NT - 02.08.1984, Blaðsíða 4

NT - 02.08.1984, Blaðsíða 4
Fimmtudagur 2. ágúst 1984 4 A NORÐUR LEID >. Um verslunarmannahelgi^,ru haldnar^ útihátíöir víðsvegar um an • Jíðirnar< Margir fara r þessa hclg. an Þess f sér nægja að skella tjald. og I hópferðir en enn aðrir lata g út úr bænum. Inesti í bfskoUið og ar r á suðurlandi og Mývatn 1 bórsmork og Landm t .(Jjr fcröamannastaðir. og Ásbyrgi á Norðurland b pað gctur venð \ En ferðamannastaðir eru á staði Sem nokkuð I athyglisvcrt og anægju g sem aður greiðfært að I komasui'^Vrö'á NT komum viö í Hrísey og á Blönduósi IS.tnokta-ynd.fsHkum^. ■ Björgvin Pálsson oddviti (annar frá vinstri) ásaint vinnu félögum við byggingu nýja barnaskólans. Þensla í Hrísey ■ Hríseyjarferjan hvíta á Arskógsströnd ■ „Það er orðið töluvert um það að ferðafólk komi hingað í eyjuna og ferða- mannastraumurinn á eftir að aukast mikið með bættri kynningu. Það varð mikil breyting á þegar við fengum nýju ferjuna okkar fyrir þrem árum og við gátum þá flutt mun meira af fólki út í eyna. Við erum að koma hér upp tjaldstæðum og snyrtiaðstöðu. cn svcfnpokapláss eru í barna- skólanum. Siglingin yfir í eyna þykir vera mikið sport og fólk kemur liingað gjarnan í skoð- unarferðir eða til að slaka á. Það er margt að sjá hér. Margir ■ Árni Tryggvason leikari að störfum við sumarbústað sinn í Hrísey, en hann er uppalinn þar. koma hingað og skoða fugla enda er hér mikið varp og fuglalíí. Nautaræktunarstöðin er forvitnileg í augum margra. Hópar hafa líka gert það að leigja ferjuna og sigla hringinn í kringum eyjuna, skoða hana í góðu veðri og sigla að Greni- vík. Nú, á hótelinu okkar, Hótel Brekku, er hægt að fá góðan mat, Galloway nauta- steik eða bara kaffi og meðlæti. en í Hótel Brckku verður væntanlega komin upp gisti- aðstaða næsta sumar. Það koma hingað hópar frá Akur- eyri bara til að stoppa smátíma og fá mat og kaffi. Þetta þykir skemmtileg dagsferð. Ibúar í eyjunni eru nú 274, fólksfjöldinn rokkar nú til frá ári til árs. Þetta hefur verið svona um 280 manns og fer dálítið eftir því hversu stórar kennarafjölskyldurnar eru sem flytja hingað, en það er mikil hreyfing á kennurum hér. Við erum að byggja veglegan barnaskóla sem er mikið átak í smáu samfélagi sem okkar. Lang stærstur hluti eyjarbúa vinnur í frystihúsunum þremur sem hér eru. Síðan er eitt byggingarfélag, Björk, og svo Einangrunarstöð ríkisins sem hefur tvo fastráðna starfsmenn, sem starfa við holdanautaframleiðsluna. Nýjasti atvinnureksturinn er hótelið. Kaupfélag Eyfirðinga gerir héðan út einn togara og 250 tonna togbát en auk þess eru gerðir út tveir 60 tonna bátar. Þessir þrír síðustu eru allir í rækjuævintýrinu og eru á rækjuveiðum. Atvinnuleysi hefur ekki verið hér teljandi og ekki húsnæðisleysi eða fólk verið á götunni eins og Reykja- vík enda hefur verið byggt mikið af nýju íbúðarhúsnæði á síðustu árum. Við gerum nú meira hér en að vinna í frystihúsinu. Það er bæði starfandi hér kvenfélag sem er með alls konar skemmt- anir og síðan er leikfélag með leikstarfsemi á veturna. Síð- asta vetur færði leikfélagið upp Delerium Búbónis eftir Jónas Árnason. Lionsfélagið er með margs konar skemmtanir. Af hefðbundnum skcmmtunum er að nefna bingó og það er mikið spilað þó engin séu hér spilavítin. Síðan er á sumrin opin hér sundlaug og krakk- arnir og fullorðnir líka nota liana töluvert. Krakkarnir eru afskaplega duglegir við að taka þátt í mótum hjá Ungmenna- sambandinu, það var nýlega unglingamót hér í Hrísey. Hestamennska er hér engin enda bannað vegna Einangr- unarstöðvarinnar." Af hverju ■ Blönduós er lítill og vinalegur bær sem teyg- ir sig meðfram ósum árinnar Blöndu norður í Húnavatnssýslu. Þang- að sækja Austur-Hún- vetningar þjónustu ým- iss konar og þreyttir og svangir ferðalangar njóta matar og hvíldar áður en brunað er áfram norður eða suður. En hversu margir eru það sem hinkra aðeins við og njóta þess að vera til á Blönduósi? Við spurð- um Sigurð Jóhannsson hótelstjóra á Hótel Blönduósi. „Ja, hér á hótelinu erum við með 21 herb- ergi og þau eru meira og minna fullbókuð fram á haust. Það er þá mest af erlendum ferðahópum og ráðstefnuhópum og svo hafa íslenskir ferða- langar gist hótelið meir í sumar en áður. En þessir ferðalangar hvort sem þeir eru íslenskir eða erlendir koma hing- að yfirleitt seint að ekki Blönduós? fe n kvöldi farnir og eru snemma að morgni. Svæðið hefur verið svo lítið kynnt að fólk áttar sig ekki á því að hér er alveg óhemju margt að skoða. Hérna í nágrenn- inu er t.d. mjög mikið af sel og stuðlabergi og hér í flæðarmálinu er töluvert um silung og lax. Það var verið að gera kynningarmynd um héraðið hér um dag- inn og þá náðu þeir einmitt ágætri mynd af sel sem stökk upp úr sjónum og greip lax á lofti. Nú og hér í nágr- enninu eru nokkrar af betri laxveiðiám landsins. Til dæmis Víði- dalsá, Vatnsdalsá, Laxá í Ásum, Laxá í Reiðarasveit, Blanda, Hallá og Svartá, Jú, jú hingað koma stórhöfð- ingjar að veiða. Ég man eftir einum sem bjó hér hjá okkur í fyrra og kom alla leið frá Porto Rico, ákaflega viðkunn- anlegur maður. Hann flaug á einkaþotu sinni til Reykjavíkur, þaðan tók hann bílaleigubíl hingað og bjó hér í tvo daga, áður en hann hélt heirn á ný. Hann veiddi einn lax og ég held að ég hafi aldrei séð glaðari mann á ævi minni. En hann hefur aldeilis verið dýr laxinn sá.“ ■ Sigurður Jóhannsson hót- elstjóri I

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.