NT

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

NT - 15.08.1984, Qupperneq 4

NT - 15.08.1984, Qupperneq 4
Miðvikudagur 15. ágúst 1984 Algengasti kynsjúkdómurinn á Islandi: Klamydía er orðin 50% algengari en lekandi! ■ NT barst í hendur þetta sýnishorn af greinum og lyngormi þeim sem nú herjar á Fáskrúðsfírði. Ni-mynd: Róbert. Fáskrúðsfjörður: Allt morandi í lyngormi ■ Mikill lyngormur hefur herjað á Fáskrúðsfirðinga að undanförnu, en eins og NT greindi frá, ekki alls fyrir löngu þá hefur berjaspretta verið óvenju góð á austurlandi. Sam- kvæmt heimildum NT, þá munu austfirðingar nú vera að gjalda fyrir góðviðrið sem ríkt hefur þar um slóðir í sumar því allt er nú morandi í fiðrildum og áhrif- in láta ekki á sér standa. Lauf trjáa og á berjalyngi er uppvafið og brúnt sem á hausti. Að sögn heimildarmanna þá mun vart vera hægt að fara til berja sökum þessa ófagnaðar og kveður rammast að þessu á Eskifirði og á Fáskrúðsfirði. ■ „Allt lauf er fyrir löngu orðið uppvafíð og brúnt sem á haustögum“ sagir heimildamaður NT „og er þetta gjaldið fyrir allt góðviðrið sem við höfum búið við í ár.“ ■ Sá kynsjúkdómur sem um þessar mundir herjar hvað harð- ast á íslendinga og nálægar þjóðir, er klamydíusýking sem nú er orðinn lang algengasti kynsjúkdómurinn hérlendis og víðar. Þetta kemur fram í grein eftir Ólaf Steingrímsson, lækni sem birtist í tímaritinu Heil- brigðismál, nú fyrir stuttu. Þar kemur fram að klamydíusýking er tæpum 50% algengari en lekandi og er því umtalsvert vandamál á íslandi. Klamydíu-bakterían hefur lengi verið þekkt sem orsök augnkvefs sem er ein algengast orsök blindu í heiminum og lengi hefur verið vitað að hún veldur sjúkdómum í fæðingar- vegi kvenna. Flinsvegar hefur mönnum ekki verið það ljóst fyrr en á síðustu árum, að baktería þessi er algengasta or- sök kynsjúkdóma í heiminum. Hún er auk þess uppspretta fjölda annarra sjúkdóma í mönnum s.s. þvagrásarbólgu hjá körlum (getur valdið ófrjó- semi), augnfári, eitlafári, lungna- bólgu í nýburum, og síðast en ekki síst bólgum í leghálsi og eggjaleið- urum kvenna sem geta haft afdrifaríkar afleiðingar. Talið er að meira en helmings líkur séu á því að konasem samrekkir sýktum manni smitist og þá eru taldar 30% líkur á ófrjósemi við fyrstu sýkingu en 70% líkur eru á ófrjósemi hjá konu sem sýkist í þriðja sinn og fær eggjaleiðara- bólgu. Það er því mun afdrifa- ríkara ef kona smitast af klamy- díu heldur en karl, því sá þvagrásarsjúkdómur sem karlar geta fengið við sýkingu er til- tölulega meinlaus og langoftast læknast sjúkdómurinn af sjálfu sér, þó í undantekningartilfell- ■ Hlutfallsleg skipting kynsjúkdóma, sam- kvæmt skrám Heilsuverndarstöðvar Reykjavík- ur árið 1982. A: lekandi, 30%, B: klamydía, 51%. C: lekandi og klamydía 18%. D: sárasótt (syfílis) o.fl., 1%. Heimildir: HeilbrígAismál 2/1984 um geti sýkingin valdið ófrjó- semi og alvarlegri sjúkdómum. Einkennin geta leynst svo mánuðum eða árum skiptir Til bakteríuættarinnar „Chlamydia" heyra tvær teg- undir, „Chlamydia trachomat- is“ og „Chlamydia psittaci“. Það er fyrrnefnda tegundin sem einkum veldur sjúkdómum í mönnum, en rannsóknir á bakt- eríu þessari eru þó skammt á veg komnar. Lengi vel voru klamydíu-bakteríur taldar til veira en lífsferill þeirra mun vera einsdæmi meðal örvera sem margt er enn óljóst um. Ræktun á „Chlamydia trac- homatis" hófust á fslandi á Sýkladeild Rannsóknarstofu Háskólans í lok ársins 1981. Aðferðirnar við rannsóknir á bakteríunni eru mjög tímafrek- ar og sýnin afar viðkvæm, þann- Ræktanir gerðar á Raimsóknastofu Háskólans 1982 1983 Klamydia: Sýni send i raektun ............................... 2417 3980 Emstakkngar tneð staöfestan sjúkdóm ............... 500 709 Lekandi: Sýni send í ræktun ................................ 7269 9216 Einstaklingar meö staðfestan sjúkdóm .............. 329 306 ■ í fjögur þúsund faldri stækkun líta klamydí- urnar svona út. ig að erfitt er að rannsaka aðra Nlendinga en þá sem búa á þöfuðborgarsvæðinu. Hefur þetta verið mjög til trafala. Hinsvegar er þegar ljóst, að klamydíu sýnum hefur fjölgað mjög síðan athuganir hófust á meðan lekandagreiningum hefur fækkað. Er þetta talsvert áhyggju- efni fyrir heilbrigðisyfirvöld | því fólk getur gengið með klamydíu-sýkingu svo mánuð- um eða jafnvel árum skipti, einkennalaust, og því komast of fáir undir læknishendur. Bent hefur verið á ýmsar leiðir til að hefta útbreiðslu sjúkdómsins. Til dæmis er talið að notkun gúmmí-verja dragi verulega úr smitlíkum eins og hefur sýnt sig með lekandasmit. Þá hefur verið bent á nauðsyn þess að auka fræðslu um kyn- sjúkdóma, bæði innan heil- brigðisstétta og á meðal al- mennings. Hcimildir: Heilbrígdismál 2/1984. Heimildir: Hcilbrígdismál, 2/1982 AUGLYSENDUR ATHUGE) Fylgirit NT um byggingariðnað kemur út 4. viku í ágúst. ■ Eigandi „Y“, staðarins. Y (ufsilon): Hreiðar Svavarsson, og veitingastjóri, Sigurjón Jónasson, ásamt starfsstúlkum NT-mynd: Sverrír Auglýsingar sem birtast eiga í blaðinu þurfa að hafa borist auglýsingadeild NT í síðasta lagi föstudaginn 17. ágúst. Símarnir eru 18300 - 687648 - 686300 Nýr skemmtistaður í Kópavoginum gott verð í vönduðum og glæsi- eldri, og séu snyrtilega legum húsakynnum," segir í klæddir." fréttatilkynningu, og „æskilegt Eigandi staðarins er Hreiðar þykir að gestir séu 20 ára og Svavarsson. Bókaverslun Snæbjarn- ar í nýju húsnæði ■ Ekki alls fyrir löngu var opnaður nýr veitingastaður í Kópavogi sem hefur hlotið nafnið Y (ufsylon). Staðurinn sem er til húsa við Smiðjuveg 11 mun vera rekinn í samvinnu við Smiðjukaffi sem margir þekkja. Nýi staðurinn rúmar um 280 manns og verður húsnæðinu skipt í tvo hluta, aðalsal og bjórstofu. í aðalsalnum er leiksvið fyrir hljómsveit og plötusnúning og þar er hægt að bjóða upp á aðstöðu fyrir sicemmtikrafta. Þar eru sæti fyr- ir 100 matargesti auk þess sem fimmtíu gestir geta tyllt sér við barina tvo sem í salnum eru. „Það er kjörið fyrir félaga- samtök og starfsmannahópa að fá inni þarna fyrir félagsfundi og mannfagnaði ýmis konar og njóta þar góðrar þjónustu fyrir ■ Bókaverslanir Snæbjarnar að Hafnarstræti 4 og 9 hafa nú sam- einast í nýju húsnæði að Hafnar- stræti 4, og hefur húsnæði verslun- arinnar verið stækkað um helming. í þessu tilefni stendur nú yfir kynning á völdum listaverka- bókum frá Phaidon Press og verða bækurnar á sérstöku kynningar- verði. Bókaverslun Snæbjarnar var upphaflega til húsa að Bankastræti 7 en ári seinna flutti verslunin í Austurstræti þar sem hún var til húsa fram til 1953. í núverandi húsnæði hefur bókaverslunin verið síðastliðin fjórtán ár, og hefur á þeim tíma haft umboð fyrir sölu og dreifingu bóka frá ýmsum al- þjóðastofnunum og stórum bóka- útgáfum, m.a. Longmans, Ham- lyn og Oxford University Press. Þá hefur bókaverslunin um árabil séð um kynningu á íslenskum bókum erlendis.

x

NT

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: NT
https://timarit.is/publication/305

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.