NT - 07.06.1984, Qupperneq 28
■ Nú er ódýrara að veikj-
ast eftir kl. 5 en fyrir.
Heimsókn heimilislæknis
kostar 140 krónur sem sjúk-
lingur greiðir en eftir kl. 5
er hægt að fá næturlækni.
Sá tekur 135 krónur fyrir
ómakið og hefur Sjúkra-
samlag Reykjavíkur endur-
greitt helming þeirrar upp-
hæðar, þannig að sú heim-
sókn kostar sjúklinginn
67.50 krónur. Það er því
ódýrara sem svarar 72.50
krónum að halda út til
fimm.
Pá kostar viðtal á stofu læknis
75 krónur sem sjúklingur greið-
ir. Læknirinn fær svo viðbót frá
sjúkrasamiaginu. Sú viðbót get-
ur verið allt frá einni krónu upp
í átta krónur. Hér er átt við
heimilislækna. Sérfræðingar
geta tekið meira gjald fyrir
viðtöl.
í þéttbýli er hæsta þóknun
sem heimilislæknir getur fengið
78.08 krónur. Þar af greiðir
sjúkrasamlag 3.08 krónur. Úti
■ Þeir sem eru blankir ættu að reyna að halda út til klukkan fimm og hringja þá á næturlækni. Síminn í Reykjavík er 21213.
Odýrara að vera veikur
á kvöldin og um nætur!
- en á daginn samkvæmt nýrri reglugerð
um þátttöku sjúklinga í læknakostnaði
þar sem læknar hirtu ekki um að
rukka inn þessar krónur frá
sjúkrasamlagi. Reglugerðar-
breytingin tók ekki til nætur-
læknisþjónustu í Reykjavík og
nágrenni.
á landi getur greiðsla sjúkra-
samlags numið allt að átta
krónum.
Þá getur þóknun sjúkrasam-
lags til heimilislæknis fyrir viðtal
numið einni krónu. Það er
spurning Jivort svari kostnaði
fyrir lækni að rukka inn þessa
krónu - eða hvað kosta eyðu-
blöð og frímerki og svoleiðis?
Það var reglugerðarbreyting
sem tók gildi 1. júní sl. sem
hækkaði allverulega hlut sjúk-
linga í lækniskostnaði. Og 1.
maí sl. féll úr gildi svokallað
númerakerfi sem notað hefur
verið lengi í Reykjavík. Þá fékk
hver heimilislæknir fast gjald
fyrir hvern einstakling sem var
á skrá hjá viðkomandi lækni.
Síðan tók læknir 25 krónur fyrir
viðtal og 50 krónur fyrir vitjun.
Nú hefur verið tekið upp
fyrirkomulag sem færir heilsu-
gæslu í Reykjavík og nágrenni
meira í átt að heilsugæslufyrir-
komulagi sem notað hefur verið
úti á landi. Fá nú læknar með
1750 sjúklinga á skrá, 24.000
krónur á mánuði, auk 21.000
krónur til að standa straum af
kostnaði við stofu sína.
Gjaldkskrá sína semja læknar
um við Tryggingastofnun ríkis-
ins en hlutur sjúklinga í kostn-
aði er ákveðinn með reglugerð.
Nú fyrr í vetur tókust samn-
ingar milli lækna og trygginga-
stofnunar um gjaldskrá, cn
reglugerð sem sett var nú í
byrjun mánaðarins hækkaði
hlut sjúklinga. Páll Þórðarson,
framkvæmdastjóri Læknafélags
íslands, sagði í samtali við NT
að mikill misskilningur væri að
laun lækna hækkuðu við þessa
breytingu. Sagði hann að ef
eitthvað væri þá lækkuðu þau,
Páll Sigurðsson, ráðuneytis-
stjóri í Heilbrigðis- og trygg-
ingamálaráðuneytinu, sagði í
samtali við NT að við samningu
reglugerðarinnar hefði verið
reiknað með að hún sparaði
180-190 milljónir króna á ári,
fyrir tryggingakerfið. Sparnað-
ur á þessu ári verður líklega
milli 80 og 90 milljónir króna,
þar sem reglugerðin tók ekki
gildi fyrr en 1. júní.
Þurrkur og
hlýttfratn
yfir helgi
S Góðar líkur eru taldar
á því að góða veörið hald-
ist fram yfir helgi þó ein-
hverjar breytingar getí
orðið f skýjafari um sunn-
an- og vestanvert landið.
Þurrkur er samt talinn
næsta vís á þeim lands-
hlutum sem annarsstaðar.
í gær fór hitinn í Reykja-
vík upp í 19 stig sem er
fátítt. Norðanlands var
hann víða meiri en til
sjávar á Austfjörðum urðu
menn að láta sér nægja 10
gráður. Á Vestfjörðum
var skýjað og svalt miðað
við aðra landshluta.
Sem sagt sama veður á
morgun og hinn og í öllu
falli vel þolanlegt ef ekki
gott um allt land fram yfir
helgi.
Alþýðubandalagið
í borgarstjórn:
Vill ráðstafa
iððagróðanuiri
af Stígahlíð
■ Fulltrúar Alþýðu-
bandalagsins í borgar-
stjórn vilja verja 9,4 mill-
jónum af hagnaði vegna
sölu lóða við Stigahlíð tih
Þriggja nýrra starfa á
hverfaskrifstofum Félags-
málastofnunar, kr. 400
þúsund. Til kaupa á húsi
vegna unglingastarfs í
Seljahverfi 2,5 millj.,
rekstur á árinu 500 þús.
Til bókakaupa og vinnu
vegna útibús í Gerðubergi
3 millj. og til bað- og
búningsklefa í Laugardal
3 milljónir.
Þannig hljóðar tillaga
frá borgarfulltrúum Al-
þýðubandalagsins sem
tekin verður fyrir á fundi
borgarstjórnar síðdegis.
■ Síst að undra þótt sundmcnn í sjó óttist gin sem þetta flestu fremur. Á innfelldu myndinni má
sjá Hjört Laxdal skipstjóra sem ókindina fékk. NT-myndir: Inga
Ódráttur í síð-
ustu veiðiferð
aflakóngsins
■ Ókind þessa fékk Sigurður
Georgsson á Suðurey - afla-
kóngur íslands á vetrarvertíð-
inni - í veiðarfærin í síðustu
veiðiferð sinni fyrir sjómanna-
dag. Vakti hún litla hrifningu
um borð, þar sem skepnur
þessar eru kraftmiklar og fara
illa með veiðarfærin. Sigurður
kom skepnunni upp á bryggju
í Vestmannaeyjum ef einhver
hákarlaverkandi vildi nýta sér
hana í verkuii. En um sjó-
mannadaginn hafa Eyjamenn
um annað að hugsa en brauð-
strit og birgðir svo enginn gaf
sér tíma til að hirða skepnuna
og skera. Mun hákarlinn því
hafa lent í gúanó í stað þess að
komast í trog á þorrablóti að
vetri.