NT - 02.08.1984, Síða 14

NT - 02.08.1984, Síða 14
ÁBÓT ■ Sókrates var allra manna fremstur í barátt- unni gegn timburmennsku. ■ Platon réði ungu fólki, þ.e. yngra en 40, frá drykkju. Timburmennska óþörf ■ Hvarfmiðja menningar sérhverrar þjóðar er vínmenn- ing hennar. Upplausn þjóða og glundroði siðrofsins endur- speglast í óhófi ofdrykkjunnar. Víti timburmannsins verða mörgum til varnaðar. Það hef- ur löngum verið höfuðverkur timbraðra að finna ráð gegn eftirköstum háværra drykkju- kvelda. Forn-Grikkir dásömuðu un- aðssemdir víndrykkjunnar en voru sér fyllilega meðvitaðir um áþján eftirkastanna. Platon brýndi hófsemi í drykkju fyrir æskunni, þ.e. fólki undir 40 ára, en hvatti eldra fólk til að dýrka Dionysos, sem gaf mönnum vínið til að létta þeim ellina. Forn-Grikkir fundu ýmis óbrigðul ráð gegn timb- urmennskunni og var Sókrates talinn allra Grikkja fremstur í þeim efnum. Ráðlegt var talið að blanda vínið til helminga með vatni og krydda það vel. En það var talin mikil kúnst að krydda vínið svo vel fari. Grikkir höfðu auk þess í poka- horninu tvö úrslita ráð gegn timburmennsku væru menn enn í vafa. Annað var að rífa bragðmikinn ost í vínið. Hitt ráðið var að vefja um höfuðið þyrnigreinar eða viðargreinar. Margir létu sér nægja að sofna upp við tré í nærliggjandi görðum. NT mælir með nútímalegri aðferðum. Takið inn vítamínin B2 og B6 ásamt málmsöltum áður en drykkja hefst. Drekkið fáar tegundir og lítið magn. Gott ráð þykir að sofna ekki ofurölvi og hafa verkjatöflur við rúmstokkinn sem teknar eru inn undir messu ríkisút- varpsins. • Laugahátíðin er ein afþremur stœrstu útisam- komum um verslunarmannahelgina. • Meðal skemmtiatriða verða Sumargleðin sem kemur öllum í gott skap, break-dans keppni, stór-bingó, Megas o.m.fl. • Hátíð sem haldin er á fögrum og verðursœl- um stað Laugum í S-Þingeyjarsýslu. • Ný hljósmveit Bubba Morthens, Das Capital leikur á öllum dansleikjum. • Þó rigni eldi og brennisteini eru gestir Lauga- hátíðar öruggir í fögru og glœsilegu íþrótta- húsi. Hátíðin sem höfðar til allra, láttu sjá þig H.S.Þ. Fimmtudagur 2. ágúst 1984 14 Grillréttur helgarinnar! cfriíns»$* Oo baö'11' tv\\tef4D' upp a |iwf (»1 06 q.900?- ’ , iíuóaa . 2 fl\a'-sw' y.aíú’ú'1 \öataa' c . ^irvú"" ^a%aS um\>aðb' t í>»; trara' ■ Páll Árnason yfirmatreiðslumaður á Hótel Borg. Brjóstbirta um verslunarmannahelgina ■ NT hefur fengið Kristján Runólfsson, barþjón á Hótel Borg til að blanda nýjan drykk í tilefni verslunarmannahelgarinnar. Drykkurinn hefur hlotið nafnið Regnbogi-NT og skal borinn fram með kaffi að loknum kvöldverði. Auk þess að bera liti NT er drykkurinn Ijúfengur mjög. Við birtum hér uppskrift að Regnboga-NT ásamt uppskriftum að tveim hanastélum sem glatt geta hjörtu marga um verslunarmannahelgina. Regnbogi-NT 1/2 Parfait Amour Bols 1/2 Liqor 43 Hellið Pafait Amour fyrst og síðan Liqor varlega í „Pousse Café“ glas. Græn elding 1/2 vodka 1/2 þurr vermouth 1 tks. grænn Chartreuse Isexi Trotskýs 4 cl. vodka 6 cl. tómatdjús 1 tsk. sítrónudjús Nokkrir dropar Worchester sósa, salt og pipar 4 cl. sódavatn ísmolar með frystri, svartri ólífu í hverjum mola.

x

NT

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.