NT - 02.08.1984, Side 9
L il ÁBÓT— 3 If
Verslunarmannahelgin
Fimmtudagur 2. ágúst 1984
■
■
HVAD VILTU GERA?
FERÐAFÉLAGINN
■ Úr Galtalækjarskógi
inn verður auk þess opinn.
Ekkert kostar inn á tjaldsvæð-
ið en aðgöngumiði á dansleik-
ina verður á kr. 350. Sætaferðir
verða að Húnaveri.
Miðgarður í
Skagafirði
Þrír dansleikir verða í Mið-
garði um verslunarmannahelg-
ina undir stjórn hljómsveitar
Geirmundar Valtýssonar. í
nágrenni við Miðgarð verða
auk þess tvö hestamannamót
til fróðleiks fyrir hrossaunn-
endur.
Fjölskyldu-
samkomur og
rólegheit
En lífið er ekki bara
glaumur, gleði og freyðandi
vín. Sumum óar við kætinni í æsk-
unni, og vilja halda sig þar sem
ekki þarf að vænta ónæðis-
samra nátta með söng og teiti
fram undir morgun. Að vísu
eru nokkur þau mót sem nefnd
hafa verið hér að framan skipu-
lögð með alla fjölskylduna í
huga t.d. þjóðhátíðin í Vest-
mannaeyjum, bindindismótið
í Galtalækjarskógi, Laugahá-
tíð o.fl. en fyrir þá sem vilja
enn meiri rólegheit má nefna
nokkra staði sem búa sig undir
að taka á móti gestum um
verslunarmannahelgina.
Ferðafélags-
ferðirnar:Þórsmörk-
Landmannalaugar:
Ferðafélag íslands mun
bregða undir sig betri fætinum
um verslunarmannahelgina.
M.a. verður farið á Strandir,
Ingólfsfjörð og í Dali á föstu-
dag kl. 18, Skaftafell, Hvera-
velli, Þórsmörk og Land-
mannalaugar, kl. 20.00. Þá
hyggst Ferðafélagið gangast
fyrir ferðum í Lakagíga og að
Alftavatni sama dag á sama
tíma. Á laugardag verður síð-
an farið á Snæfellsnes kl. 8.00
og í Þórsmörk kl. 13.00 sama
dag. Upplögð tilbreyting fyrir
göngugarpa og náttúruunn-
endur.
Húsafell
Að þessu sinni er stefnt að
því að laða fjölskyldufólkið að
Húsafelli, en þar verður ekki
■ Úr Þórsmörk
um útisamkomu að ræða, held-
ur kyrrð, næði og notaiegheit.
Tvenns konar verð er á tjald-
svæðunum, eftir því hvort
menn kjósa fyrsta eða annan
klassa. Verðið er í báðum
tilfellum undir 50 krónum.
Laugarvatn
Á Laugarvatni er margt
hægt að gera sér til skemmtun-
ar, en þar eru starfrækt tvö
Eddu-hótel auk tjald- og hjól-
hýsasvæðis. Lionsklúbbur
Laugardals starfrækir segl-
brettaleigu á Laugarvatni auk
þess sem menn geta brugðið
sér í litla túra á árabátum. Þá
er hestaleiga í nágrenninu fyrir
þá sem vilja skoða nágrennið
öðruvísi en fótgangandi eða
akandi.
Núpur, Flókalundur
í sumar er boðið upp á
gistingu í héraðsskólanum að
Núpi, en þar mun einnig fram-
I GALTALÆKJARSKÓGI
■ Frá Húsafelli
reiddur matur á matmálstím-
um. Á Núpi eru einnig sund-
laug og íþróttasalur, og ágætis
tjaldsvæði við skólann. Frá
Núpi er stutt til Flateyrar,
Þingeyrar og Súgandafjarðar
auk þess sem Dýrafjörðurinn
býður upp á marga fagra staði
til skoðunar og dvalar.
I Flókalundi er starfrækt
Eddu-hótel og orlofsbúðir,
auk þess sem tjald- og hjól-
hýsasvæði er í botni Vatns-
fjarðar. Fjörðurinn er undur-
fagur og j)aðan er skammt til
Patreksfjarðar, Bíldudals og
Tálknafjarðar.
Mývatn
Þar er Hótel Reynihlíð starf-
rækt auk þess sem boðið er
upp á mótorhjólaleigu, bíla-
leigu og bátaleigu að ógleymdu
útsýnisflugi inn að Öskju og
Kverkfjöllum fyrir þá sem þess
óska. Sveitin umhverfis Mý-
vatn er undurfögur og þaðan
er ekki löng leið inn á Oræfi,
eða til Húsavíkur að ógleymdri
Kröflu og öllu því sem henni
tilheyrir.
Útivist
Nú fyrir þá gönguhressu má
enn geta þess að Utivist býður
upp á ýmsar ferðir um verslun-
armannahelgina. Má t.d.
nefna Þórsmerkurferð, ferð á
Hornstrandir, í Öræfi og
Skaftafell, í Lakagíga, Kjal-
ferð auk siglingar í Purkey á
Breiðafirði, o.fl. ö.fl.
Kirkjulækjarkot
Árlegt landsmót hvíta-
sunnumanna í Kirkjulækjar-
koti, Fljótshlíð verður sam-
kvæmt venju um verslunar-
mannahelgina, frá fimmtudegi
til mánudags. Á dagskránni er
m.a. barnasamvera, samkom-
ur, Biblíulestrar, kvöldvökur
og varðeldur ásamt söng. Góð
aðstaða er til að taka á móti
tjaldfólki í Kirkjulækjarkoti og
er mótið öllum opið.
Kukl í Reykjavík
Nú eitthvað verða eftirlegu-
kindurnar í Reykjavík að fá
fyrir snúð sinn um verslunar-
mannahelgina. NT getur glatt
heimalningana með því að
hljómsveitin Kukl mun efna til
tónleika í Safari 2. ágúst
(fimmtud.) í tilefni af nýút-
kominni plötu sinni. Á tónleik-
unum mun OXMÁ einnig
koma fram og e.t.v. fleiri.
Þetta mun vera með„ síðustu
tónleikum Kukl hérlendis því
hljómsveitin hyggst halda til
Evrópu til tónleikahalds innan
tíðar.
■ Bæklingurinn góði sem
Iþróttasamband lögreglu-
manna og Umferðarráð hyggj-
ast dreifa til vegfarenda um
verslunarmannahelgina.
Ferða-
félaginn
■ Það er aldrei of varlega
farið, einkum þegar annasam-
asta umferðarhelgi ársins fer í
hönd. í tilefni af verslunar-
mannahelginni hafa fþrótta-
samband lögreglumanna og
Umferðarráð staðið saman að
fróðlegum, handhægum bækl-
ingi sem í ráði er að dreifa til
sem flestra ökumanna á vegum
landsins um komandi helgi.
í bæklingnum er m.a. að
finna ýmsar ábendingar frá
umferðarráði, símanúmer lög-
reglustöðva og sjúkrabifreiða
á landinu, vegalengdir milli
staða, heilræði í bátsferð-
um og á vatnaleiðum, þjónustu
F.Í.B. og margt fleira sem
komið getur sér vel þegar lagt
er upp í langferð. Þá er í
bæklingnum Ölympíu- og um-
ferðargetraun þar sem bitist er
um glæsilega vinninga. NT
beinir þeim tilmælum til allra
vegfarenda að kynna sér vel öll
öryggisatriði og hagnýtar upp-
lýsingar, svo helgin megi fara
vel og slysalaust fram.
i (D