verk-
færa. Fyrstu kynslóðir ís-
lenskrar listasögu voru meira
og minna rótfastar í (íslenskri)
sveitamenningu, list þeirra
hlaut því að verða annað hvort
áframhaldandi klaufaskapur
og útkjálkahugsun eða mála-
miðlun. Sveitamennska í inni-
haldi en tiltölulega alþjóðlegt
yfirborð; en það er einmitt í
stórum dráttum útkoma ís-
lensks módernisma.
Þegar myndlist hafði verið
iðkuð sem starfsgrein í landinu
í nokkra áratugi, varð smám
saman til grundvöllur þess að
íslenskir myndlistarmenn færu
að huga að því sem alla tíð
hefur verið hinn eitilharði
Eftir
Hannes Lárusson
kjarni áríðandi listar, hug-
myndinni, innihaldinu, dýpt
listhugsunar, verkinu í víðara
samhengi. Á Kjarvalsstöðum
er nú sýning, þó ekki hafi verið
til hennar efnt nema í kringum
hið fremur smáþjóðlega tema;
„Islenskir myndlistarmenn
sem starfað hafa erlendis“,
sem gefur landsmönnum ágætt
tækifæri til að sjá verk, sem
jafnframt því að kitla sjóntaug-
ina á nákvæman hátt er líka
ætlað að kitla heilafrumurnar í
neytendanum, og reyna að fá
hann eins og ósvikin list ætlast
til að sjá fremur með heilan-
um, en hann missi af listnautn-
inni með því að hleypa henni
ekki lengra en í augun.
Meðal þeirra sem sýna nú
eru ýmsir sem með starfi sínu
hafa nú þegar sýnt fram á
mikilvægi listar sem oft hefur
verið nefnd vegna orðfæðar
„Nýlist" hérlendis, eða meðal
annarra orða list í einhvers-
konar tengslum við alþjóð-
lega listhugsun. I þessum hópi
eru ýmsir þeir sem með for-
dæmi sínu hafa gefið tugum
ungs íslensks myndlistarfólks
ef svo mætti að orði komast
grænt ljós á hina ólíkustu
möguleika í nútíma myndlist
og um leið fært íslenskri menn-
ingu pínulítið meira sjálfs-
traust. Og enn mega ungir
margt af þeim læra.
Á hvern hátt fyrrgreindir
listamenn tengjast alþjóð-
legum liststraumum síðustu
áratuga hver á sinn hátt ásamt
viðfangsefni einstakra verka
verður reynt að spá í næstu
grein.
Trúlega hefur aldrei verið
meiri fjöldi við opnun mynd-
listarsýningar á íslandi en 2.
júní, enda er sýningin „10
gestir" merkasta framlag lista-
hátíðar til myndlistar 1984.
Tvær greinar jf þessu tilefni er
því vart að bera í bakkafullan
lækinn.
§
&
I Happdrartti
v.
VINNINGAR
í 2. FLOKKI 1984—1985
Vinningur til ibúöarkaupa, kr. 500.000
72584
Bifreiðavinningar eftir vali, kr. 100.000
47 19082 35236 46148
2413 19803 40523 68137
Utanlandsferöir eftir vali, kr. 35.000
140 7 18135 34571 47238 65942
Á 4 1 / 70365 34609 49061 69967
4V.H) 20659 37078 52491 70098
ÖITiÓ 21992’ 38120 52778 72423
12 7.* 6 24890 41118 54207 73195
1.546‘J 31592 45008 56777 74672
162 76 33365 46107 57000 74815
17016 33626 46578 57219 76286
Húsbúnaður eftir vali , kr. 10.000
755 24059 37651 54738 66698
1 1 JI' 75049 38280 55119 67230
3234 25446 38434 56785 67594
4268 25895 44019 57627 68348
5469 26064 44097 57647 68783
5757 27151 44609 62616 70198
7449 28259 44905 62633 71020
8670 30511 45987 63355 71860
8883 31219 48059 64975 71906
13705 31407 49419 65576 72011
17798 32321 50769 66023 73639
19261 35059 51147 66073 74853
21699 36748 51453 66117 75911
23174 37452 52414 66211 78850
Húsbúnaður eftir vali, kr. 2.500
644 8664 17488 25525 33157 43467 50441 59393 66364 74388
665 8916 17871 25785 33447 43883 51625 59699 66370 74453
694 9095 17890 25959 34112 43982 51680 59746 66441 74569
787 9253 17936 26060 34209 44162 52121 59775 67511 74743
1049 9353 18026 26122 34221 44231 52133 59851 67718 74779
1424 9405 18284 26140 34562 44504 52560 60262 67815 74805
1535 9498 18317 26246 34778 44525 52662 60293, 67913 74830
1762 9519 18676 26516 35445 44732 52736 60392 ‘ 68065 75033
2094 9659 18727 26848 35947 44781 52911 60558 68314 75060
2417 9781 19161 26941 36018 44833 52914 60615 68346 75119
2591 10004 19352 27048 36730 44857 53067 60674 68353 75203
2857 10177 19620 27183 36997 45028 53124 60805 68495 75300
2925 10245 19866 27222 37062 45136 53314 60848 68656 75639
3228 10315 20155 27506 37212 45294 53368 60853 68678 75661
3307 10333 20208 27829 37255 45385 53459 60950 68825 75700
3669 10370 20240 28277 37415 45547 53611 60970 69059 75789
4104 10442 20554 28281 37580 45560 53847 61319 69098 75939
4326 10608 20773 28343 38319 45617 54129 61343 69179 75981
4454 10700 21088 28354 38733 45743 54366 61518 69466 76148
4465 10996 21119 28612 38855 46569 54513 61681 69547 76649
4475 11093 21180 28705 38910 46593 54617 61706 70046 76678
4602 11119 21183 28709 38912 46621 54773 61852 70460 76703
4604 11253 21413 28812 38983 46634 54898 61918 70480 76930
4767 11306 21923 28959 39218 46679 55769 62085 70556 76984
4800 11549 21946 29069 39347 46697 56036 62469 70645 77254
5028 11610 21988 29122 39353 46811 56055 62484 70674 77329
5064 11612 22029 29143 39703 46881 56143 62917 70678 77491
5120 12346 22399 29145 39842 47017 56221 63102 70735 77638
5229 12424 22654 29165 39875 47022 56355 63438 70887 77828
5463 12825 22748 29482 40105 47380 56672 63447 71335 77905
5711 13453 22931 29715 40156 47992 56820 63485 71539 77906
5723 13572 23193 29770 40273 48397 57072 63660 71761 78317
5836 13598 23274 29878 40353 48611 57085 63912 71871 78320
6106 13690 23382 30097 40773 48632 57111 64138 71987 78549
6175 13730 23589 30116 40893 48699 57188 64207 72106 78622
6371 13828 23605 30187 41547 48862 57497 64230 72123 78985
6385 14024 23644 30441 41662 49040 57528 64296 72235 79385
6417 14146 23759 30708 41759 49286 57981 64352 72279 79425
6422 14867 23930 30865 41783 49311 58055 64501 72440 79460
6792 15345 24026 30870 41824 49400 58086 64648 72816 79893
7053 15671 24494 30901 41857 49625 58365 64935 72909
7068 16045 24698 31020 42000 49667 58511 65140 73154
7109 16359 24736 31154 42530 49868 58599 65145 73585
7704 16411 24931 31404 42624 50053 58633 65323 73675
7757 16808 25100 31428 42659 50113 58759 65406 73756
7910 17033 25149 32099 42726 50176 58957 65950 73960
7963 17245 25156 32183 42868 50198 58958 66035 73992
8348 17326 25352 32626 42970 50319 59000 66255 74101
8401 17477 25382 32769 43404 50394 59246 66305 74254
Afgreiðsla húsbúnaðarvinninga hefst 15. hvers mánaðar
og stendur til mánaóamóta.