NT


NT - 02.08.1984, Qupperneq 12

NT - 02.08.1984, Qupperneq 12
( W' il ÁBÓT Ferðir o «9 frístundir -— 3 Getui <0'jyst ánægjunni ■ Oft eru augljósustu fyrirbœri erfiðust að útskýra. Ánœgja virðist nærtakasta skýringin á frístundaiðkun fólks. NT fór á stúfana og leitaði skilgreiningu á ánœgju að baki ólíkru tegunda tómstundaiðju. Tómstundaiðja eins er atvinna annars og atvinna margra var upþrunalega tómstundagaman. Við leituðum því til valinkunnra manna og kvenna í leit að ánœgjuskilgreiningum. Hljóð- fœraleikur Glíma Martcinn Magnússon glímu- áhugamaður „Þaö cr tæknin tyrst og fremst sem er heillandi við þessa íþrótt. Ég veit nú ekki al- mennilega hvernig cg á aö lýsa þessu. Það er kannski sérstak- lega vcgna þess aö h,ún krefst svo nákvæmrar einbeitingar bæði andlega og líkamlega. Nú og svo veitir félagsskapur- inn í kringum þetta manni afskaplega mikla ánægju." Guðný Guðmundsdóttir kons- ertmeistari í stóru og smáu ntá segja að sú ánægja sem maður fær út úr því að spila á hljóðfæri sé í hlutfalli við þann undirbúning sem maður hefur lagt í það, þ.e.a.s. þá vinnu og þá kunn- áttu sem maður hefur aflað sér á hverjum tíma. Og það er auðvitað viss ánægja fólgin í því að geta miðlað fólki af svona stórkostlegri list eins og tónlistinni, því meiri eránægj- an því betur sem maður er undirbúinn undir það.“ Golf Steinunn Sæmundsdóttir golf- áhugakona „Aðalánægjan felst kannski í útivistinni. Svo hef ég verið ólétt tvö síðastliðin surnur þannig að þetta hefur verið bæði hollt og gott fyrir mig. Hm... svo er það náttúrlega keppnin um það að verða alltaf betri og betri.... Kvartmíla Valur Vífdsson kvartmílu- áhugamaður „Viljið þið bara ekki prófa? Þetta er náttúrlega keppni þannig að ánægjan er mest þegar maður er búinn að vinna. Svoerauðvitaðöllvinn- an í kringum þetta. Að baki hvers bíls liggja nokkur þús- und tímar. Maður hefur valið sér þetta sjálfur en þetta .er púra vinna. Þetta er líka mikil nákvæmnisvinna því í keppn- inni sjálfri ræðst allt á nokkrum hundruðustu úr sekúndu. þ.e.a.s. hvort maður er nógu iljótur að koma bílnum af stað. Það er trikkið í kvartmíl- unni. Ánægjan liggur að ein- hverju leyti í taugaspenningn- um í kringum þetta augnablik sem er geysilegur enda eru margir sern hafa bara geyspað á því. Ármann: Nú og svo er það líka það sem á eftir kemur, þ.e.a.s. hvort þú þurfir að horfa á afturendann á bílnum á undan eða njótir þeirrar ánægju að sjá hann í speglin- um. Valur: Nei, maður hefur ósköp gaman af þessu. Að sjálfsögðu gæti maður setið og vafið flugur eða eitthvað en það höfðar ekki til mín. ■ Valur Vífllsson ásamt kvartmílufélögum sínum Ármanni og Benna (t.v.) og Eyþóri (t.h.). Rallý Birgir Þór Bragason rallý- áhugamaður. Hmm.... Ánægjan af aksturs- íþróttinni liggur að hluta tii í því að vinna andstæðinginn.... en á réttlátan hátt auðvitað. Meöan á kcppni stendur er það fyrst og fremst hraðinn sem er mest spennandi því að því meiri sem hraðinn verður því minna má út af bregða til þess að eitthvað mistakist hjá manni.“ Fimmtudagur 2. ágúst 1984 12 ■ Guðmundur Þorsteinsson er starfsmaður hjá bókaforlaginu Svart á Hvítu, en þeir unnu í B-riðli fírmakeppninnar í ár. Bikarinn í baksýn. Skák Guðmundur Þorstcinsson skákáhugamaður „Skákin er eins og lífið. Að sigra, vera með og ekki síst að hafa nokkra ánægju uppúr krafsinu. Skákin er eins og klassiskt listaverk sem aldrei hættir að koma á óvart. Þó gerist hún að mestu í höfðum keppendanna sjálfra og þeir sem tefla reka sig oft á það að til eru fræ sem aldrei verða blórn. En jafnframt er skákin vísindi og vinna eins og allir skákmeistarar vita. Þeir sem líta á skákina sem tómstunda- iðju eða „hobby" eins og ég, ná aldrei langt." Ritstörf Halldór Laxness rithöfundur „Þið spyrjið mig eins og ég væri dagsbrúnarmaður. Það eina sem ég geri er að skrifa og það er ... og það er... það sem kallað er ein... einbeiting hugans. Það þýðir ekkert að hafa radíóið á eða eitthvert hljóðaapparat... Það er ekkert rómantískt eða spennandi við það þó að konti út úr því eitthvað sem fólk hefur gaman af að lesa þegar búið er að skrifa það tíu sinnum og prenta það o.s.frv." NT: Jú augljóslega eru rit- störf vinna en er hægt að hugsa sér ánægju af þeirri vinnu? „Ekki ánægju Í...Í.. þeint anda sem maður fer í bíó eða skemmta sér eitthvað. Enda andleg vinna með fullt af stendur það ekki til að það sé próblemum sent þarf að glíma nein skemmtun. Þetta er hörð við.“ Ættfrœði Sigurgeir Þorgrímsson ætt- fræðingur. „Ættfræðin er að verða ein vinsælasta tómstundaiðja ís- lendinga og hefur fram að þessu verið óendanleg upp- spretta fróðleiks um sögu Is- lands og annarra þjóða. Enda skyldu menn aldrei temja sér þá fordóma sumra háskóla- genginna manna að líta niður á ættfræðina en meta heldur hið forna spakmæli að ættfræð- in er móðir sagnfræðinnar. „Menn eru ekki að fás.t við ættfræði ánægjunnar vegna, heldur vegna þess að menn finna gleði af því að geta nýtt hana í hagnýtum tilgangi. Þ.e.a.s. ef einhver ánægja er þá er það að finna árangur af starfi sínu. Ættfræðin samein- ar menn en sundrar ekki, við erum öll af sömu rót sprottin en í ættfræðinni finnum viö fvrir því að við eigum öll sama uppruna. Þess vegna sagði Bjarni heitinn Benediktsson einu sinni í I7. júní ræðu að allir íslendingar eigi sameigin- lega forfeður og ntuni eigasam- eiginlega. afkomendur eftir nokkrar aidir. Ættfræðin kennir manni það að það er ekki til neitt sem heitir ættar- hroki. stéttarskipting metnað- ur eða þjóðernishroki. Við erum þess vegna öll jöfn hvort sem við erunt komin af kotung- urn eða konungum. „Ættfræðin hefur sannað hagnýtt gildi sitt á fjölda svið- um allt frá sagnfræði til læknis- fræði og við ritun byggðasögu, æviskráa. auk þess að vera uppspretta fróðleiks og ánægju fjölda fólks og verða sívinsælli.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.