NT - 02.08.1984, Qupperneq 8
Fimmtudagur 2. ágúst 1984 8
-Verslunarmannahelgin:-----------------
HVERT VILTU FARA?
■ Bubbi Morthens mun m.a. tjúnna mannskapinn upp á
Laugahátíðinni góðu um verslunarmannaheigina.
I Guðni Valtýsson, Karl Jónsson og Ásmundur Ingvarsson eru
meðal þeirra hundrað Þórsara sem nú keppast við til að hafa allt
sem glæsilegast í Herjólfsdal þegar hátíðin verður sett.
■ Nú er viðbúið að fólk sé
tekið að hugsa sér til hreyfings,
enda mesta ferðahelgi ársins
skammt undan. Eins og fyrri
daginn, þá er ýmislegt um að
vera um verslunarmannahelgina
og ættu allir, jafnt ungir sem
aldnir að geta fundið eitthvað
við sitt hæfi. Lesendum til
glöggvunar mun NT birta hér
á eftir yfirlit yfir það helsta
sem boðið er upp á um næstu
helgi, í þeirri trú að það megi
verða einhverjum til gagns.
Dansleikir
og skemmtanir
Eins og fyrri daginn, þá
gefst ungu fólki (á öllum aldri)
kostur á að sletta ærlega úr
klaufunum um verslunar-
mannahelgina. Ber þá fyrst að
nefna Viðeyjarhátíðina marg-
frægu, Laugahátíðina, Gauk-
inn í Þjórsárdal, Atlavík og
síðast en ekki síst, þjóðhátíð-
ina í Vestmannaeyjum.
Viðeyjarhátíð
Hátíð þessi mun hefjast í
Viðey, föstudaginn 3. ágúst,
skömmu eftir hádegi. Fólki
gefst kostur á að fara frá
Sundahöfn með Hafsteini
Sveinssyni, sem annast flutn-
ingana á milli lands og eyjar,
og verða allmargar ferðir farn-
ar daglega á meðan á hátíðinni
stendur. Á föstudagskvöldið
verður haldinn stórdansleikur
við undirleik hljómsveitar
Magga Kjartans, Kikks,
Toppmanna og Pardusar. Auk
þess verður mikil flugeldasýn-
ing á vegum Hjálparsveitar
skáta.
Á laugardag verður síðan
heilmikil dagskrá í gangi sem
hefst eftir hádegi,' en þá mun
Grammið gangast fyrir tón-
leikum þar sem fram koma
ýmsir flytjendur, m.a. Oxmó,
Vonbrigði, Svarthvíti draum-
ur, Slagverkur, Tikk-takk,
Kukl o.fl. Um kvöldið verða
síðan dansleikir á tveimur
pöllum og munu ýmsir
skemmtikraftar troða þar upp.
Loks verður klykkt út með
flugeldasýningu.
Á sunnudaginn hefst
dagskrá að nýju kl. 13.00 með
poppmessu en síðan koma
fram Bara-flokkurinn, Rocky
Horror, Dúkkulísur, HLH-
flokkurinn, Magnús ogJóhann
og fleiri. Pennan dag verða
jafnframt úrslit í break-dans-
keppni, bátasýning, sjóskíða-
sýning og sýning á seglbrett-
um. Um kvöldið verður dans-
að til kl. þrjú um nóttina við
undirleik hinna og þessara
hljómlistarmanna. I tilefni af
Viðeyjarhátíðinni bjóða Flug-
leiðir og Arnarflug upp á
sérstaka „pakka" til Reykja-
víkur og er Viðeyjarmiðinn
innifalinn í verðinu.
Laugahátíð
Hin sívinsæla Laugahátíð
mun að vanda verða haldin á
Norðurlandi um verslunar-
mannahelgina. Munu Bubbi
Morthens og Megas verða
aðal-sprauturnar. Eins og
venja er til, þá stendur hátíðin
frá föstudegi til mánudags,
ekkert kostar inn á tjaldsvæð-
in, og er dagskráin miðuð við
að flestir finni eitthvað við sitt
hæfi.
Á föstudagskvöldið verður
fyrsti dansleikurinn haldinn og
verður dansað til kl. þrjú um
nóttina. Á laugardag verða
haldnir hljómlcikar með Das
Capital, BubbaogMegasi,auk
þess sem haldin verður undan-
keppni í break-dansi. Á sunnu-
dag mun Sumargleðin og Stór-
bingó skemmta allri fjölskyld-
unni og þann dag verður úr-
slitakeppni í break-dansi. Auk
þess verður boðið upp á kvik-
myndasýningar, allan daginn,
alla daga Laugahátíðar. Fyrir
rólynda fólkið má geta þess að
á Laugum eru hótel fyrir þá
sem veigra sér við að liggja í
tjöldum.
Þjóðhátíð í
Vestmannaeyjum
Aðgöngumiðaverð hátíðar-
innar verður að þessu sinni
1000 krónur. Hátíðardagskrá-
in verður að mestu með hefð-
bundnusniði. Messa oghátíð-
arræða serh verður að þessu
sinni flutt af Helga Sæmunds-
syni, bjargsig, brenna og flug-
eldasýning að ógleymdum
þeim ásetningi þjóðhátíðar-
nefndarinnar að sigra bæjar-
stjórnina glæsilega í reiptogi
þeirra í milli. Af skemmti-
kröftum má nefna Halla og
Ladda, Björgvin Halldórsson,
Hálft í hvoru, Jóhannes, eftir-
hermu frá Ingjaldssandi,
Gretti Björnsson með nikk-
una, og söngvarana Bjartinar
Guðlaugsson og Bobby Harri-
son. Kynnir og stjórnandi há-
tíðarinnar verður Árni
Johnsen.
íþróttafélagið Þór í Vest-
mannaeyjum sér um þjóðhá-
tíðina að þessu sinni, og hefur
félagiðJieitið á Landakirkju
að gefa gotTýeður. Undirbún-
ingur hátíðarinnar er allur
unninn í sjálfboðavinnu.
Gaukurinn í
Þjórsárdal
Um verslunarmannahelgina
verður haldið mót í Þjórsárdal
sem nefnt hefur verið Gaukur-
inn ’84, og er haldið á vegum
Hérðassambandsins Skarp-
héðins og Ungmannasambands
Kjalarnessþings.
Boðið verður upp á ýmislegt
til skemmtunar, dansleiki,
diskótek, break-danssýningu,
karatesýningu, bardagalist, og
flugeldasýningu á laugardags-
og sunnudagskvöld. Miðaverð
er um eitt þúsund krónur og
hefst hátíðin á föstudagskvöld-
ið. Meðal þeirra skemmti-
krafta sem troða upp í Þjórsár-
dalnum verða hljómsveitirnar
Lótus, og Bara-flokkurinn,
diskótekið Stúdíó frá Selfossi
og Kiza-flokkurinn.
Sætaferðir verða alla helgina
til og frá mótssvæði og kostar
hver ferð kr. 200.
■ Úr Atlavík.
Atlavík ’84
Samkoman Atlavík ’84
verður að venju haldin í víkinni
fögru í Hallormsstaðaskógi, á
vegum Ú.Í.A. Dansleikir
verða öll kvöldin og skemmti-
dagskrár laugardag og sunnu-
dag. Heiðursgestur samkom-
unnar verður Jón Hjartarson,
leikari og mun hann ávarpa
NT-raynd:lnga
samkomuna í hátíðardagskrá
á sunnudag. Hljómsveitirnar
Stuðmenn og Dúkkulísurnar
skemmta á dansleikjunum og
koma auk þess fram á
skemmtidagskrám. Leikflokk-
urinn Svart og sykurlaust verð-
ur á ferð og flugi um samkomu-
svæðið með ýmsar uppákomur
alla helgina. Þá verður boðið
upp á hljómsveitakeppni á
laugardag og sunnudag, auk
þess sem gestum gefst kostur á
að spreyta sig í hinum ýmsu í
íþróttagreinum. Margt fleira
verður til skemmtunar og má
þá nefna leiki ýmis konar,
varðeld, flugeldasýningu og
fjöllistarmenn.
Samkoman hefst með dans-
leik á föstudagskvöldið og lýk-
ur með dansleik aðfararnótt
mánudagsins. Á laugardags-
kvöldið verður hinsvegar hald-
inn grímudansleikur og eru
gestir hvattir til að hafa það í
huga þegar þeir punta sig fyrir
ballið.
Flugleiðir bjóða sérstakan
Atlavíkurpakka á leiðinni
Reykjavík-Atlavík-Reykjavík
innifalið er flugfar báðar leið-
ir, ferð með rútu í Atlavík
frá Egilsstöðum, báðar leiðir
og svo aðgangur að samkom-
unni.
Galtalækjarskógur
Bindindismótið í Galtalækj-
arskógi er tilvalin tilbreyting
fyrir alla fjölskylduna um
verslunarmannahelgina.
Meðal þess sem boðið verður
upp á að þessu sinni eru hljóm-
sveit Ólafs Gauks, ásamt Svan-
hildi, plötutekið Devó sem
leikur fyrir dansi á föstudags-
kvöldið, Stefán Baxter break-
dansari, barnadansleikur með
skemmtikröftunum Jörundi
Guðmundssyni, Sigurði Sig-
urjónssyni og Erni Árnasyni
sem jafnframt munu skemmta
á kvöldvöku. Tívolí verður á
staðnum, flugeldasýningar og
varðeldur. Aðgönguverð verð-
ur kr. 600 fyrir fullorðna.
Borgarfjarðar-
dansleikir
Þrír dansleikir verða haldnir
á Logalandi um verslunar-
mannahelgina, og er það
hljómsveitin Upplyfting sem
stjórnar fjörinu. Ýmislegt
fleira verður til skemmtunar
s.s. útihljómleikar, óvæntar
uppákomur o.fl. Tjaldstæði
verða við Logaland og varðeld-
ar á kvöldin. Sæmundur sér
um allar sætaferðir frá B.S.Í.,
aðgangur á tjaldsvæðið verður
kr. 300.
Húnaver
Húnagleði verður í Húna-
veri um verslunarmannahelg-
ina að vanda og mun hljóm-
sveitin Gautar frá Siglufirði
leika fyrir dansi. Dansleikir
verða föstudags-, laugardags-
og sunnudagskvöld en auk
Gauta mun hljómsveitin Big-
band, og Sverrir Stormsker
troða upp með söng og leik.
Tjaldsvæði eru í nágrenni
Húnavers með tilheyrandi
snyrtiaðstöðu og veitingaskál-
■ Frá undirbúningi Vifteyjarhátíðar. NT-mynd: Amí Bj«m»
■ Mótift í Þjórsárdal um versiunarmannahelgina nefnist aft
þessu sinni Gaukurinn ’84.